Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Síða 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20 '.-Æ ^ ~ w ’ u jj
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I 24. tbl. I Vestmannaeyjum 12.júní 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
ENGINN er slippurinn í Vestmannaeyjum og því varð að taka Létti, léttabát hafnarinnar, upp á bryggju til yfirhalningar. Hann hefur þjónað
höfninni í bráðum heila öld en þetta er örugglega í fyrsta skiptið sem taka þarf hann upp á bryggju.
Húsnæðismálin ættu að
skýrast á næstu vikum
-segir Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður Þekkingarseturs Vestmannaeyja - Meðal verk-
efna, sem nú er unnið að, eru þurrkun á loðnuhrognum, tilraunaveiðar á makríl og
markaðssetning á reyktum fiski og harðfíski. Þá eru hvalarannsóknir á dagskrá í júlí
Páll Marvin Jónsson, forstöðumaður
Þekkingarseturs Vestmannaeyja,
segir að enn hafí ekki fengist niður-
staða í húsnæðismálum setursins en
sú niðurstaða ætti að liggja fyrir á
næstu vikum. Páll Marvin segir allt
á fullu í Hvíta húsinu við Strand-
veginn, fólk sé að vinna að ýmsum
verkefnum sem styrkir hafi fengist
til.
„Mér telst til að um tuttugu og þrfr
starfsmenn komi til með að vinna að
rannsóknarverkefnum sumarsins og
eru verkefnin af ýmsum toga, allt frá
því að fjalla um gömul handrit sem
tilheyra menningarsögu Vestmanna-
eyja og til rannsókna á nýtingu
framandi uppsjávarfíska við Islands-
strendur," sagði Páll Marvin.
Lundaverkefnið er á fullu en því
stjómar Náttúmstofa Suðurlands og
að verkefninu koma tveir masters-
nemar frá Háskóla íslands, ásamt
einum sjálfboðaliða frá Frakklandi
sem mun dvelja hér í sumar. Haf-
rannsóknastofnun er að undirbúa
rannsóknir á síli en áætlað er að þær
hefjist um miðjan mánuðinn með
kortlagningu á búsvæði sílisins.
Köfunarverkefnið er í vinnslu, og er
áformað að Köfunarskólinn taki til
starfa í haust en búið er að auglýsa
haustnámskeið í samstarfi við Fram-
haldsskólann í Vestmannaeyjum.
„Það hafa verið góð viðbrögð við
því, fólki fínnst þetta greinilega
spennandi kostur," segir Páll Mar-
vin.^
Afram er unnið að verkefninu
Handritin heim og að sögn Páls
Marvins kemur stúlka frá Banda-
ríkjunum á Fulbright styrk til vinnu
við það verkefni og önnur verkefni
sem tengjast menningarsögu Vest-
mannaeyja.
Verkefni sem tengjast sjó og sjávar-
útvegi eru sem fyrr fyrirferðarmikil.
Páll Marvin segir að í júlí muni hefj-
ast rannsóknir á háhymingum hér
við Eyjar og líklega fimm manns
sem hingað komi vegna þeirra, tveir
sérfræðingar og þrír nemendur, allt
útlendingar, en verkefninu er stýrt af
Háskólasetrinu á Húsavík.
„Þá er unnið að rannsóknum á
humri, en í sumar er fyrirhugað að
gera samanburðarrannsóknir á veið-
um með gildrum og trolli. Sigmar
Valur Hjartarson leiðir þessa vinnu
hér í húsinu en að verkefninu koma
einnig þau Heather Phillips, dokt-
orsnemi frá Skotlandi og Margrét
Lilja Magnúsdóttir. Humarverkefnið
er unnið í samvinnu við Vinnslu-
stöðina og Guðrúnu Marteinsdóttur
hjá Háskóla Islands. Loks er Matís
að fara af stað með þrjú verkefni,
sem forstöðumaður Matís í Eyjum,
Ragnheiður Sveinþórsdóttir, stjóm-
ar í samvinnu við sjávarútvegs-
fyrirtæki í Eyjum og á fastalandinu.
