Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2008, Side 13
Fréttir / Fimmtudagur 8. maí 2008
13
Meistaraflokkur ÍBV sumarið 2008.
Fréttir kynna meistaraflokk karla - Heimir Hallgrímsson, þjálfari meistaraflokks karla:
Vona svo sannarlega að við
spilum í efstu deild á næsta ári
Fyrirliðastaðan kom Garner á óvart
Matt Garner var nýverið gerður að fyrirliða Eyja-
manna en hann er einn leikreyndasti leikmaður
liðsins og hefur spilað 51 leik fyrir IBV og skorað í
þeim fimm mörk. Matt kom frá Crewe árið 2005 og
hefur síðan þá átt við svolítil meiðslavandamál sð
stríða en þegar hann hefur verið heill hefur hann
átt fast sæti í byrjunarliði IBV.
Matt er bakvörður en getur einnig spilað sem
miðvörður, hann hefur mikinn leikskilning og er
frábær varnarmaður. Það kom honum þó á óvart að
vera valinn fyrirliði. „Þetta kom mér mikið á óvart
því ég bjóst við því að Heimir myndi velja heima-
mann eða íslenskan leikmann. Eg vissi það samt
sjálfur að ef hann myndi bjóða mér fyrirliðabandið
þá myndi ég aldrei hafna því. Eg er mjög stoltur af
nafnbótinni og mun reyna mitt allra besta til að
hjálpa iiðinu í sumar.“
Eyjamönnum hefur verið spáð góðu gengi í sumar
en telur Matt liðið vera nógu sterkt til að fara alla
leið. „Ég tel að við eigum möguleika, við höfum
misst góða leikmenn en þessi leikmannahópur sem
er núna þekkist vel og það vilja allir gera sitt besta.
Við vorum grátlega nálægt því að fara upp á sein-
asta tímabili og við munum læra af mistökunum
sem við gerðum þá.“
ÍBV er með ungt lið en inn á milli leynast miklir
reynsluboltar. Hvaða leikmenn telur Matt að muni
blómstra í sumar. „Klárlcga Atli Heimisson, ef við
gefum okkur það að hann spili heilt tímabil þá hef
ég trú á því að hann endi markahæstur í dcildinni.
Hann er í góðu formi og er metnaðarfullur leik-
maður. Einnig eru leikmenn eins og Þórarinn sem
er í mjög góðu formi og Bjarni Rúnar sem er í sínu
besta formi.“
Eyjamenn standa ekki cinir að baráttunni um sæti
í efstu deild að ári en hvaða lið eru það sem munu
veita ÍBV kcppni. „Það eru að mínu mati Víkingur,
Selfoss og Stjarnan. Stjarnan hefur eytt miklum
peningum í sitt lið svo það verður gaman að sjá
hvort þeir muni smella saman. Ég tel þó að Selfoss
muni koma á óvart í sumar en við höfum spilað við
þá og vitum alveg við hverju má búast frá þeim.“
Matt hefur lengi átt við erfið meiðsl að stríða en
núna er hann í hörkuformi. „Ég held að ég sé í
mínu besta formi síðan ég byrjaði að spila hér. Ég
hef ekki átt við nein meiðsl að stríða á undirbún-
ingstímabilinu svo ég gat einbeitt mér að því að æfa
vel og það hefur skilað sér.“
Eyjamenn hafa fengið til sín fjóra nýja leikmenn
fyrir sumarið en hvaða álit hefur Matt á þcim.
„Þetta eru fjórir mjög góðir leikmenn, Albert er
gífurlega reynslumikill leikmaður sem hefur einnig
frábæran karakter og hjálpar leikmönnum að koma
sér í réttan gír fyrir leik og mcðan á leik stendur.
