Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Side 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 12. júní 2008 Frjalsar.net: Karen hleypir frjálsíþróttavef af stokkunum Eyjakonan Karen Inga Ólafsdóttir, sem áður keppti og þjálfaði hjá Ungmennafélaginu Óðni í Vestmannaeyjum, hefur hleypt af stokkunum, frjálsar.net þar sem era ð ftnna allt mögulegt er lýtur að frjálsum íþróttum, erlendum og innlendum. Karen er íþróttafræðingur og í viðtali við hana á Eyjar.net segir að hún hafi stundað þjálfun frá 15 ára aldri og hafi verið svo heppin að hafa fengið tækifæri til að fylgjast með góðum þjálfurum í gegnum árin sem hafa kennt henni mjög mikið og telur hún það hafa verið ómetanlegan skóla. Hún segir í viðtalinu að mikil þörf sé á vefsíðu sem þessari en langtímamarkmið sé að koma frjálsum fþróttum á hærra plan og vekja meiri athygli á þessari frábæru íþrótt. „En planið er að halda úti skemmtilegu samfélagi fyrir frjálsar og sameina upplýsingar um frjálsar í einn góðan frétta -og upplýs- ingamiðil. Hef gengið með þetta í maganum í soldinn tíma og nú fannst mér rétti tíminn til að gera þetta.“ I boði verða fréttir, viðtöl, blogg, upplýsingar um mót, uppskriftir, mynda- gallerý, vídeóklippur, svo mun ég seinna í mánuðinum opna spjallborð, móta- dagatal og smáauglýsingar þar sem fólk getur auglýst ókeypis," segir Karen á Eyjar.net sem líka á myndina. Hrcimur semur Pjóðhátídarlagið: í spilun á þjóðhátíðardaginn, 17. júní Hreimur Öm Heimisson, söngvari í hljómsveitinni Landi og sonum, semur þjóðhátíðarlagið í ár sem útsett er af Landi og sonum og hljóðblandað af Adda átta hundruð. Þetta er í fjórða skipti sem Hreimur tekur það verðuga verkefni að sér að semja þemalag þjóðhátíðar. Lagið var tekið upp um helg- ina og er væntanlegt í spilun á sjálfan þjóðhátíðar- daginn, 17. júnf næstkomandi. „Það sem maður hefur svona helst í huga þegar maður semur þjóðhátíðar- lag er að hafa það melódískt sem einmitt þetta lag er. Svo þarf maður líka að huga að því að meirihlutinn geti tengt sig við lagið og haft gaman af,“ svarar Hreimur, spurður um hina fullkomnu formúlu að þjóðhátíðarlagi en Hreimur samdi eitt eftirminnilegasta þjóðhátíðarlag fyrr og síðar, Lífið er yndislegt árið 2001. DV, greindi frá. Dögun vetnisaldar - Ný bók eftir Þorstein Inga Sigfússon, prófessor Samin í anda Jules Verne og í ætt við ferðalög Fíleasar Fogg Viðtal Sigurgeir Jónsson Sigurge @ internet. is Það er skammt stórra högga á milli hjá Eyjamanninum Þorsteini Inga Sigfússyni, prófessor við Háskóla Islands. A síðasta ári hlaut hann hin virtu Global orkuverðlaun. Og á miðvikudaginn 4. júní sl. var kynnt á háskólatorgi útkoma nýrrar bókar eftir hann. Svo skemmtilega vildi til að Þorsteinn Ingi átti einmitt afmæli þennan dag, varð 54 ára. Bókin heitir Dögun velnisaldar og Þorsteinn Ingi segir hana hafa verið í smíðum f þrjú og hálft ár. „Hún var fyrst samin á ensku - fyrir allan heiminn! - og gefin út af Coxmoor útgáfufyrirtækinu í Oxford," bætir hann við. „Síðan var henni snarað á íslensku með aðstoð Baldurs Arnarsonar, blaðamanns við Morgunblaðið." Hið íslenska bókmenntafélag gefur bókina út en hún er rúmlega 400 blaðsíður að stærð, með mjög ítar- legri atriðisorðaskrá, orða- og ný- yrðaskrá og ítarlegum heimildum. Þorsteinn Ingi segir að þarna sé vissulega um vísindarit að ræða en bókin sé samin með fróðleiksfúsan almenning í huga og þess vegna hafi efnajöfnur verið settar á sérstaka