Fréttir - Eyjafréttir - 20.03.2008, Qupperneq 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 20. mars 2008
Vissum að þetta var
krefjandi verk
-sem gæti snúist á móti okkur ef við stæðum okkur ekki. Aftur á móti hafa ýmsir
rekstrarþættir komið okkur á óvart, s.s. ástand og slit á skipinu og búnaði þess, segir
Guðmundur Pedersen, rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskip í viðtali við Ómar Garðarsson
HÓmar Garðarsson
omar@ eyjafrettir.. is
Það er ekki auðvelt verkefni að þjóna
Eyjamönnum þegar samgöngur eru annars
vegar. Skýringin er einföld, þeir hafa aðeins
um tvo kosti að velja til að komast til og frá
Eyjum, að sigla eða fljúga. Þeir sem hafa
þjónað Eyjamönnum á þessu sviði vita að
þeir eru harðir húsbændur og með auknum
kröfum um greiðari samgöngur hefur
athyglin beinst enn frekar að Herjólfí. Þegar
núverandi skip kom um mitt sumar 1992
þótti það hið glæsilegasta skip. Því verður
ekki á móti mælt að Herjólfur hefur þjónað
Eyjamönnum vel og með árunum hefur
þjónustan batnað með fleiri ferðum. Frá árinu
1976 hefur ferðunum fjölgað úr 6 í 14 á viku
allan ársins hring. En nú er mesti glansinn
farinn af skipinu og að öllu eðlilegu hefði átt
að vera komið nýtt skip fyrir þremur til
fjórum árum.
Breytingar á rekstrarformi urðu þegar rekst-
urinn var boðinn út og Samskip hreppti
hnossið en heimamenn, sem rekið höfðu
Herjólf frá árinu 1976, sátu eftir með sárt
ennið. Aftur var reksturinn boðinn út og nú
var það Eimskip sem hafði betur í keppninni
við Samskip. Tók félagið við rekstrinum um
áramótin 2005/2006.
Eimskip kom inn með glæsibrag og vildi
skapa sér jákvætt viðhorf í Eyjum og tókst
það.
Til að fá reynslu Eimskips af rekstri
Herjólfs og samskiptum þeirra við Eyjamenn
ræddu Fréttir við Guðmund Pedersen
rekstrarstjóra.
Einnig er komið inn á útboð á smíði og
rekstri ferju í Landeyjarhöfn en Eimskip er
meðal þeirra sem boðið var að taka þátt í
útboðinu. Meðal þess sem kemur fram er að
Guðmundur segir ólíklegt að tímamörk
standist en gert er ráð fyrir að siglingar með
nýrri ferju hefjist um mitt ár 2010.
Átti að vera góð kynning fyrir
félagið
Þegar Guðmundur er spurður að því hvaða
hag Eimskip hafi séð í að bjóða í rekstur
Herjólfs segir hann að það hafi fyrst og
fremst verið tvær ástæður, rekstrarlegar og
góð kynning fyrir félagið.
Hefur það gengið eftir? „Ég tel að kynn-
ingarlega þá hafi það gengið ágætlega eftir,
en hvað varðar reksturinn, þá hafa markmið
ekki gengið eftir og það eru nokkrir
samverkandi þættir sem valda því,“ sagði
Guðmundur.
Þegar hann er spurður hvort eitthvað hafi
komið þeim á óvart segir hann að svo hafi
ekki verið hvað varðar form rekstursins né
annað í honum. „Við vissum að þetta var
krefjandi verk sem gæti snúist á móti okkur
ef við stæðum okkur ekki. Aftur á móti hafa
ýmsir rekstrarþættir komið okkur á óvart, s.s.
ástand og slit á skipinu og búnaði þess.“
Eruð þið réttu megin við strikið í rekstr-
inum? „Nei, við erum ekki réttu megin, því
miður. Ástæður þess eru m.a. eftirfarandi.
Olíuverð hefur stigið verulega eins og öllum
er kunnugt og þó svo að við fáum rekstrar-
styrkinn verðbættan árlega ásamt farmiða-
verði, m.a. eftir þróun olíuverðs, þá erum við
ávallt ári á eftir hvað það varðar. Þetta er
hlutur sem við reiknuðum að sjálfsögðu með
en þegar breytingar eru eins „drastiskar" eins
og verið hefur, þá er það verulega íþyngjandi
fyrir reksturinn. Síðan hefur ástand skips og
véla verið verra en við reiknuðum með.
