Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Page 18

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Page 18
18 Fréttír / Fimmtudagur 17. maí 2007 MYNDUÐU HRINGI Þegar komið var upp á malarvöll myndaði hver árgangur hring og urðu þeir alls níu. Olweusardagurinn í Grunnskóla Vestmannaeyja: Árgangarnir hristir saman Um 700 nemendur í fyrsta til níunda bekk Grunnskóla Vestmannaeyja og kennarar þeirra stormuðu upp á malarvöllinn við Löngulág á föstudaginn. Grunnskóli Vestmannaeyja er þátttakandi í Olweusaráætluninni gegn einelti og eitt af þeim verkefnum, sem skólinn sinnir er, að standa fyrir námsdegi um eineld og hefur skólinn frjálsar hendur hvað varðar útfærslu. Olweusardagurinn var á föstudaginn og af því tilefni var hist á malar- vellinum þar sem hver árgangur sameinaðist. Eftir að hafa sungið og trallað fóru árgangarnir í það skólahús sem þeir verða í næsta haust. Tilgangurinn var líka að hrista saman nemendur í Bamaskóla og Hamarsskóla sem sameinast þegar skólanum verður aldursskipt i haust. Með þessari útfærslu á námsdegi í Olweusaráætluninni var verið að leggja áherslu á tvo mikilvæga þætti í áætluninni, annars vegar eineltishringinn og hins vegar bekkjarreglurnar. Eineltishringurinn auðveldar nemendum að átta sig á að þeir geta tekið afstöðu gegn einelti með því að standa með þeim sem verður fyrir eineltinu. Reglurnar undirstrika svo enn frekar andstöðu gegn einelti og leggja áherslu á að hver og einn á rétt á að vera í skólaumhverfi sem er vinveitt og öruggt. SAMEINAST á malarvellinum. Krakkarnir gengu frá sínum skóla og hittust á malarvellinum þar sem árgangarnir sameinuðust. Hér er einn hópurinn í öruggri fylgd Fanneyjar Asgeirsdóttur skólastjóra og Olafar Aðalheiðar Elíasdóttur kennara. Öll voru þau með furðuhatta á höfðinu. STELPURNAR í yngri flokki. Vestmannaeyjameistaramót í fímleikum: Margrét Lára og Gígja Sunneva meistarar Á dögunum var haldið Vest- mannaeyjamót í áhaldafimleikum en í þetta sinn var í fyrsta sinn keppt eftir nýjum reglum þar sem keppendur gátu fengið hærri einkunn en tíu. Alls tóku þrjátíu keppendur þátt í mótinu en keppt var í 5. og 6. þrepi. Vestmannaeyjameistarar urðu þær Margrét Lára Hauksdóttir í 5. þrepi og Gígja Sunneva Bjarnadótdr í 6. þrepi. Um síðustu helgi fór svo fram árleg Vorsýning Ránar. Á sýningunni sýndu 130 strákar og stelpur, í ellefu hópum, afrakstur vetrarins en mikil vinna liggur að baki sýningarinnar. Aðsókn á sýninguna var mjög góð en forráðamenn Ránar vilja þakka öllum þeim sem komu að sýningunni og vetrarstarfmu með einum eða öðrum hætti. Úrslit: 6. þrep, f. 1999 Samanlagt 1. Hrafnhildur Stefánsdóttir 53,70 2. Kristín Sigmundsdóttir 53,40 3. Agnes Stefánsdóttir 53,10 6. þrep, f. 1998 Samanlagt 1. Gígja S. Bjarnadóttir 60,90 2. Berglind Sigmarsdóttir 56,00 3. Kristín Ingólfsdóttir 55,60 6. þrep, f. 1997 Samanlagt: 1. Sara Dís Hafþórsdóttir 59,10 2. Henríetta A. Ólafsdóttir 58,50 3. Steiney Arna Gísladótdr 57,80 4. Agnes Líf Sveinsdótdr 51,40 5. þrep Samanlagt: 1. Margrét Lára Hauksdótdr 55,90 2. Elísabet Baldursdótdr 51,90 3. Magnea Jóhannsdóttir 51,50 4. Júlíana Sveinsdótdr 49,20 MEISTARAR, Margrét Lára og Gígja Sunneva.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.