Fréttir - Eyjafréttir - 10.01.2008, Blaðsíða 20
iiíttir
^riífen*3fef0W
*
. *'**■
ÞAÐ var mikið um dýrðir hjá Félagi eldri borgara á mánudaginn þegar félagið fagnaði 20 ára afmæli.
Kristjana Þorfinnsdóttir, formaður félagsins, tók af því tilefni við gjöfum og heillaóskum. Sjá nánar á bls. 9.
Grunnskóli Vm kom hörmulega út úr PISA-rannsókninni:
Mikilvægt að skoða
heildarmyndina
-og leita skýringa og úrbóta einnig út fyrir skólaveggina,
segir formaður skólamálaráðs
Skólamálaráð fjallaði um niðurstöð-
ur PISA rannsóknarinnar og árangur
Grunnskóla Vestmannaeyja á síðasta
fundi en nemendur í Vestmanna-
eyjum komu mjög illa út úr könnun-
inni. Skólamálaráð samþykkti að
fela framkvæmdastjóra skólasviðs
að óska eftir því að Námsmats-
stofnun greini nánar árangur grunn-
skólabarna í Vestmannaeyjum og
einnig var samþykkt að skipa að-
gerðahóp sem fer þegar í stað í
viðræður við menntamálaráðuneyti,
menntastofnanir og skólaþróunar-
samtök um samstarf til að styrkja
kennsluhætti í Grunnskóla Vest-
mannaeyja.
„Þetta er auðvitað áhyggjuefni og
eitthvað sem þarf að skoða vel,”
sagði Páll Marvin Jónsson, for-
maður skólamálaráðs þegar niður-
stöður PISA rannsóknarinnar voru
bomar undir hann.
„Undanfarin tvö ár höfum við gert
miklar endurbætur á stjórnskipu-
laginu. Á síðasta kjörtímabili sam-
einuðum við Hamarsskóla og
Bamaskóla Vestmannaeyja í Grunn-
skóla Vestmannaeyja og nú erum
við að Ijúka aldursskiptingu
starfsstöðvanna. Að því loknu tekur
við innra starfið og höfum við
skipað starfshóp til að meta hvernig
við getum bætt það og hvað þarf til
að koma Grunnskóla Vestmannaeyja
á meðal þeirra bestu. Það er þó
Páll Marvin Jónsson
auðvitað erfitt að skilgreina
nákvæmlega hvað er góður og hvað
er slæmur skóli og getur skólinn
verið góður á einu sviði en slæmur á
öðru. PISA könnunin og samræmd
próf eru þó þeir mælikvarðar sem
þjóðfélagið í heild horfir til og notar
gjarnan sem mælikvarða á það hvort
skólinn sé góður eða slæmur og því
þurfum við að bregðast við þessum
niðurstöðum. Við komum væntan-
lega til með að setja okkur mælanleg
markmið og leita leiða til að ná
þeim markmiðum með því að
endurskipuleggja og efla allt innra
starf skólans.
Páll Marvin sagði ekki nýtt að
grunnskólaböm í Eyjum standi sig
ekki vel í samanburði við aðra staði
á landinu. „Við emm yfirleitt að
skora lágt á samræmdum prófum og
fyrir því geta verið ýmsar ástæður.
Menn hafa til dæmis verið ósáttir
við að í sumum skólum eru lökustu
nemendumir ekki settir í próf og þá
verður meðaltalsútkoman betri.
Samsetning samfélagsins getur líka
haft áhrif og þá með tilliti til
menntunar forelda. Það er því
mikilvægt að skoða heildarmyndina
og leita skýringa og úrbóta einnig út
fyrir skólaveggina. Foreldrar leika
auðvitað eitt stærsta hlutverkið í
þessu því áhugi og vilji nemandans
byggir að miklu leyti á þeirri
hvatningu sem hann fær heima fyrir.
Með þessum orðum er ég engan
veginn að fría skólann af ábyrgð en
það er mikilvægt að foreldrar taki
virkan þátt í menntun bama sinna og
að heimili og skóli séu samstíga um
markmið og mikilvægi námsins,”
sagði Páll Marvin en hann á sjálfur
sæti í starfshópnum sem fer yfir og
metur stöðuna í Eyjum.
Jafnframt er búið að tilnefna Höllu
Andersen, Sigurhönnu Friðþórsdótt-
ur, Sigurlás Þorleifsson og Ernu
Jóhannesdóttur í starfshópinn.
Nánar á bls. 6.
VIKUTILBOÐ
10. -16. jan
Malta / Hrisbitar
verá nú kr 199,-
veré aáur kr 259,-
Nóo Ávaxta töggur 200 9,
verá nú kr 125,-
verá dáur kr 149,-
Mandarínur
verá nú kr/kg 189,-
verá úáur kr/kg 298,-
Vinber rauð
verá nú kr/kg 259,-
verá óáur kr/kg 889,-
Matarkex
verá nú kr 199/"
verá óáur kr 238,-
Saltkringlur isog
verá nú kr 99,-
verá úáur kr 119,-