Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Síða 11
Fréttir / Fimmtudagur 12. júní 2008
11
Opið bréf til þjóðhátíðarnefndar
Bréfaskipti við
Sælir Friðbjörn O og félagar! Langar til þess að
biðja þig að grafa upp fyrir mig hvort E1 Puerco og
Ennisrakaðir spiluðu á þjóðhátíð 1998 eða 99..við
erum að spá í tvítugsafmæli sveitarinnar. Sendi
ykkur þetta lag í leiðinni sem mér fínnst einhverra
hluta vegna vera mikill eyjafflingur í. Eg fékk hann
Þórarin Olason, dægurlagasöngvara frá Hoffelli, til
þess að syngja þessa demoútgáfu af laginu sem er
annars í fullri vinslu hjá Sigurði Rúnari Jónsyni þar
sem lagið er hluti af stærra verkefni sem heitir
Heilsugeirinn og kemur út síðar. Jóhann Hjör-
leifsson sá um slagverk og nafni hans Jóhann
Ásmundsson, Mezzofortemaður, er að snurfusa
bassann í þessum mánuði. Það hefði verið gaman að
leyfa ykkur að heyra lagið í þeirri umgjörð, það fáið
þið hvort sem er síðar. Tóti er ekki alveg að fara
með textann rétt í byrjun þannig að þið virðið það
bara við hann að hann söng þetta inn fyrir mig
svona svo ég gæti ákveðið tónhæðina fyrir
hljóðfæraleikarana. Með tiltölulega litíum
breytingum má aðlaga þetta lag þjóðhátíð t.d. með
að breyta hanagali í lundagal í viðlagi, þá er bara
spurningin sú hvort lundar geti galað. Þcmað í
textanum er svolítið á þá leið að hugurinn stefni nú
oftar en ekki á ykkur þarna handan hafsins þó lagið
nefndina
sé samið í minningu einnar hörðustu þjóðhátiðar-
manneskju sem ég þekkti. Aldrei að vita hvort þetta
passi bara ekki alveg eins vel og eittthvað annað, þið
látið mig bara vita. Bið ykkur bara um að passa að
þetta fari ekki á flakk á nctinu né annars staðar
svona óunnið.
Bestu kveðjur, bið að heilsa
Elías B Bjarnhéðinsson
Tónlistarmaður
Knt: 060764-2559
Gsm: 861-2655
textqbase@internet.is
Takk fyrir þetta Elías.
Svar Friðbjörns
Lagið hljómar fínt, væntanlega uppljómun frá
heiðursmanneskjunni Ingibjörgu frá Ásnesi (heitir
það ekki svo). Stór í sniðum sú ágæta kona, á
margan hátt. Áframsendi þetta á félaga mina.
Kveðja frá ÍBV sœkreteriatet.
Grein
Elías Bjamhéðinsson
skrifar: Höfundur er tón-
listarmaður.
Það hefur verið haldin þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum allar götur síðan
1874. Með einhverjum örfáum
niðurfellingum þó vegna óviðráðan-
legra inngripa náttúruaflanna. Það
hafa verið samin þjóðhátíðarlög
árlega síðan 1932 eða 1933. Þessi
skemmtilega hefð hefur sem sagt
viðhaldist í áranna rás og orðið svo
ómissandi þáttur í vestmanneyskri
menningu og um leið fólksins
arfleifð. Nú virðist sem verktaki hafi
verið ráðinn til þess að semja
þjóðhátíðarlagið í ár.
I því samhengi þætti mér gaman að
fá að vita hvers vegna höfundur
þjóðhátíðarlagsins 2001 var ráðinn
til starfans en ekki t.d. höfundar
þjóðhátíðarlaganna 1989 eða 1997?
Nú vildi svo til að ég sendi inn
þjóðhátíðarlag og texta sem ég
hvorki ætlaðist til þá eða nú að fengi
einhverja sérstaka meðhöndlun á
annan hátt en að nefndin sem slík
fjallaði um það og veldi eða hafnaði
og sendi mér síðan svör sem ekkert
hefur bólað á.
Sem er ekkert annað lágmarks
kurteisi fyrir viðleitni þeirra sem
gáfu sér tíma og höfðu fyrir því að
senda inn lag. Af hverju var mér
ekki tilkynnt strax að búið væri að fá
aðila til verksins og látið í veðri
vaka að verið væri að safna inn
lögum og þegar hefðu borist þrjú
lög? Svona lagað er ekkert annað
sýndarmenska og baktjaldamakk.
Einhvern tíma hefði verið sagt að
það væri hreinlega skítalykt af því-
líku.