viðaukasíðu á netinu. „Þetta mætti eins kalla reisubók, þar sem ég fer með lesandann fram og til baka í tíma og rúmi og hug- myndafræði," segir Þorsteinn Ingi en í ræðu sinni á háskólatorgi lýsti hann efni bókarinnar á eftirfarandi hátt: „Hún hefst í framtíðinni, ég horli fjörutíu ár fram í tímann, að hætti Jules Veme, og svo Iegg ég í bílferð með lesandanum til að skoða norðurljósin uppi í Borgarfirði. I þeirri ferð opna ég tímavél og hverf 13,7 milljarða ára aftur í tímann, til upphafsins, Miklahvells, sem vís- indamaðurinn Stephen Hawkins hefur kallað „Hugskot Guðs“. í þeirri ferð búum við til frumeindir TVEIR GÓÐIR Félagi Þorsteinn og félagi Ólafur Ragnar Grímsson, sem sem tókst að kalla fram tár á harðnaðan Goðasteinshvarminn með góðum orðum um peyjann. Ljósmynd: Ljósmyndaþjómista BKK fyrir Fréttir sem við svo fylgjum áfram, allt til sköpunar jarðarinnar, lífsins og lofthjúpsins sem við lifum í. Sú ferð leiðir okkur svo áfram um efnið, við skyggnumst inn í upphaf jarðefna- eldsneytis og endanleika þess. Þá verjum við drjúgum tíma í að ræða allar tegundir þeirra orkugjafa sem mannkynið notast við og spáum mikið í hina endurnýjanlegu orku- gjafa.“ Þorsteinn Ingi segir að síðan komi að orkuberum framtíðarinnar, met- ani, etanóli og vetni. „Framtíðar- ökutækið verður alltaf rafknúið. Rafmagnið geymt í rafgeymum og drægi ökutækisins aukið með orku- berum á borð við vetni. Og loks förum við í átján stökkum um allan heiminn, ekki í loftbelg eins og Ffieas Fogg gerði á sínum tíma, heldur í hljóðfrárri vetnisþotu." Þorsteinn Ingi segist hafa reynt að flétta inn í frásögnina alls kyns dæmum og dæmisögum, með dyggilegri aðstoð meðþýðanda síns, Baldurs Arnarsonar. íslenska útgáf- an sé nokkuð lengri og ítarlegri en frumtextinn á ensku. „Enda er bók- inni fyrst og fremst ætlað að fræða fróðleiksfúsan almenning um eðli þessara hluta,“ segir Þorsteinn Ingi. A þessari útgáfusamkomu hélt Ingimundur Sigfússon, fyrrverandi sendiherra, ræðu þar sem hann minntist m.a. á það þegar Þorsteinn Ingi var að byrja prófanir sínar með vetni, fyrir 25 árum, og leitaði til Heklu hf., þar sem Ingimundur var þá forstjóri, með beiðni um afnot af vél til tilrauna. Þessi vél hefði verið skref í áttina að einhverju meira. T.d. væri eftirtektarvert að allir bílaframleiðendur heims hefðu vetni sem hluta af áætlunum sínum um bfi framtíðarinnar. Þá flutti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, einnig ræðu og sagði Þorsteinn Ingi hann hafa farið á kostum. „Hann fór sérlega góðum orðum um peyjann frá Vestmanna- eyjum og lá við að hann kæmi út tárunum á hörðnuðum Goðasteins- hvarminum," sagði Þorsteinn Ingi að lokum, ánægður með nýju bók- ina, Dögun vetnisaldar, sem nú er komin á íslensku. Það er full ástæða til að hvetja Vestmannaeyinga til að kaupa þessa eigulegu bók, þar sem vísindin eru færð í einfaldan og skemmtilegan búning. Þrátt fyrir að vera upp á 400 blaðsíður með litmyndum, er verði hennar mjög stillt í hóf. Höfundurinn sagðist verða á ferð- inni í Eyjum í lok mánaðarins og myndi þá árita bókina fyrir þá sem þess óskuðu. Viljum fleiri til þáttöku í Reimleikum 2008 Eins og flestir ef ekki allir Eyjamenn vita er að verða liðið ár síðan hinir stórkostlegu REIMLEIKAR voru haldnir í fyrsta skiptið. I tilefni af því verður ekki hjá því komist að rifja upp og skoða hvað fór vel og hvað hefði mátt fara betur. Eins og flestir upplifðu, sem á þennan viðburð mættu, var