Fréttir - Eyjafréttir - 05.06.2008, Síða 1
35. árg. I 23. tbl. I Vestmannaeyjum 5.júní 2008 I Verð kx. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
SJOMANNAHELGIN Sjómannadagurinn var hátíðlegur haldinn um síðustu helgi og væri nær að tala um sjómannahelgi
en dag því dagskráin hófst á föstudag og lauk ekki fyrr en á sunnudagskvöld með fjölbreyttum tónleikum í Höllinni. Á laugardeginum
var hefðbundin dagskrá við Friðarhöfn í mjög góðu veðri og var aðsókn samkvæmt því.
Ekki allt mér að skapi
-segir Elliði Vignisson um þá ákvörðun samgönguráðherra að ríkið ætlar
sjálft að bjóða út smíði á ferju í Landeyjahöfn - Fagna því þó aði stefnt sé
að því að ný og öflug ferja hefji siglingar í Landeyjahöfn 1. júlí 2010
Rfkisstjómin fundaði á föstudag og
tók fyrir ferjumál Vestmannaeyinga
en niðurstöðu hafði verið beðið með
nokkurri eftirvæntingu, þ.e. hvort
ríkið tæki tilboði Vinnslustöðvar og
Vestmannaeyjabæjar um smíði á
nýrri ferju sem sigldi í Land-
eyjahöfn. I yfirlýsingu frá sam-
gönguráðuneytinu segir að ríkis-
stjórnin hafi að tillögu samgöngu-
ráðherra ákveðið að falla frá
hugmyndum um smíði Vestmanna-
eyjaferju í einkaframkvæmd. I stað
þess verði smíði ferju boðin út með
hefðbundnum hætti og í framhaldi
af því verði reksturinn boðinn út sér.
I tilkynningunni kemur fram að
samgönguráðherra fól Siglinga-
stofnun Islands að annast útboð í
einkaframkvæmd á ferjusiglingum
milli Vestmannaeyja og fyrirhug-
aðrar Landeyjahafnar en verktaki
skyldi byggja ferju og annast rekstur
hennar í 15 ár.
„Ég fagna því fyrst og fremst að
eftir sem áður skuli stefnt að þvf að
ný og öflug ferja hefji siglingar í
Landeyjahöfn 1. júlí 2010,“ segir
Elliði Vignisson, bæjarstjóri, um
stöðuna sem upp er komin.
„Það og að vel sé að verki staðið er
það sem skiptir okkur mikið meiru
en hver á ferjuna. Rétt er að halda
því til haga að Vestmannaeyjabær
varaði á sínum tíma við þeirri leið
sem ríkið valdi að fara, hvað varðar
útboð á eignarhaldi ferjunnar. I
greinargerð, sem ég sendi sam-
gönguráðherra og stýrihópnum,
dagsettri 24. okt 2007, var mælt
gegn því að farin yrði sú leið að fara
í einkaframkvæmd með smíði og
hönnun ferjunnar en engu að síður
var sú leið valin. Við Eyjamenn
höfum oft fundið sterklega fyrir
þeim óþægindum sem fylgja því að
hafa lítið sem ekkert forræði yfir
samögnum og því völdum við að
stuðla að þátttöku heimamanna í
útboðinu. Fyrst eignarhaldið átti að
vera á höndum annars en ríkisins þá
vildum við að sjálfsögðu að það
lægi hjá Eyjamönnum sjálfum.
Hvergi var til sparað og mikill metn-
aður lagður í vinnuna og vil ég nota
þetta tækifæri til að færa þeim sem
að tilboðinu komu kærar þakkir
fyrir vel unnin störf. Auðvitað er
sárt að sitja svo eftir með tugmillj-
óna kostnað vegna útboðsins sem
við í upphafi vöruðum við og
lögðumst gegn.