Hvað varðar Brasilíumennina þá byrjuðu þeir báðir
á því að mciðast og þá hélt ég að þeir væru kannski
ekki tilbúnir fyrir íslenskan fótbolta en Italo sýndi
það í sínum fyrsta leik í deildinni að hann er alveg
tilbúinn.“
Spurningin sem brennur þá á allra vörum er sú
hvort ÍBV fari upp í lok sumars, Matt er ekki lengi
að svara því. „Já það held ég, ég mun allavegana
gera mitt besta til að tryggja það.“
Viðtöl
Elíért'Schéving
Ellert@ eyjafrettir.. is
Leikmenn ÍBV hófu leik í íslands-
mótinu á mánudaginn seinasta gegn
Leikni, Eyjamenn komu vel út úr
þeirri viðureign og unnu 2:0. En
hvað er annars að frétta af liðinu?
Fréttir fóru á stjá og spurðu þjálfara
liðsins og fyrirliða um hvemig
þeim litist á komandi tímabil,
einnig fengum við álit annarra
þjálfara á sumrinu framundan.
Hvernig líst þér á komandi tímabil?
-Ég verð að viðurkenna að ég hef
ekki séð nógu mörg lið í fyrstu
deild til að mynda mér skoðun á
því hver staða okkar er. Hins vegar
tel ég að við séum tilbúnari í ár
heldur en við vorum í fyrra.
Astæðan felst m.a. í tveimur þátt-
um. I fyrsta lagi er dreifmg leik-
manna í stöður á vellinum jafnari
en í upphafi síðasta tfmabils þegar
við fómm af stað án framherja og
af þeim sökum gekk okkur herfi-
lega að skora.
Hin ástæðan er að við höfum
haldið áfram þeirri vinnu sem
strákamir lögðu á sig síðasta tíma-
bil. Ég held að allir í liðinu viti
sína stöðu innan liðsins og allir vita
til hvers er ætlast af þeim. Það
hefur orðið mikil breyting á leik-
mannahópi ÍBV síðustu ár. Ef við
ætlum að ná árangri þá verðum við
að ná stöðugleika i leikmanna-
hópnum svo hægt sé að byggja upp
lið til framtíðar sem virkar.
Hvemig var undirbúningnum
háttað?
-Hann var frekar gamaldags. Hlaup,
lyftingar og innanhússbolti. Eins
og allir vita og ég er orðinn leiður á
að tala um hvað við emm langt á
eftir öðmm í aðstöðu til knatt-
spymuiðkunar. Loforðin um
framkvæmdir em góð en eitthvað
stendur á því að hefja verkið. Ég
vona og trúi því að þetta séu ekki
innantóm loforð. Veturinn var
mjög erfiður við komumst ekkert á
malarvöllinn við Löngulág vegna
hvassviðris og snjókomu fyrr en
um páska. Grasið var að sama
skapi lengi að koma til og því
fómm við í vetur fleiri ferðir upp á
land í æfíngaleiki og strákarnir eiga
hrós skilið hversu miklum tíma þeir
eyddu upp á fastalandinu fyrir
félagið sitt.
Hvers vœntirðu af liðinu?
Ég ætlast til þess að menn leggi sig
fram í öllum leikjum. Ef leikmenn
gera það höfum við nógu öflugan
mannskap til að berjast um sæti í
efstu deild að ári. Ég vænti þess að
nokkrir ungir strákar noti þetta
sumar vel og taki framfömm, þeir
hafa fengið næg tækifæri í vetur og
hafa á köflum sýnt ágæta takta. A
sama tíma ætlast ég til þess að eldri
og leikreyndari leikmennimir haldi
stöðugleika í sumar og stígi upp
þegar á reynir.
Finnurðu fyrir einhverri pressufrá
félaginu, áhangendum ?
-Að sjálfsögðu em áhangendur sem
eru að springa úr áhuga, það em
þeir sem vilja árangur og ekkert
annað. Ég vil helst umgangast fólk
sem hefur metnað til að ná árangri.
I þannig hópi er alltaf pressa. Ég
ætla ekki að segja að ég þoli alltaf
pressuna og taki tapi með jafnaðar-
geði, íris myndi sennilega ekki
samþykkja það. Pressuna set ég þó
mest á sjálfan mig því ég er að
þjálfa keppnisíþrótt og ég vil vinna
þær keppnir sem ég tek þátt í.
