Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 14
14
Fréttir / Fimmtudagur i /. mai 2007
Slagurinn um Vinnslustöðina
Eyjamenn þjappa sér
saman og verj ast grimmt
s
-Ahlaupið virðist hafa komið þeim í opna skjöldu - Segja aðalatriðið að verja fyrirtækið og
árangur þess heimabyggðinni til hagsbóta. Telja átök um eignarhaldið fyrirtækinu ekki til
framdráttar - Bræðurnir frá Rifi styrkja stöðu sína - Tekist á um sex milljarða
Samantekt
Ómar Garðarsson
omar @ eyjafrettir.. is
Fimmtudaginn 12. apríl síðastliðinn
var hringt í fjölda hluthafa í
Vinnslustöðinni hf. úr Lands-
bankanum og þeim gert tilboð í
hlutabréfin í fyrirtækin á genginu
8,0. Þetta tilboð var langt yfir geng-
inu sem síðast hafði verið skráð á
bréfum í VSV í kauphöllinni OMX.
Verðbréfasalarnir hringdu bæði í
einstaklinga í Eyjum, sem eiga stóra
hluti í VSV, en einnig í Lífeyrissjóð
Vestmannaeyja og Sparisjóð Vest-
mannaeyja, sem sömuleiðis eiga
hluti í VSV. Víst er að verðbréfa-
salarnir náðu ekki þeim árangri sem
þeir væntu. Aðgerð þeirra setti hins
vegar í gang atburðarás átaka um
eignarhald í félaginu.
Áhlaup Landsbankans
Það kom nefnilega í ljós, þegar einn
hluthafi hringdi í annan hluthafa í
Eyjum og greindi frá upphring-
ingunni frá Landsbankanum, að sá
hafði líka fengið nákvæmlega eins
erindi símleiðis úr höfuðborginni!
Og þegar menn fóru að bera betur
saman bækur sínar kom í ljós að
hringt hafði verið úr Landsbank-
anum í fjölda hluthafa á sama tíma
með sams konar tilboð í hlutabréfin
í VSV. Þar með virtist liggja ljóst
fyrir að bankinn hafði skipulagt ein-
hvers konar skyndiáhlaup til að
safna eignarhlutum í VSV hjá fjölda
hluthafa á sama augnablikinu í þeim
tilgangi að gefa hluthöfum ekki tóm
til að ráðgast innbyrðis um það sem
kynni að vera að gerast.
I fyrstu vissu menn í Eyjum ekki í
hverra þágu áhlaup Landsbankans
væri en þegar leið á daginn fékkst
staðfest að bankinn væri að bjóða í
hlutabréf Vinnslustöðvarinnar fyrir
hönd bræðranna Guðmundar og
Hjálmars Kristjánssona frá Rifi
(eigenda Brims hf.). Félög í eigu
þeirra og þeir sjálfir eiga samanlagt
ríflega 30% í Vinnslustöðinni.
Hjálmar er í stjórn VSV en Guð-
mundur í varastjórn. Þarna var með
öðrum orðum blásið til átaka um
eignarhald og forræði í VSV. Og vel
að merkja, minnihlutaeigendurnimir
þurftu ekki að bæta miklu við sig til
að hafa meira vald á fyrirtækinu en
meirihlutaeigendur félagsins kærðu
sig um. Þrjú prósent hlutafjár til
viðbótar myndu þannig færa minni-
hlutanum í eigendahópnum umtals-
vert meiri ítök og betri valdastöðu í
félaginu en hann hefur nú.
í viðtali við Guðmund segist hann
ekki standa á bak við tilboð Lands-
bankans að öðru leyti en því að hann
bauð í hlut Lífeyrissjóðsins. Hann
viðurkennir aftur á móti að það hafí
þeir bræður gert til að styrkja stöðu
sína innan félagsins.
Meirihlutinn bregst við
Viðbrögð heimamanna létu ekki á
sér standa og sunnudaginn 15. apríl
yar.þoðað til fundar nokkurra lykil-
hluthala í Eyjum þar sem gengið var
muhnjéga frá samkomulagi eigenda
5Ö;ð4% ■'hmtaifáf um „stjómun og
rekstur Vinnslustöðvarinnar hf.“
í FYRSTU vissu menn í Eyjum ekki í hverra þágu áhlaup Landsbankans væri en þegar Ieið á daginn fékkst staðfest að bankinn væri að bjóða í
hlutabréf Vinnslustöðvarinnar fyrir hönd bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona frá Rifi (eigenda Brims hf.).
