Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 17. maí 2007
13
SIGURVEGARARNIR Skoska sveitin sigraði á mótinu og þeir voru mættir til að veiða því daginn eftir að mótinu lauk fóru þeir út með Jonna á
Frú Magnhildi og drógu þeir margan vænan iiskinn.
Spurning vikunnar:
Ánægð/ur
með úrslit
kosning-
annaP
Guðgeir
Matthíasson
Já, ég er sáttur við
þær. En ég er ekki
sáttur við að
Samfylking skuli
missa tvo menn.
Berglind
Jóhannsdóttir
Nei, ég er ekki
sátt. Það hefði
verið frábært að fá
Róbert Marshall á
þing.
Hjörleífur
Þórðarson
Það fer eftir því
hvernig stjórn
verður, þ.e. hvort
maður er sáttur
eða ekki. Eg vil
áframhaldandi
stjórn.
Vel heppnað Evrópumót í tegundaveiði í sjóstöng:
Hér er nóg af fiski í sjónum
-sagði Jim Whippy, ritstjóri enska veiðiblaðsins Boatfishing Monthly, og var
hæstánægður þegar hann kom að landi eftir síðari keppnisdaginn
WHIPPY hefur farið heimshornanna á milli og veitt en hann segir
Island standast samanburð við hvaða land sem er. Enska sveitin frá
vinstri, Richard Russel, Paul Hart, David Styles og Jim.
ROOFTHOOFT segir aðalatriðið vera að njóta þess að vera úti á sjó
og fiska. Með honum á myndinni cr Ria Van Ranst.
Leikmenn
IBV biðjast
afsökunar
Evrópumót í tegundaveiði í
sjóstöng fór fram við Vestmanna-
eyjar um helgin en mótið stóð yfir í
tvo daga. Alls komu saman um eitt
hundrað sjóstangveiðimenn víðs
vegar að úr Evrópu en veðrið lék
við mótsgesti. Keppendumir komu
frá ellefu þjóðum, flestir frá íslandi
eða 28 talsins, 15 frá Rússlandi, 14
frá Englandi, 11 frá írlandi, 10 frá
Skotlandi, 7 frá Belgíu, 6 frá
Wales, 5 frá Danmörku, 2 frá
Noregi og sinn hvor keppandinn
kom frá Þýskalandi og Sviss.
Notast var við sextán báta í mót-
inu, flesta héðan frá Eyjum. Flestir
veiðimannanna dvöldu mun lengur
hér í Eyjum, nánast alla vikuna og
með þeim var þó nokkurt fylgdarlið
þannig að mótið var gott uppgrip
fyrir ferðaþjónustuaðila.
Tegundimar sem gefa stig í mótinu
eru langa, keila, ýsa og steinbítur.
Mótið sjálft var sett við hátíðlega
athöfn síðdegis á fimmtudag við
Kaffi Kró en þar komu saman allir
mótsgestir. Það er EFSA, íslands-
deild Evrópusambands sjóstang-
veiðifólks, sem sá um framkvæmd
mótsins en Evrópumótið í teg-
undaveiði er aðeins haldið einu
sinni á ári og færist milli landa
innan Evrópu. Þetta var jafnframt í
fyrsta sinn síðan 1974 að Evrópu-
mót í sjóstangveiði fer fram hér við
Island. Þá var mótið haldið á
Akureyri en árið 1968 var
Evrópumót í sjóstangveiði haldið
hér við Vestmannaeyjar. Eftir fána-
hyllingu og ræðuhöld var mótið sett
en klukkan sex morguninn eftir
hófst keppnin. Ohætt er að segja
að veðrið hafi verið einstaklega gott
fyrri keppnisdaginn, varla bærðist
hár á höfði og sjólag einstakt.
Aðeins gustaði síðari daginn en þó
ekki að neinu marki.
