Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Blaðsíða 8
8 Fréttir / Fimmtudagur 17. maí 2007 Kosningarnar á laugardaginn, úrslitin í Suðurkjördæmi: Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir stóðu uppi sem sigurvegarar s -Samfylkingin tapaði tveimur af íjórum - Arni Johnsen niður um sæti vegna útstrikana Kosninganóttin síðasta var ein sú mest spennandi í mörg ár ef ekki áratugi. Það var ekki bara að ríkisstjórnin væri ýmist úti eða inni heldur voru einstakir fram- bjóðendur að detta inn eða út af þingi alveg fram á morgun. Niðurstaðan er að ríkisstjórnin hélt velli, naumlega þó með einn þingmann í plús. I Suðurkjör- dæmi eru Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir sigurvegarar og verður að teljast persónulegur sigur fyrir oddvitana, Arna Mathiesen hjá sjálfstæðis- mönnum og Atla Gíslason VG. Sjálfstæðismenn fóru úr þremur í fjóra og VG nær í fyrsta skipti inn manni í kjördæminu. Framsókn heldur sínum tveimur en skellurinn er hjá Samfylkingu sem missir tvo af fjórum þing- mönnum. Þar fór líka möguleiki Eyjamanna á að eignast þrjá þingmenn fyrir lítið. Var það með ólíkindum því langt fram eftir nóttu benti ekkert til annars en að Róbert Marshall, þriðji maður á lista Samfylkingar, væri inni en reglur um uppbótarsæti ruddu honum út á lokasprettinum og tryggðu Grétari Mar Jónssyni, Frjálslynda flokknum, þingsæti á Alþingi Islendinga. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar því fyrir liggur að milli 21 til 22% kjósenda Sjálfstæðis- flokksins strikaði yfir nafn Arna Johnsen. Hann er í öðru sæti list- ans og gæti þetta þýtt að hann færist niður um sæti, a.m.k. eitt. Þó að þetta sé mikið áfall fyrir Arna eru samt engar líkur á að hann detti út af þingi. Frá sjónarhóli Eyjamanna eru úrslit kosninganna vjðunandi, með tvo þingmenn, Arna Johnsen og Lúðvík Bergvinsson Samfylkingu. Vondu tíðindin eru að Róbert Marshall komst ekki inn. Hann hefði verið góður full- trúi Vestmannaeyja á þingi og líklegur til að hreyfa við málum sem snerta Eyjarnar. Það má segja að hann hafi orðið pólitískt fórnarlamb reglna um uppbótarþingmenn sem skolaði inn fjórða manni Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi í kosning- unum 2003. Fylgi flokkanna og þingmenn Framsóknarflokkur: 18.72% Sjálfstæðisflokkur: 35.97% Frjáislyndi flokkurinn: 6.99% íslandshreyfingin: 1.72% Samfylkingin: 26.76% Vinstri græn: 9.85%. Þingmenn Suðurkjördæmis: Árni M. Mathiesen (D) Björgvin G. Sigurðsson (S) Guðni Ágústsson (B) Árni Johnsen (D) Lúðvík Bergvinsson (S) Kjartan Þ. Ólafsson (D) Atli Gíslason (V) Bjarni Harðarson (B) Björk Guðjónsdóttir (D) Grétar Mar Jónsson (F). BEÐIÐ eftir fyrstu tölum. Árni Johnsen með stuðningsmönnum þegar fyrstu tölur birtust á laugar- dagskvöldið. Þá strax var ljóst að sjálfstæðismenn yrðu inni með fjóra þingmenn. Árni Johnsen alþingismaður: Öflug þátttaka í Eyjum „Þetta er afbragðs kosning í Suðurkjördæmi og fór ekkert á milli mála að þátttaka var öflug í Eyjum,“ sagði Árni Johnsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Þetta hefur styrkt stöðu okkar í því sem er framundan. Það bendir allt til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórn áfram. Eg vil koma á framfæri þakklæti fyrir mikinn og góðan stuðning,“ sagði Árni Johnsen og var ánægður með út- komu flokksins í kosningunum. Ekki vildi Árni úttala sig um útstrikanir sem sennilega verða til þess að hann færist úr öðru sæti í það þriðja á Iista sjálf- stæðismanna í Suðurkjördæmi. / i ' 'Vim " -. 1' BROSAÐ BREITT. Guðrún Erlingsdóttir og Róbert Marshall, Samfylkingu, höfðu ástæðu til að fagna þegar fyrstu tölur úr Suðurkjördæmis birtust. Ekkert virtist geta komið í veg fyrir að Róbert væri inni en undir morgun varð hann að lúta í lægra haldi fyrir Ellert Schram í Reykjavík. Róbert Marshall, þriðji maður á lista Samfylkingar: Sagði að það gæti munað nokkrum atkvæðum „Ég sagði það fyrir kosningar að það gæti munað nokkrum atkvæðum á að ég kæmist á þing,“ sagði Róbert Marshall, frambjóðandi Samfylkingar, þegar hann var spurður út í niðurstöðu kosninganna. „Það var mín tilfinning og það reyndist rétt því það vantaði 58 atkvæði og niðurstaðan varð þessi. Hins vegar var ótrúlega gaman að taka þátt í þessu og þúsundir manna vildu fá mig inn á þing. Nú held ég áfram því ég er ákveðinn í að vera í pólitík en þetta setur óneitanlega strik í reikninginn. Það er Ijóst að ég þarf að finna mér lífsviðurværi en ég mun starfa ótrauður áfram í stjórnmálum. Hanna Birna Jóhannsdóttir, frambjóð- andi Frjálslyndra: Þetta var góður varnarsig- ur hjá okkur Hanna Bima Jóhannsdóttir sagðist ánægð fyrir hönd Frjálslynda flokksins þó svo að hún sé ósátt við að hvorki Sigurjón né Magnús Þór náðu kjöri. „Það er góður varnarsigur hjá okkur að halda fjórum mönnum og þeir sem koma inn á þing eru góðir fulltrúar fyrir flokkinn. Baráttan var mjög skemmtileg og stundum óvæ- gin og það vildi enginn tala um innflytjendamál á málefnalegum nótum en þetta er mál sem þarf að finna lausn á á næstu fjóram árum. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir eru sigurvegarar kosninganna og ef stjómin ætlar að halda áfram með undir 50% fylgi þá finnst mér það vera valdníðsla. Það þarf auðvitað líka að skoða vægi atkvæða en 3300 atkvæði eru á bak við hvem þingmann Frjálslynda flokksins en 2600 hjá hverjum þingmanni Sjálfstæðisflokksins." HANNA BIRNA:Baráttan var mjög skemmtileg og stundum óvæginn og það vildi enginn tala um innflytjendamál á málefnalegum nótum en þetta er mál sem þarf að finna lausn á á næstu fjórum árum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.