Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Side 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 13. september 2007
Námskeið framundan:
AÐ SEGJA HIÐ RÉTTA, GERA HIÐ RÉnA
Leiðbeinandi: Haraldur Guðjónsson, siökkvitiðs- og sjúkraflutninga-
maður
Tími og dagsetning: 20. september 15:30-20:00 og aftur 21. ef þátt-
taka verður nœg
Verð: 13.000,-
Námskeiðið fjallar um framkomu á vettvangi þar sem andlát eða
aðrir hörmulegir atburðir hafa átt sér stað og fjölskyldumeðlimir, vinir
og/eða aðrir eru viðstaddir.
Helstu umfjöllunarefni eru m.a: Leiðbeiningar og tilmœli frá
Landlœkni um umönnun látinna og aðstandenda þeirra, hvernig á
að tilkynna andlát, fyrstu sorgarviðbrögð, sérstök tilvik (sjálfsvíg,
vöggudauði, umferðarslys o.fl.), sorg barna og unglinga, orsök og
afleiðingar streitu og hvað er rétt og hvað er ekki rétt að segja.
Andlát á vettvangi er mikill streituvaldandi þáttur í starfi heilbrigðis-
starfsfólks en námskeiðinu er œtlað að auka þekkingu og fœrni
þeirra í að takast á við slíkar aðstœður þannig að álag verði minna
í starfi. Námskeiðið er œtlað fólki í heilbrigðisstétt, lögreglu- og
sjúkraflutningamönnum, prestum eða öðrum þeim sem koma að
aðstœðum sem þessum.
FAGNÁMSKEIÐ FYRIR STUÐNINGSFULLTRÚA
Námskeiðið er œtlað starfandi stuðningsfulltrúum og einnig
undirbúningur fyrir þá sem hyggjast sœkja Félagsliðabrú.
Leiðbeinandi: Ýmsir
Timi og dagsetning: Sept.-des 2007 104 kennslust.
Verð kr.: 15.000,- Styrkt af Frœðslumiðstöð atvinnulífsins.
Námið, sem er 104 kennslustundir, er einkum œtlað þeim sem umsjón
hafa með börnum með fötlun í leik- og grunnskóla. Námið getur
einnig nýst þeim sem starfa sem skólaliðar og/eða þeim sem
hyggja á félagsliðabrú á framhaldsskólastigi. Menntamála-
ráðuneytið hefur samþykkt að það megi meta til allt að 10 eininga
til styttingar náms 1 framhaldsskóla
GRUNNNÁMSKEIÐ FYRIR BYGGINGALIÐA
Frœðsluaðili og staður: Viska, Strandvegi 50 3. hœð
Leiðbeinandi: Björgvin Björgvinsson tœknifrœðingur o.fl.
Tími og dagsetning: Sept-okt. 45 kennslustundir
Verð kr.: 6.000,- Styrkt af Frœðslumiðstöð atvinnulífsins.
Grunnnám byggingarliða er œtlað þeim sem eru fullra 20 ára og
hafa starfað í a.m.k. sex mánuði hjá byggingafyrirtcekjum sem og
hjá fyrirtœkjum sem annast gatna- jarðvinnu, auk fyrirtœkja sem
framleiða og selja varning vegna gatnagerðar, húsbygginga og
mannvirkjagerðar. Tilgangur námsins er að gera fyrrgreinda starfs-
menn hœfari til starfa auk þess að stuðla að jákvœðu viðhorfi náms-
manna til áframhaldandi náms. í framhaldi verðu svo boðið upp á
lengra nám í einni af þremur aðalgreinum byggingaliðans.
Námið hefur hlotið samþykki Menntamálaráðuneytisins til styttingar
náms á framhaldsskólastigi um allt að 3 einingum.
UPPLÝSINGAT/tKNI OG BÓKHALD í FJARNÁMI í
SAMSTARFI VIÐ BIFRÖST
Leiðbeinandi: Ýmsir sérfrœðingar
Timi og dagsetning:Allt að 50 kennslustundir
Hefst ef nœg þátttaka nœst
Verð: 65.000,-
Langar þig til að breyta um starfsvettvang eða styrkja þig í starfi?