ísland stenst allan saman-
burð
Fyrirliði enska liðsins, Jim Whippy,
var hæstánægður þegar hann kom
að landi eftir síðari keppnisdaginn
en Whippy er ennfremur ritstjóri
enska veiðiblaðsins Boatfishing
Monthly.
„Okkur gekk mjög vel og ég held
ég hafi orðið efstur okkar Eng-
lendinganna með 197,9 stig. Eg
gat því miður ekki verið með í gær
en mér sýnist að Skotamir hafi
staðið sig best enda er það þeirra
stíll,“ sagði Whippy þegar hann var
spurður út í gengi sinna manna.
Whippy hefur farið heimshorn-
anna á milli og veitt en hann segir
Island standast hvaða landi sem er
samanburðinn, og gott betur.
„Þetta er reyndar alveg einstakt að
vera héma. Það er ofboðslega
gaman að koma hingað til að veiða
en það er allt of langt síðan
Evrópumót var haldið hér síðast, 30
ár að mig minnir. En þetta er búið
að vera alveg meiri háttar. Á
Bretlandi komumst ekki með
tæmar þar sem íslendingar hafa
hælana þegar kemur að fiski-
miðunum, hér er nóg af fiski í
sjónum.
Á þessum sjö tímum sem ég setti
öngulinn í sjóinn þá fékk ég fisk í
hvert sinn. Kannski ekki alltaf þá
tegund sem ég vildi en ég fékk
alltaf fisk. Og þetta voru líka vænir
fiskar, bæði þorskur og svo ýsa,
sem við sjáum ekki mikið af við
Bretland lengur. Veðrið var ekki til
að skemma fyrir, þetta var líkara
Spánarveðri og ég næ því ekki
hvemig þið fómð að þessu,“ sagði
Whippy og vildi þakka
mótsstjóminni og Eyjamönnum
fyrir skemmtilegt mót.
Aðalatriðið að njóta þess
að fiska
Fyrirliði belgíska liðsins, Harry
Roofthooft, var sömuleiðis
ánægður. „Við fengum mikinn fisk
þó ég hafi ekki fengið allar
tegundir. Eg held að aðeins einn á
okkar báti hafi fengið allar fjórar
tegundimar. En það er ekki aðal-
atriðið heldur að njóta þess að vera
úti á sjó og fiska. Við komum með
veðrið með okkur, því í Belgíu var
hitabylgja og við tókum hluta af
henni með okkur á rnótið," sagði
Roofthooft en Belgía tefldi fram
tveimur liðum.
Mótið gekk stórslysalaust fyrir sig
en daginn fyrir mótið sneri einn
meðlimur belgíska liðsins sig á
hné. „Það er kona hér með okkur í
hópnum, Ria Van Ranst, sem sneri
sig illa þegar við vorum að veiða
daginn fyrir mót. Hún lét það samt
ekkert stoppa sig og tók þátt í mót-
inu og stóð sig bara vel,“ sagði
Roofthooft að lokum.
Það leiða atvik átti sér stað eftir
leik ÍBV og Þórs á Hásteinsvelli í
gær að leikmenn Eyjaliðsins
ruku inní búningsklefa án þess
að þakka áhorfendum
stuðninginn eins og venjan er.
Leikmenn liðsins voru auðvitað
hundfúlir með sjálfa sig að ná
ekki að klára leikinn og nýta
þann urmul færa sem liðið fékk í
seinni hálfleik.
Það var að sjálfsögðu einungis
vegna þess sem menn hlupu strax
inní búningsklcfa en ekki vegna
stuðningsmanna liðsins, sem fjöl-
menntu á Hásteinsvöll í gær.
Við viljum biðja stuðningsmenn
IBV afsökunar á þessu og vonan-
di kemur þetta ekki fyrir aftur.
Finnig viljum við þakka þeim
fjölmörgu sem lögðu leið sína á
Hásteinsvöll í gær og vonandi
sjáum við enn fleiri á komandi
leikjum.
Fyrir hönd leikmanna meis-
taraflokks ÍBV
Bjarni Hólm fyrirliði