aðkoman og skipulagningin að þessum viðburði með eindæmum góð og dómgæsla nánast óaðfinnanlcg. Það sem virtist vera það sem áhorfendur höfðu mest út á að setja var fákeppnin, en eins og allir vita er undirstaðan í öllum frábærum íþróttaviðburðum hörð samkeppni sem fær kepp- endur til að fara á ystu mörk líkamlegra sem andlegra marka. En eins og flestir muna fórum við Vinir Ketils bónda frekar létt með þetta í fyrra, með fullri virðingu fyrir vinum okkar og mótherjum, Fyrirmyndar- bfistjórunum. En metnaðurinn hjá VKB er settur hærra en þetta og ef við eigum að geta náð þess- um árangri sem ég talaði um hér á undan er nauðsynlegt að fá fleiri lið til Ieiks. Þannig að við Vinir Ketils bónda (VKB) skorum á öll áhugamannafélög til keppni á hinum stórkostlegu Reimleikum 2008. Þetta árið verða leikarnir haldnir laugardaginn 28. júní og vill svo vel til að þann dag er ein- nig 10 ára starfs afmæli VKB. Þeir hópar sem hafa áhuga geta skráð sig í síðastalagi mánudaginn 23. júní nk. I síma 697-5182 Hinir íþróttasinnuðu vinir ketils bónda Qrunnskóli Vcstmannacyja: Árshátíðarhópurinn þakkar fyrir sig og sína Nemendur úr undirbúningshópi fyrir Árshátíð Grunnskóla Vestmannaeyja vilja koma á framfæri kæru þakklæti til þeirra fyrirtækja sem gáfu verðlaun sem veitt voru fyrir ýmsa titla sem og þeirra sem styrktu þau um ýmsan efnivið til að skreyta salinn. Verðlaunin voru alls ekki af verri endanum og er greinilegt að það er gott að leita til fyrirtækja hér í Vestmannaeyjum þegar kemur að slíku. Árshátíðin gekk afar vel fyrir sig og nemendur almennt ánægðir með útkomuna. Við viljum þakka eftirtöldum fyrirtækjum: Lyf og Heilsa, Ullarblóm, Volare, GÞ, Flamingo, Jazz, Smart, Eyjavík, Karl Kristmanns umboðs og heildverslun, Póley, Klettur, Toppurinn, Miðstöðin, Eyjatölvur, Tölvun, Blómaskerið, Miðbær, Eymundsson, Ozio, Kertaverksmiðjan og Prentsmiðjan Eyrún. Einnig voru haldnir starfsfræðsludagar í maí í Grunnskólanum í 8. og 9. bekk. Þessir dagar þóttu ganga vel og það er alltaf jafn ánægjulegt að sjá hversu hugmyndaríkir nemendumir eru og vinnusamir. Það var líka ákafle- ga gaman að heyra hrósið sem krakkarnir fengu svo frá fólki sem vinnur í þeim fyrirtækjum sem voru heimsótt og þóttu krakkamir vera mjög áhuga- samir og skemmtilegir. Áttundi bekkur kynnti sér iðngreinar og þá leituðum við til fyrirtækja sem nemendurnir heimsóttu eftir verðlaunum og þá voru það Bílaverkstæði Harðar og Matta, Eyjablikk og Geisli sem keyptu verðlaunin sem veitt voru fyrir besta verkefnið, frumlegasta verkefnið, besta flutninginn og svo það eitt verkefni sem kom mest á óvart. Níundi bekkur kynnti sér aftur á móti störf á vegum Vestmannaeyjabæjar og þá keypti Vestmannaeyjabær verðlaunin fyrir þau verkefni sem þóttu skara fram úr þar. Við viljum þakka ofangreindum fyrirtækjum fyrir styrkinn og aðstoðina. Bazjarstjórn: Nefndakosning Á fundi bæjarstjórnar á fimm- tudaginn var kosið í stjóm Spari- sjóðsins þar sem bæjarstjóm á tvo fulltrúa og í stjóm Náttúrustofu þar sem bæjarstjóm á einn fulltrúa. I stjóm SV voru Arnar Sigurmunds- son og Ragnar Óskarsson tilnefndir aðalmenn og til vara Elliði Vign- isson og Stefán Ó. Jónasson. Rut Haraldsdóttir var tilnefnd í stjórn Náttúmstofu í stað Sigur- hönnu Friðþórsdóttur og Sigurhanna var tilnefnd í varastjóm í stað Amars Sigurmundssonar. Þessar tilnefningar voru samþykkt- ar með sjö samhljóða atkvæðum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.