Einnig hefur það komið á óvart að árin
áður en við tókum við rekstrinum hafði verið
stígandi frá ári til árs í farþegafjölda og
flutningum, eða um 5% á ári. Þessi þróun
stöðvaðist 2006 og við erum frekar að sjá
fækkun í dag.“
Skiljum afstöðu fólks
Nú er Herjólfur kominn til ára sinna og fólk
orðið gagnrýnið á aðstöðu um borð. Finnið
þið fyrir því? „Vissulega gerum við það og
við skiljum það vel. Það eru hlutir þarna um
borð sem ætti að vera búið að endurnýja. En
svo fólk skilji hlutverk okkar sem rekstrar-
aðila, þá er það okkar að halda skipi og
búnaði í lagi að frádregnu því sliti sem
verður á rekstrartímanum. Við eigum til
dæmis ekki að endurnýja stóla af því að
áklæði er orðið ljótt. Ég tel okkur hafa staðið
okkur ágætlega í því. T.d. fórum við strax í
að skipta út öllum rúmdýnum sem voru ekki
boðlegar og setja utan um þær áklæði eins og
sjúkrahúsin nota og hleypa ekki vökva inn í
dýnuna, ásamt ýmsum smærri hlutum. En ég
vona að það verði hægt að gera eitthvað
meira þarna á næstunni. 1 samvinnu við
Vegagerðina og bæjarstjóm Vestmannaeyja
höfum nýverðið farið yfir þau mál til að sjá
hvað hægt sé að gera.“
Ekki gamlir bíóstólar
Hver ákvað að setja gamla bíóstóla í sjón-
varpssalinn?
„Ákvörðun um að skipta út stólunum í sjón-
varpssölunum var Vegagerðarinnar og á
kostnað hennar. Þetta munu samt ekki vera
bíóstólar því samskonar stólar eru notaðir í
ferjum erlendis og í Breiðafjarðarferjunni
Baldri. Þetta eru að vísu ekki stólar sem
hægt er að halla eins og þeir sem voru fyrir í
skipinu. Til gamans má geta þess, að Iág-
gjaldaflugfélög eru farin að setja fasta stóla í
nýjustu flugvélar sínar.
Ég vil bæta því við, að umgengni farþega
um skipið mætti vera betri. Sem dæmi þá
hafa verið unnin skemmdarverk í klefum og á
sætum eins og átti hefur sér stað í sjónvarps-
salnum. Áhöfnin hefur oft minnst á slæma
umgengni og þá sérstaklega barna og ung-
menna sem eru í hópferðum, sem er miður.
Við höfum m.a. tekið það mál upp við
íþróttafélögin.
Guðmundur segir að ýmislegt hafi verið gert
til að flikka upp á innréttingar í skipinu en
meira verður gert í þeim efnum. „Það eru
helst gólfefni og áklæði sem þarf að sinna.
Búið er að skipta um gólfdúka á efra dekki
og stiga, búið að endumýja áklæði stóla í efri
sal og vonandi sjáum við eitthvað gerast á
veitingahæðinni fljótlega."
Baráttan við fiskilyktina
Margir kvarta yfir fiskilykt í skipinu. Er ein-
hver leið að koma í veg fyrir hana?
„Þetta er mál sem við hefðum átt að vera
búnir að Iaga fyrr, en það er ekki svo einfalt.
Það eru tvær leiðir að því markmiði. Sú fyrri
er að skylda alla sem senda fisk í körum að
hafa þau þétt. Það er í raun þannig í reglum
Matvælastofnunar, áður Fiskistofu, að öll kör
skulu vera þétt og halda vatni. Ef menn færu
eftir því, þá mundi þetta líta öðruvísi út. En
af einhverjum ástæðum þá er eitthvað í ferli
þessarar vinnslu sem veldur því að tapparnir
hverfa.
Þegar ég haf rætt þetta mál við sendendur,
þá er því borið við að þegar körin fara til
vissra verkenda sem eru í annarri vinnslu, þá
taki þeir tappana úr og þeir hverfi.
Við höfum verið að reyna að þétta vagnana
og setja á þá affallslögn sem hægt er að
tengja við niðurfall í skipinu, en það eru ann-
markar á því. Nú er verið að smíða fyrir
okkur nýja vagna í Finnlandi og sá fyrsti er
væntanlegur fljótlega. Þeir eru þéttir og með
eigin safntank fyrir affallsvatn auk þess að
vera með frystikerfi, hillubúnað og eru
sérstaklega styrktir til ferjufiutninga á N-
Atlantshafi. Ég held að Samskip sé að gera
ágæta hluti í þessu líka. Vonandi fer þetta að
heyra sögunni til,“ sagði Guðmundur.