Það er í fyrsta lagi verkefni sem
hefur það að markmiði að bæta
vinnsluferli til þurrkunar á loðnu-
hrognum. Isfélagið, Síldarvinnslan
og Grandi hf. koma að því verkefni.
Síðan er verkefni sem hefur það að
markmiði að kanna veiðar uppsjáv-
arfískiskipa á makríl á íslands-
miðum ásamt því að framkvæma
útlitsmælingar á makríl og þriðja
verkefnið snýr að markaðssetningu
á reyktum og þurrkuðum afurðum
sem fyrirtækið Godthaab hefur
verið að framleiða. Þannig að það
er nóg að gera hér á öllum víg-
stöðvum," sagði Páll Marvin og
bætti því við að á næstu vikum yrði
væntanlega ráðinn nýr starfsmaður
sem útibússtjóri Háskóla íslands í
Vestmannaeyjum, en Páll Marvin
gegndi því starfi áður en hann var
ráðinn sem forstöðumaður Þekk-
ingarsetursins.
Stærra
Pæjumót
Um helgina fer fram Pæjumót
TM. Mótið hefur verið í nokkurri
lægð undanfarin ár en í mun það
verða með stærra móti, fleiri
félög hafa skráð sig til keppni og
umfang verður meira. Þær stelpur
sem taka þátt eru í 5. flokki
kvenna en fyrir nokkrum árum
var þetta mót fyrir nánast alla
aldursflokka og var virkilega
umfangsmikið. Nú hefur mótið
hins vegar náð fyrri hæðum.
Kristján Georgson er í Pæjumóts-
ráði þetta árið. „Mótið er stærra
í ár en í fyrra og hefur fjölgað
um 5 félög. Fyrir þremur árum
settum við kraft í þetta, breyttum
úr fjölflokkamóti í eins flokks
mót og teljum það hafa verið
framfaraskref sem sé að skila sér
í dag. Svona mót krefst mikillar
vinnu og það er alltaf mikið af
fólki sem kemur að svona fram-
taki. 1 Pæjumótsnefnd starfar
gott fólk. Kvennadeild ÍBV er
einnig ómetanleg og koma margir
að þessu verkefni." Pæjumótið
var á sínum tíma flottasta knatt-
spyrnumót fyrir stúlkur á land-
inu, fyrir nánast alla aldurs-
flokkar en einhvem veginn datt
mótið niður og færri félög komu
á mótið. Kristján segir að á þeim
tíma sem Pæjumótið var hvað
stærst hafi verið lítið um knatt-
spyrnumót fyrir stelpur og því
hafí það verið svo vinsælt. En af
hverju datt mótið niður um tíma?
„Það er miklu meira um mót nú
en var fyrir 15 árum og því var
kannski erfiðara að fá lið, að ég
tel.” Tryggingamiðstöðin styrkir
mótið í ár og hefur gefið út að
styrkurinn við Pæjumótið sé liður
í þeirra átaki fyrir íslenska
kvennaknattspyrnu. „TM hefur
verið ötull styrktaraðili kvenna-
knattspyrnu undanfarin ár. I fyrra
voru við í viðræðum við þá en í
raun gerðist ekkert. Svo í ár
gemm við með okkur samning til
tveggja ára og emm mjög ánægð
með það.“ Kristján segir einnig
að þetta mót sé mikilvægt fyrir
félagið. „Meistaraflokkar kvenna
í handbolta og fótbolta hafa verið
í erfiðleikum og það hefði verið
mjög erfitt að hætta með þetta
mót einnig. Fyrir bæjarfélagið er
þetta einnig gott mál, að fá líf og
fjör í bæinn hlýtur að vera gott
fyrir okkur.“ Pæjumótið er
skemmtilegt mót þar sem saman
koma margar af knattspyr-
nuhetjum framtíðarinnar, spila
knattspymu allan daginn og fara
yfirleitt heim með bros á vör.“ En
hvemig verður mótið á næstu
ámm, á að stækka það? „Það var
auðvitað alltaf markmið hjá
okkur að stækka mótið og við
reynum það eflaust áfram, það er
engin spuming um það,“ sagði
Kristján.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... \ AT H 21 m 21 Y
...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI ■ 1 c i •in o v 11 d r VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616