Landsbanki
Landsbankinn
bauð ekki í
bréfín
Þegar haft var samband við
Verðbréfamiðlun
Landsbankans var því alfarið
neitað að Landsbankinn væri
að bjóða í bréf í
Vinnslustöðinni, það væri and-
stætt reglum.
Það eina sem fékkst uppgefið
var að Verðbréfamiðlunin
hefði boðið í bréf
Vinnslustöðvarinnar í umboði
viðskiptavina. Hvort þeir voru
einn eða tleiri fékkst heldur
ekki uppgeflð.
Guðrún Erlingsdóttir, formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs Vm:.
Liggur ekkert á að selja
„Við erum langtímafjárfestir og höfum mjög mikla trú á
Vinnslustöðinni,“ sagði Guðrún Erlingsdóttir formaður stjórnar
Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, þegar hún var spurð hvort sjóðurinn
ætlaði að taka tilboði Landsbankans. „Okkur liggur því ekkert á að
selja.“
Gengi hlutabréfa i Vinnslustöðinni hf. i OMX/Kauphöll
Islands var i upphafi rekstrarársins skráð 4,20 en i lok
rekstrarársins 4,50. A timabilinu var qengið læqst
skráð 3,81 i marsmánuði eri hæst skráð 4,60 í
riovem ber.
HluthafarVinnslustöðvarinnar hf. voru 408 i upphafi
rekstrarársins en 399 i lok rekstrarársins og hafði þvi
fækkað um 9 á árinu. Tveir hluthafar reyndust eiqa yfir
10% i felaqinu i lok rekstrarársins: Seil ehf. (23,93%)
og Stilla ehf. ■ 18,31 %). Vinnsiustöðiri hf. var hluthafi i
Stillu i upphafi ársins en seldi lilut sinn á árinu. Tiu
sríerstu hibthafar i árslok 2006 voru:
Nafn Hlutafé %
Síil fhf. 374.459.320 23,93
Stilla ehf. 286.546.134 18,31
Llnuskip ehf. 117.089.853 7,48
Öxnafell ríif. 97.541.706 6,23
Leifui Ársaalsson 96.344.440 6,16
Lifeyrissj. Vístinannaeyja 83.246.039 5,32
Ll-Hetlge 65.199.808 4,17
Vinnslustödin hf. 60.795.143 3,88
Möf ehf. 48,443.256 3,10
Krístfn Elln Gisladóttii 43.666.274 2,79
Fulltrúar hluthafanna og lögmenn
þeirra sátu síðan yfir því í um hálfan
sólarhring að ganga frá forms-
atriðum. Um þrjúleytið aðfararnótt
mánudags 16. apríl var hluthafasam-
komulagið undirritað og tilkynning
þar að lútandi send Kauphöllinni til
birtingar að morgni dags. Þar fylgdi
með að aðstandendur samkomu-
lagsins myndu gera öðrum hlut-
höfum tilboð um að kaupa hluti
þeirra í VSV, í samræmi við ákvæði
laga um hlutabréfaviðskipti. Sömu-
leiðis lýsti hluthafahópurinn þeim
vilja sínum að afskrá félagið í
Kauphöllinni.
Að hluthafasamkomulaginu standa
systkinin Haraldur Gíslason og
Kristín Gísladóttir, dætur Kristínar
(Guðrún Svava, Ólöf Elín og Ellý
Rannveig), Sigurgeir B. Krist-
geirsson, Leifur Arsælsson og
Gunnar Jónsson. Þar er meðal
annars kveðið á um gagnkvæman
forkaupsrétt allra að hlutabréfum
annarra hluthafa í hópnum. Það
viðhorf er áberandi og ríkjandi í
þessum hluthafahópi að slagurinn
standi um að verja þann undraverða
árangur sem náðst hefur í rekstri
VSV á tiltölulega fáum árum þannig
að Eyjamenn sjálfir uppskeri árang-
ur þess erfiðis síns að rétta fyrirtæk-
ið af og skjóta undir það traustum
stoðum.
Sex milljarðar króna skilja
á milli í verðmatinu
Yfirtökutilboð Eyjamanna ehf.,
félags í eigu aðstandenda hluthafa-
samkomulagsins, var birt öðrum
hluthöfum f annarri viku maímán-
aðar. Tilboðið gildir frá 13. maí til
11. júní 2007 og hljóðar upp á kaup
á genginu 4,60 krónur á hlut. Vísað
er til þess að hærra verð hafi tilboðs-
gjafi og samstarfsaðilar ekki greitt
fyrir hlutabréf í VSV hálft ár þar á
undan.
N.