Öryggi í fyrirrúmi
„Já, vissulega," segir Guðmundur þegar hann
er spurður að því hvort þeir fái mikið af
kvörtunum þegar ferðir falla niður vegna
veðurs. „En sem betur fer er meira um að
okkur sé hælt fyrir að fara ekki í verstu
veðrum. Það er alltaf þannig, að kvartanir
um slíkt tengjast því að einhver hefur ekki
getað komist þegar mikið liggur við, sem er
jú vel skiljanlegt. En þetta eru ákvarðanir
sem skipstjóri tekur og öryggi farþega, áhafn-
ar og skips eru einu atriðin sem á og er farið
eftir við slíkar ákvarðanir. Þetta er erfið
siglingaleið, það vita Eyjamenn manna best
en við erum með einhverja vönustu og
færustu skipstjóra og sjómenn sem finnast á
Islandi í þessum störfum i dag. En mat á
aðstæðum er ólíkt eftir því hver á í hlut. Til
þessa hefur ekki verið felld niður ferð sem
færa má rök fyrir að hefði átt að fara, það er
allavega mitt mat.“
Minna skammaðir núna
Þegar kvartað er yfir hækkunum á gjaldskrá,
hvem á þá að skamma? „Við fengum að finna
fyrir því aðeins í fyrra en minna núna. Sumir
hafa ekki áttað sig á að hækkun fargjalda er
hluti af samningi okkar við Vegagerðina.
Hækkunarstuðullinn er eins upp byggður og
rekstrarstyrkurinn. Þetta var ekki þannig
áður en verkkaupi breytti þessu í síðasta
útboði. Þetta er því föst árleg hækkun eða
lækkun eftir atvikum í samningi okkar,
bundið ákveðnum vísitölum, olíuverði og
hafnargjöldum."
Fenguð þið viðbrögð vegna breytinga á
stöðum yfirmanna á Herjólfi?
„Ekki svo mikið. Við lítum á skipverja á
Herjólfi sem hlula af okkar stafsmönnum hjá
Eimskip og til jafns við aðra. Þar af leiðandi
koma upp aðstæður sem færa þarf menn til í
starfi, oft er það tímabundið. Hafsteinn
Hafsteinsson skipstjóri kemur nú til starfa
sem þriðji skipstjóri. Væntanlega verður það
tímabundið. Við höfum einnig boðið
nokkrum skipverjum á Herjólfi að fara í
afleysingar á millilandaskipum okkar, sem
einhverjir hafa þegið. Hafsteinn er með yfir
40 ára starfsreynslu hjá Eimskip."
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur hlutverk í
samningi ykkar, hvemig hefur það gengip?
„Ég hef bara gott eitt um það að segja. Ég
hef átt mjög góð samskipti og samráð við
þessa aðila, sérstaklega bæjarstjóra. Það á
líka við um fyrri bæjarstjóra. Állar
ákvarðanir um áætlun og breytingu á henni
þarf m.a. að bera undir bæjarstjórn í
Vestmannaeyjum.
Ólíklegt að tímamörk standist
Eimskip er í hópi fjögurra aðila sem valdir
voru til að taka þátt í útboði um smíði og
rekstur ferju sem ganga á í Landeyjahöfn.
Hvemig lýst ykkur á ferjuhöfn í Landeyja-
sandi? „Ég vil á þessu stigi sem minnst um
það segja. Ef vel til tekst og forsendur stand-
ast, þá á þessi breyting að auðvelda samgöng-
ur, þó er spurning um vetrartímann.“
En er raunhæft að reikna með að nýtt skip
verði tilbúið um mitt ár 2010? „Allnokkur
tími er þar til tilkynnt verður um niðurstöðu
útboðsins og pöntun á smíði getur átt sér
stað. Mér vitrari menn um þessa hluti telja
að það sé afar ólíklegt að þessi tímamörk sem
sett hafa verið geti staðist."
Er eitthvað til í því að þið séuð að hugleiða
að draga ykkur út úr tilboðum í reksturinn í
Landeyjahöfn?
„Get ekki tjáð mig um það.“
Hvaða möguleika sjáið þið með tilkomu
Landeyjahafnar, munið þið beina flutningi frá
Evrópu um Vestmannaeyjar og láta flytja
vörur sjó- og landleiðina til Reykjavíkur?
„Þetta eru hlutir sem ekki er farið að hugleiða
hjá okkur,“ sagði Guðmundur að lokum.