Við búum hins vegar að þeirri
vinnu í hagsmunagæslunni í
framhaldinu, það held ég að sé alveg
ljóst. Ég hef einnig ekki dregið
fjöður yfir að ýmislegt í verkferlum
ríkisins seinustu daga hefur ekki
verið mér að skapi. Það eru hinsve-
gar öldur sem þegar hafa skollið á
ströndinni og nú skiptir mestu máli
að horfa fram á veginn og fá tafar-
laust upplýsingar um það hver aðko-
ma Vestmannaeyjabæjar verður að
því ferli sem nú fer í gang. Sjálfur
hef ég lagt til að mynduð verði
smíðanefnd sem fari fyrir hönnun
og smíði ferjunnar og sé þannig
stýrihópnum innan handar. Eðlilegt
væri að heimamenn ættu a.m.k. tvo
fulltrúa í sikri nefnd. Við stefnum
ótrauð að því að 1. júlí 2010 hefjist
nýtt tímabil í samgöngusögu
Vestmannaeyja þar sem samgöngur
á sjó verða ekki lengur sá flöskuháls
í byggðarþróun sem þær hafa verið
seinustu áratugi. Um leið og að
öflugri hagsmunagæslu verður sinnt
ætlar Vestmannaeyjabær sér áfram
að viðhafa vönduð vinnubrögð í öllu
sem snýr að samgöngum og stefna
að góðu samstarfi við fulltrúa rík-
isins þar að lútandi. Höfnun tilboðs
okkar breytir engu þar um.“
Hallgrímur
í 2. sæti í
Hafnarfírði
Einn Vestmannaeyingur tók þátt í
fyrsta stigamóti unglinga í golfi á
þessu ári, Kaupþingsmótaröðinni,
en það mót var haldið á Hval-
eyrarvellinum í Hafnarfirði á
laugardag.
Það var Hallgrímur Júlíusson
yngri, sem varð einmitt Islands-
meistari í sínum flokki í fyrra.
Hallgrímur, sem keppir í flokki
13-14 ára stráka, varð í 2. sæti í
þessu móti, á 79 höggum, aðeins
einu höggi á eftir sigurveg-
aranum, heimamanninum ísak
Jasonarsyni. Hallgrímur hefur æft
vel það sem af er árinu og þessi
árangur sýnir að hann er líklegur
til frekari afreka í sumar.
Arnsteinn
Ingi ráðinn
Amsteinn Ingi Jóhannsson hefur
verið ráðinn í afleysingastöðu
forstöðumanns íþróttamiðstöðvar.
Jón Pétursson, framkvæmdar-
stjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
Vestmannaeyjabæjar, sagði að
fimm hefðu sótt um stöðuna en
um tímabundna ráðningu væri að
ræða vegna veikindaleyfis for-
stöðumanns.
Þeir sem sóttu um, auk Arnsteins
Inga, voru Helgi Einarsson, Sig-
hvatur Bjarnason, Jóhanna Jó-
hannsdóttir og Sveinbjörn Guð-
mundsson. Jón sagði ráðninguna
ekki hafa verið tekna fyrir á fundi
menningar- og tómstundaráðs
heldur sá hann um ráðningu í
stöðuna.
Ekki var farið fram á kröfur um
menntun í auglýsingu enda um
tímabundna ráðningu að ræða, að
því er kemur fram hjá Jóni. Segir
hann ákvörðunina tekna með til-
liti til upplýsinga sem hann hefur
og í samráði við núverandi for-
stöðumann.
Alvarlegt slys
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
LIF sótti slasaðan sjómann um
borð í Drangavík VE 80 í gær-
kvöldi og flutti á Borgarspítala
Háskólasjúkrahús í Reykjavík.
Birgir Stefánsson, stýrimaður á
Drangavík, sagði skipverjann hafa
klemmst illa á keðju og tók fram-
an af tveimur fingrum vinstri
handar, vísifingri og löngutöng.
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA
VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR
amar
VÉLA- OG BI'LAVERKSTÆÐI
ÞJÓNUSTUAÐILI TOYOT/: í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...;
FLATIR2I / S.481-1216 / GSM.864-4616