Hvaða leikmenn munu blómstra?
-Það er alltaf erfitt að spá um
hverjir munu spila vel í sumar en
þessa stundina em leikmenn eins
og Matt Gamer og Bjami Rúnar í
feiknaformi og hafa verið að spila
vel í öllum æfingaleikjunum. Ég
vænti þess að fleiri leikmenn eigi
eftir að sýna það í sumar hversu
góðir þeir em. Það em margir sem
lofa góðu og við erum, 7,9,13,
betur staddir hvað varðar meiðsli
en í fyrra. Þannig að nú bíð ég
spenntur eftir því hverjir stíga upp,
það em margir sem lofa góðu.
Nýr fyrirliði?
-Gamer hefur verið leiðtogi liðsins
allt undirbúningstímabilið. Hann
steig upp þegar margir lykilmenn
vom í meiðslum og lætur alla leik-
menn heyra það ef þeir em ekki að
gera það sem talað er um. Ég var í
vafa að velja „útlending" sem fyrir-
liða ÍBV, sem er sennilega sá fyrsti
í sögu ÍBV, en hann nýtur mikillar
virðingar innan hópsins og er góður
félagi þannig að hann er verðugur
þessarar útnefningar.
Gamer er búinn að eiga heima hér
í fjögur ár, hefur stofnað fjölskyldu
í Éyjum og er að hefja sitt fjórða
tímabil með ÍBV. Ég man ekki for-
múluna hjá Eygló Harðar um það
hvenær menn teldust Eyjamenn en
Garner skorar að minnsta kosti
mjög hátt í þeirri formúlu.
Hvaða lið verða í baráttunni?
-Það er ekkert lið í deildinni með
afburða leikmannahóp. Ekkert lið í
fyrstu deildinni hefur sýnt það í
æfingaleikjunum að þau séu betri
eða verri en önnur. Ég held að
liðin eigi eftir að reyta stig hvert af
öðm. Víkingunum er spáð efsta
sæti af öllum, sem er ekki óeðlilegt
enda komu þeir úr úrvalsdeidinni.
Þeim liðum er sjálfkrafa spáð besta
genginu. Það geta mörg lið
blandað sér í baráttuna og það
verður ekki fyrr en eftir að helm-
ingur mótsins hefur verið leikinn að
ég fari að spá einhverjum í bar-
áttuna um efstu tvö sætin.
Spilar ÍBV í efstu deild nœsta
sumar?
-ÍBV íþróttafélag og Vestmanna-
eyjar þurfa á því að halda að hafa
a.m.k. eitt lið að keppa í deild
þeirra bestu. Við höfum ekki efni á
því að spila í 1. deildinni til lengd-
ar. Leikmenn með metnað vilja
spila meðal þeirra bestu og ferða-
kostnaður í þessari deild er
brjálaður fyrir ÍBV (tveir leikir á
Akureyri, einn á Eskifirði, Ólafsvík
og Siglufirði á meðan úrvalsdeildin
er leikin á Reykjavíkursvæðinu).
KSÍ og EUFA, Landsbankinn setja
mikinn pening til liðanna í efstu
deild og til yngri flokka þeirra fé-
laga. Fyrir utan sjónvarpsréttar-
pening og alla þá auglýsingu sem
félagið fengi ef það kæmist í efstu
deild. Ég tel að með því að komast
upp um deild myndu sparast ca. 10
milljónir. Allar deildir hagnast á
jákvæðri umræðu um ÍBV.
Styrktaraðilar sjá lítinn hagnað í
því að styrkja lið sem fær enga
umíjöllun. Knattspyma er sú fþrótt
sem fær langmesta umfjöllun í
öllum fjölmiðlum. Það lætur því
nærri að ÍBV íþróttafélag leggi sinn
metnað í það að eiga lið í þeirri
deild sem fær mesta umfjöllun.
Mín skoðun er skýr hvar IBV á
heima í knattspymu og það er
meðal þeirra bestu. Því vona ég
svo sannarlega að við spilum í efstu
deild á næsta ári.