Eg vissi ekki að verktaki hefði
verið fenginn til verksins enda var
mér ekki tilkynnt um neitt slíkt
þegar ég sendi framkvæmdastjóra
IBV lagið né þegar haft var sam-
band við formann þjóðhátíðar-
nefndar í síðustu viku. Hann kom af
fjöllum og ætlaði óðara að fara í
málið og gefa einhver svör sem mér
þætti vænt um að fá skriflega ásamt
þeim gögnum sem send voru inn.
Væri ekki skoðandi að tilkynna
svona ákvarðanir sem virðast vera
teknar án vitundar allra í þjóð-
hátíðarnefnd þannig að maður væri
ekki að eyða tíma í að er virðist í
algeran óþarfa. Þá þætti mér ágætt
að vita hvort sami háttur verði á
næsta ár og hvað menn þurfa að
uppfylla til þess að koma til greina
sem verktakar þjóðhátíðarlags?
Er nóg að hoppa upp úr trillunni
eins og Ási í Bæ gerði forðum og
tralla lag eins og Á meðan öldur á
eiðinu brotna, Heimaslóð, sem
reyndar var hafnað af þjóðhátíðar-
nefnd á sínum tíma en er ein af perl-
um Eyjanna engu að síður.
Þannig að það er engin nýlunda að
menn hafi samið lög í tilefni þjóð-
hátíðar. Það hlýtur að hækka gæða-
staðalinn að hafa úr einhverju að
velja sem færir mig að þeirri sjálf-
sögðu spurningu í framhaldi.
Hverjir velja lögin eða verktakana
og hvað hafa þeir til brunns að bera
í þessa veruna? Hverjar eru lín-
umar? Eftir hverju er farið og hvað
þurfa áhugasamir að uppfylla til að
verða þeirrar almennu kurteisi að-
njótandi að verða svarað?
Á þessum útboðstímum væri
kanski skoðandi fyrir Vestmanna-
eyjabæ að leita tilboða í þjóðhá-
tíðarhald hjá öðrum iþróttafélögum
eða jafnvel öðrum félagasamtökum
á Heimaey.
Eða hreinlega leita fanga upp á
fastalandið með það. Nú er ég þess
handviss að það eru fleiri Vest-
mannaeyingar en ég sem luma á
lögum og textum sem vel kæmu til
greina sem þjóðhátíðarlög og
kannski athugandi hvort ekki sé
verið að leita töluvert langt yfir
skammt svona almennt? Þó að
auðvitað sé ekki hægt að einskorða
höfunda við Eyjamenn þá finnst mér
heldur ekki hægt að útiloka þá í að
vera með, með því að láta geð-
þóttaákvörðun örfárra ráða för með
ráðningu útvalinna verktaka. En eitt
er alla vega víst að svona starfs-
hættir eru ekki beint uppörvandi
þeim þekktum sem óþekktum
„verktökum" sem fást við slíkar
smíðar.
Spurning vikunnar:
Hvað lið
styður |)ú
í Evrðpu-
keppninni
Guðjón Úlafsson
- Ég styð Holland,
blússandi sóknar-
bolti.
Arnór Eyvar Úlafs-
son
- Frakklandi og ég
spái þeim sigri.
Úttar
Steíngrímsson
- Ég segi Holland.
Út af mínum
manni Kuyt.
Patríck Rínmuller
- Að sjálfsögðu
Þýskalandi. Sterk
liðsheild vinnur
mótið.
Fyrri umræða um breytingar á bæjar-
málasamþykkt:
Fimm ráð í
stað sex
-Hætt að kjósa í stjórn Sparisjóðsins
Breytingar á bæjarmálasamþykkt
var tekin til fyrri umræðu á fundi
bæjarstjómar á fimmtudaginn.
Breytingamar era þær helstar að
ráðum bæjarins verður fækkað úr
sex í fimm og bæjarstjórn hættir að
kjósa fulltrúa í stjóm Sparisjóðs
Vestmannaeyja.
Aðalbreytingin felst í því að
skipta menningar- og tómstunda-
ráði upp og færa menningarhlutann
inn í skólamálaráð, það verður þá
fræðslu- og menningarráð og tóm-
stundahlutann inn í fjölskylduráðið
sem verður þá fjölskyldu-og tóm-
stundaráð.
Breytingin er á 42. grein bæjar-
málasamþykktarinnar þar sem segir
samkvæmt breytingunum: Bæjar-
stjóm kýs fulltrúa í eftirtalin ráð,
stjómir og nefndir auk formanna og
varaformanna ráða skv. 1. - 5. tl. á
fundi sínum í júnímánuði ár hvert:
1. Bæjarráð. Þrjá aðalfulltrúa í
bæjarstjóm sem aðalmenn og jafn-
marga til vara.