Viska, í samvinnu við Háskólann á Bifröst, býður upp á námskeið í
upplýsingatcekni og bókhaldi nú á haustönn. Námið fer fram í fjar-
námi í gegnum fjarnámsvef Háskólans á Bifröst.
Markmiö með náminu:
- Að nemendur öðlist þekkingu og fcerni í upplýsingatœkni ásamt
grunnþekkingu á bókhaldi.
- Að námið geri nemendur hcefari til að takast á við skrifstofu - eða
rekstrartengd störf í atvinnulífinu.
Fræöslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ
Leiðbeinandi: Nýi ökuskólinn
Tími og dagsetning: Kennt er í samtals 80 kennslustundir
á þremur helgum byrjað 28.-30. september.
Verð kr.: 65.900,-
Vinnuvélanámskeið Nýja ökuskólans gefur rétt til prófs á allar gerðir
og stcerðir vinnuvéla. Námskeiðið er samkvœmt reglugerð
Vinnueftirlits ríkisins, nauðsynlegt til þess að geta gengið undir
verklegt próf á vinnuvélar. Þátttakendur þurfa að vera 17 ára eða
eldri, en almenn ökuréttindi eru forsenda þess að geta verið með
vinnuvélar í umferð utan lokaðra vinnusvceða.
Áhugasömum er bent á að skrá sig nú þegar og síðan verður haft
samband þegar nœg þátttaka hefur náðst. Eldri umsóknir óskast
staðfestar.
UPPELDI SEM VIRKAR, FÆRNI TIL FRAMTÍÐAR
Leiðbeinandi: Sólrún Gunnarsdóttir félagsráðgjafi
Timi og dagsetning: Kennt á miðvikudögum kl. 16:00-18:00
og hefst i lok september
Verð: Kr. 6.000 fyrir einstakling og 9000,- á par
Byggt á bókinni Uppeldisbókin, að byggja upp fcerni til framtíðar
Námskeiðið er sérstaklega hugsað fyrir foreldra barna að skólaaldri
en reynslan hefur sýnt að foreldrar eldri barna geta einnig nýtt margt
af námskeiðinu.
Námskeiðið samanstendur af stuttum frœðsluerindum, verkefnum,
cefingum og umrœðum.
Hvert námskeið er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni 1 viku þá í 2
tíma í senn. Æskilegur fjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 12-16
manns.
ARGENTÍNSKUR TANGÓ
Leiðbeinandi: Daði og Dísa
Tími og dagsetning: 28.-30. september
Verð: 12.000 fyrir parið
Argentínskur tangó er að grunni til göngudans, sem sagt dansinn
stiginn eins og stendur einhvers staðar í lýsingu á íslenskum böllum
gegnum tíðina. Spennandi námskeið og eru hjón og pör hvött til að
skrá sig sem fyrst svo hœgt verði að byrja. Námskeiðið er bœði
œtlað þeim sem hafa sótt námskeið sem og byrjendum.
PHOTOSHOP FRAMHALD
Leiðbeinandi: Daði Harðarson hönnuður
Tími og dagsetning: 2 skipti 3 kennslustundir í senn 29.-30. sept.
Verð: 11.000,-
Photoshop framhaldsnámskeið með upprifjun á grunnnámskeiði eftir
því sem þurfa þykir (byrjendur geta einnig skráð sig á þetta
námskeið).
Áhersla lögð á að fœra hluti frá einni mynd í aðra á sannfœrandi
hátt og fjarlœgja eða fela óœskilega hluti. Unnið verður í lögum (lay-
ers). Birtu- og litastillingar og annað sem þurfa þykir til að fá mynd-
irnar góðar svo sem skerping mynda.
INDVERSK MATARMENNING
Leiðbeinandi: Usha Ananthakrishnan
Timi og dagsetning: 6.-7. október 2007
Námskeiðið er 4 tímar í senn.
