Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Page 16
ÍFRÉTTIR]
Frétta- og auglysingasími: 481-1300 / Fax 481-1293
Skólavegi 21 Js
ÁFANGA fagnað. Guðjón og eiginkonan, Rósa Guðjónsdóttir, við opnun Heimaeyjar-þjónustuvers.
Guðjón Hjörleifsson breytir um starfsvettvang:
Heimaey ehf. þjónustuver, trygg-
ingar, fasteigna- og skipasala
Guðjón Hjörleifsson, fyrrverandi
bæjarstjóri og alþingismaður,
opnaði á föstudaginn skrifstofu
þar sem hann ætlar að reka
skipa- og fasteignasölu auk þess
sem hann er með umboð fyrir
tryggingafélagið Vörð.
Fyrirtækið kallar hann Heimaey
ehf. - þjónustuver og stefnir
hann að því að starfsmenn verði
þrír til fjórir í framtíðinni.
Hann er til húsa við Strand-
veginn þar sem áður var Bjössa-
bar og Túrninn sem margir muna
eftir. „Ég hef fjárfest í hús-
gögnum sem miðast við fleira
starfsfólk og fjölbreyttari þjón-
ustu því ég ætla mér ekki að vera
hér einn til langframa,“ sagði
Guðjón.
Fyrir eru tvær fasteingasölur í
bænum en Guðjón segir
markaðinn líflegan og pláss sé
fyrir fleiri. Hafi hann vaxið mikið
á síðustu tveimur árum með
hækkandi fasteignaverði. „Ég er
búinn að starfa lengi í pólitíkinni
og henni fylgir áhætta. Ég stend
á tímamótum og við viljum
áfram búa í Vestmannaeyjum. Ég
gat fengið nóg af vinnu í
Reykjavík eins og ég sagði áðan
og góð laun en hér viljum við
vera. Ég lærði fasteignasölu og
því eðlilegt að ég reyni fyrir mér
á þessum vettvangi. I samkeppni
verður maður að koma með eitt-
hvað nýtt og því eiga þeir eftir að
kynnast sem velja mig til að sjá
um fasteignaviðskipti fyrir sig,“
sagði Guðjón og vísar þar til
verðskrárinnar. „Ætla ég að
koma til móts við Vestmanna-
eyinga með lægri söluþóknun.“
Guðjón segir tryggingafélagið
Vörð standa traustum fótum og
sé að vinna á. „Vörður byrjaði
sem lítið tryggingafélag á
Akureyri sem Landsbankinn,
Sparisjóðurinn Byr og SP-fjár-
mögnun keyptu. Grunnurinn er
því traustur og nú þegar ég tek
við eru nokkrir stórir aðilar hér í
Eyjum og nokkuð margir ein-
staklingar sem tryggja hjá Verði.
Það verður mitt verk að auka
hiut Varðar í Vestmannaeyjum og
það verður ekki erfltt. Allt fer
þetta vel saman og ég hlakka til
að hasla mér völl á nýjum
vettvangi,“ sagði Guðjón að
lokum.
SJÓSETNING. Nýr Dala-Rafn VE var sjósettur síðasta föstudag í Póllandi. Hann verður afhentur
fyrir áramót. Sjá nánar á bls. 2.
fANcy
Snyrtistof a A verslun
FOLDAHRAUN 38c
S. 481-3330
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
Lu Digestive kex
veró nú kr 95,-
verð óður kr 129,-
Þykkmjólk vanillu o,sl
verð nú kr 134,-
verð óður kr 158,-
Grand Orange helgarsteik
verð nú kr/kg 1398,-
verð óður kr/kg 1744,-
Búrf. hamborgarar 4stk.