2. Fjölskyldu- og tómstundaráð.
Fimm aðalmenn og fimm til vara.
3. Fræðslu- og menningarráð.
Fimm aðalmenn og fímm til vara.
4. Umhverfis- og skipulagsráð.
Fimm aðalmenn og fimm til vara.
5. Framkvæmda- og hafnarráð.
Fimm aðalmenn og fimm til vara.
í B-hluta sömu greinar segir að á
fyrsta eða öðrum fundi að af-
loknum bæjarstjórnarkosningum
skuli bæjarstjóm kjósa í ráð,
stjómir og nefndir til fjögurra ára.
Þær eru, aðalfundur Sambands
sunnlenskra sveitarfélaga, al-
mannavarnanefnd, fulltrúaráð
Brunabótafélags íslands, full-
trúaráð Sambands ísl. sveitarfélaga,
Heilbrigðisnefnd Suðurlands,
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
og Vestmannaeyjabæjar um fyrir-
komulag heilbrigðis- og mengunar-
vamaeftirlits í Suðurkjördæmi,
kjörstjómir, skoðunarmenn,
skólanefnd framhaldsskóla, stjórn
Lífeyrissjóðs starfsmanna
Vestmannaeyjabæjar, stjórn
Náttúrustofustofu Suðurlands og
þjónustuhóp aldraðra.
Samkvæmt lögum frá 1996 um
viðskiptabanka og sparisjóði og
samþykktum Sparisjóðs
Vestmannaeyja frá 3. desember
1942 hefur bæjarstjóm kosið tvo
aðalfulltrúa og tvo til vara í stjóm
Sparisjóðsins. Á þessum fundi
vom kosnir fulltrúar í stjóm
Sparisjóðsins en verði breyting-
amar samþykktar, sem gera verður
ráð fyrir, er það í síðasta skipti sem
það er gert.
Hver skar út í þessa grein á
sjöunda áratugnum?
EYJAMAÐURINN, Guðmundur Guðmundsson, sem ólst upp í
Vestmannaeyjum, fann útskorna trjágrein í Hólsfjöru undir
Eyjafjöllum, sennilega sumarið 1964 eða 1965. „í hana er skorið
Vestmannaeyjum og upphafsstafírnir IP. Greinin hefur verið í minni
vörslu síðan. Mig hefur lengi langað að vita hvaðan hún er upprunnin
og nú vona ég að einhver lumi á upplýsingum um greinina.
Vísbendingarnar eru stafírnir IP og Vestmannaeyjar og væri gaman að
vita hvort eigandinn man eftir gripnum og hann getur haft samband í
síma 861-6683,“ sagði Guðmundur.
Flottir starfsmenn hjá
Vestmannaeyjabæ:
Þakka ber
það sem
vel er gert
Nú í sumar er von á talsverðu
magni skemmtiferðaskipa ásamt
og hafa aðilar er sjá um að
þjónusta þau unnið hörðum að
undirbúningi komu þeirra.
Aðstaða á hringplaninu í
Eldfellinu fyrir hópferðabfla var
óviðunandi ásamt leiðum inn í
gíg Eldfells. Það var haft sam-
band við Ólaf Snorrason og
Gunnlaug Grettisson hjá
Vestmannaeyjabæ ásamt
Guðmundi Þ.B. Ólafssyni.
Get ég ekki annað en dáðst að
hvað brugðist var skjótt við
óskum um lagfæringar. Tommi
hjá Áhaldahúsi bæjarins ásamt
sínum mönnum fór í málið og er
aðstaða til að fíytja fólk á eitt
helsta aðdráttarafl Vestmanna-
eyja fyrir ferðamenn orðin mun
betri en í vor. Það er ánægjulcgt
að vita til slíkrar jákvæðni til
lagfæringar og uppbyggingar á
náttúruundrinu Heimaey.
Jákvætt hugarfar ásamt bjart-
sýni á framtíð Eyjanna hefur
farið vaxandi undanfarið og
vonandi berum við Eyjamenn
gæfu til að efía og styrkja það
hugarfar sem nú ríkir á meðal
okkar. Enn og aftur vil ég þakka
ykkur strákar fyrir skjót
viðbrögð og frábæra vinnu. Það
er auðséð að við eigum starfs-
menn hjá bænum sem bera hag
Eyjanna fyrir brjósti.
Fyrír hönd starfsmanna hjá Viking
Tours
Sigurmundur G. Einarsson