Verð kr.: 10.900,-
Usha heldur tvö námskeið í indverskri matreiðslu. Annað námskeiðið
er líkt og fram fór þegar hún var hér fyrir tveimur árum síðan, einn
kjötréttur og nokkrir fylgiréttir. Hitt kvöldið er m.a. cetlað þeim sem
voru á fyrra námskeiðinu og verður áhersla lögð á mismunandi
brauðgerð og grœnmetisrétti. Allir velkomnir.
www. viska.eyjar.is I viska@eyjar.is I Sími 481-1950 og 661-1950
Eyjaf rettír.is - fréttlr milli Frétta
Elskuleg sambýliskona mín, móðir, amma,
systir, tengdamóðir og mágkona .
Þóranna Guðmundsdóttir
lést þann 7 september sl. Hún verður jarð-
sungin frá Landakirkju laugardaginn 15 sept. nk. kl. 14:00
Fyrir hönd aðstandenda:
Daníel Jónsson.
Guðmundur Valgeirsson. Sigurlaug Harðardóttir.
Hörður Þór Harðarson.
Axel Guðmundsson. Hafsteinn Guðmundsson.
Tengdaböm, bamaböm og mágkona
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
ER SPILAFIKN
VANDAMÁL?
G.A. FUNDIR eru haldnir á
fimmtudögum kl. 18.00 og á
laugardögum kl. 11.00
að Heimagötu 24.
Smáar
Stafnhús - Eyrarbakka
Þjónusta fyrir Vestmanneyinga
Geymsla-vöktun-viðgerðir. Erum
að taka á móti núna ferðabílum-
hjólhýsum-o.fl. Verð m2 x 3500 yfir
veturinn. Umbm. í Eyjum er Viðar
Guðmundsson sími 481-2721 og
699-4794. Uppl. og móttaka sími
899-1128.
Kettlingar fást gefins
Kettlingar fást gefins. Á sama
stað er óskað eftir hillusamstæðu.
Sími 857-9316.
Til sölu
2 glerhillur, borðstofuskápur og
nýlegur svefnsófi til sölu á kr.
15.000,- Upplýsingar í símum 481
1037 eða 845 0527.
Einbýlishús til leigu
210 fermetra einbýlishús til leigu
miðsvæðis í Vestmannaeyjum
Um langtímaleigu er að ræða.
Upplýsingar í síma 481 3434 eða
863 3344. Guðmundur Eyjólfsson
Sími 863 3344 - Kt. 110958-6259
gudmundureyjolfs@yahoo.com
Til leigu
3ja herbergja íbúð í Áshamri. 85
fm ásamt bílskúr. Upplýsingar í
síma 820-7103.
Sjónvarpsskápur til sölu
Nýlegur, gegnheill tekk sjón-
varpsskápur, opnanlegur með
góðu hilluplássi til sölu. Verð 25
þúsund. Uppl. í síma 692-1758 og
481-1507.
Bíll til sölu
Til sölu Honda CRV, árg. 2003,
ekinn 48 þús. Uppl. á s. 481-2616
eða 862-2616.
Til sölu
Toyota Yaris, árg. 2005, ekinn 83
þús. Eins á sama stað til sölu
vespa, 125 cc, árg. 2006. Uppl. í
síma 846-2798.
Trillustæði
Trillustæði til sölu eða leigu. Uppl.
í síma 862-2934.
Herbergi til leigu
Til leigu herbergi við Kirkju-
bæjarbraut, með eða án hús-
gagna. Áhugasamir hafi sam-
band. Hildur og Maggi, s. 823-
4870 eða 534-4870.
Einbýlishús til leigu
Skólavegur 24 er til leigu, 4 svefn-
herbergi. Uppl gefur Anna í s.
867-7184.
Vestmannaeyingar, JÞ bílar
bjóða ykkur bílaleigubíla á
verði sem hér segir:
Flokkur A: kr. 4.900
Flokkur B: kr. 5.900
Flokkur C: kr. 6.900
Verð miðast við einn
sólarhring og 200 km.
Einnig sendibílar og flutn-
ingabíll. Aldurstakmark 20
ár. Kreditkort áskilið.
Sæki fólk á Selfossflugvöll.
JÞ BÍLAR
Eyravegi 15 / SELFOSSI
s. 482-4040/892-9612