Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Síða 20

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Síða 20
EIGENDUR og starfsstúlka, Eydís Ósk, Sigursveinn, Hjörleifur og Eygló Guðmundsdóttir sem starfar í búðinni. Barnaborg, ný barnafata- og leikfangaverslun Barnaborg, ný og glæsileg barna- fata- og leikfangaverslun hefur verið opnuð við Heiðarveg 9, þar sem Krakkakot var áður til húsa. I Bamaborg má finna gæða barna- fatnað frá Ticket to Heaven. Auk þess er mikið úrval leikfanga fyrir börn á öllum aldri og sömuleiðis reiðhjól og allt sem þeim fylgir. Eigendur verslunarinnar eru hjónin Þórður Sigursveinsson og Guðmunda Hjörleifsdóttir ásamt sonum þeirra, Sigursveini og Hjörleifi og eiginkonum þeirra, Eydísi Ósk Sigurðardóttir og Margréti Rós Andrésdóttur. Hjörleifur sagði í samtali við Fréttir að búðin hefði farið vel af stað. „Það var stanslaus umferð af fólki hér í búðina frá því að við opnuðum. Við emm líka með gott úrval af leikföngum og frá öllum helstu leikfangaframleiðendunum, Lego, Playmo, Bratz, Groovie Girls, Pet Shop, Happy friends, Disney vörur og svo erum við að fara að bæta við okkur Barbie dóti. Hjólin em lfka alltaf vinsæl, við erum með Trek hjól og góða hjálma fyrir krakkana. Við eigum enn eftir að bæta við okkur í vömúrvali, t.d. í barnafötunum og auðvitað leik- föngunum líka.“ En af hverju að opna verslun með barnafötum og leikföngum? „Okkur Iangaði að prófa þetta og við höfum trú á verslun í Vestmannaeyjum. Við vitum líka að ef úrvalið er gott og þjónuslan góð þá gengur þetta vel,“ sagði Hjörleifur að lokum. VIKUTILBOD 17. - 23. maí Slapp Haukur Hauksson féll niður í lest á Kap VE á föstudag en talið er að fallið hafi verið 6 til 8 metrar. Haukur vann við löndun úr skip- inu og allt bendir til þess að hann hafi misst tak í stiga þegar hann var á leið upp úr lestinni. Haukur var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugi og liggur nú á Borgarspítalanum í Reykjavík. Eygló Stefánsdóttir, eiginkona Hauks, segir hann hafa sloppið ótrúlega vel miðað við aðstæður. „Lærleggurinn brotnaði uppi við mjöðm og svo fór afltaug í öxl- inni og hann þarf að fara í aðgerð vegna þess fljótlega. Okkur er sagt að það verði fyrr að gróa en brotið og að hann eigi eftir að ná fullum bata eftir slysið.“ Eygló segir að 20 tímar hafi liðið þar til hann komst í aðgerð á spítalanum. „Það er brjálað að gera á spítalanum. Hann var kvalinn en þetta lítur allt vel út miðað við aðstæður. Sem betur fer slapp þetta betur en á horfðist. Þetta tekur auðvitað sinn tíma og mér finnst líklegt að einhver verndarhönd hafi verið yfir honum þegar slysið varð.“ ótrúlega vel Haukur Hauksson lærbrotnaði í slysinu og afltaug við öxl gaf sig. iiimiiiiimimmiiiiiimiiiiiBiiiiiiimiiiiiii*

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.