Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Síða 14
14
Ffgttir / Fimmtudagur 12. júní 2008
Alex Jóhannsson kemur alla leið frá St. Louis á Shellmót:
Langar að spila á Há-
steinsvelli eins og stóri bróðir
Á FULLLU Alex hefur æft og spilað knattspyrnu með liði sínu í St. Louis, Kolping Kicks, sem spilar í efstu
deild í U9 í St. Louis.
Nú styttist í Shellmótið en fréttir
hafa borist af því að enska liðið
Elloughton, sem kom á Shellmótið
fyrir sjö árum, muni koma aftur á
mótið í ár. Krakkarnir í Elloughton
koma þó ekki lengst að til að taka
þátt í skemmtilegasta íþrótlavið-
burði ársins á íslandi, þann heiður
fær Alex Jóhannsson, sem kemur
alla leið frá St. Louis í Banda-
ríkjunum til að taka þátt í mótinu.
Alex hefur æft og spilað knatt-
spyrnu með liði sínu í St. Louis,
Kolping Kicks, sem spilar í efstu
deild í U9 í St. Louis. Við heyrð-
um í Jóhanni Inga Árnasyni, föður
Alex, sem sagði okkur gang mála í
knattspymunni úti. „Deildin héma
er nokkuð sterk miðað við ísland
og ég myndi telja að lið hans sé
jafnvel sterkara en ÍBV liðið sem
hann lék með heima þó það hafi
verið mjög sterkt. Þetta virkar
töluvert öðruvísi hérna en heima.
Hér þurfa leikmenn að komast í lið,
lið geta bara haft 14 leikmenn á
skrá og svo eru „try-outs“ einu
sinni á ári. Þá detta lélegustu leik-
mennirnir út og nýir sterkari koma
inn. Það var því frábært fyrir Alex
að komast í A-deildarlið því U9
deildin hefur 6 deildir og þúsundir
stráka að æfa. Heima virkar kerfið
auðvitað þannig að allir eru vel-
komnir eins og við þekkjum."
Og ekki nóg með að flokkakerfið
sé öðruvísi í Bandaríkjunum en á
Islandi, þá er völlurinn og liðsskip-
anin einnig öðruvísi. „Kaninn þarf
alltaf að vera dálítið öðruvísi en
aðrir og það er enginn undantekn-
ing með fótboltann. Hér leika þeir á
um það bil hálfum velli eins og
heima en 8 á móti 8 í stað 7 á móti
7. Flest lið hérna leika 3-2-2 en
heima er algengt að leika 3-2-1 eða
2-3-1. Hann hefur vanist þessu vel
og hér leikur hann frammi, en var
oftast á kantinum heima. Hann er
markahæstur í liðinu sínu sl. vetur
svo vonandi halda þeir honum
áfram.“
Af hverju á Shellmót?
„Við nánast lofuðum honum
síðasta sumar að hann fengi að
koma heim á Shellmótið því enginn
Eyjapeyi vill missa af því. Aron
James, eldri bróðir hans, lék á
báðum mótunum og varð Shell-
mótsmeistari með sínu liði undir
stjórn Heimis Hallgrímssonar fyrir
tveimur árum. Alex er því mjög
spenntur að koma heim og hitta
vini sína og vonandi mun þeim
ganga vel á Shellmótinu. Hann
sagði við mig að hann vildi leika á
Hásteinsvelli eins og stóri bróðir
hans. Þetta er auðvitað dýrt og
langt ferðalag fyrir fáa daga en ég
held að í minningum hans verði
þetta eitthvað sem er þess virði,“
sagði Jóhann Ingi að lokum.
Sólskinsdagar í Hamarsskóla
í lok skólaársins fóru fram Sólskinsdagar í Hamarsskóla. Sólskins-
dagar eru tilbreytingardagar þar sem hörnunum er skipt upp í hópa
sem fara á mismunandi stöðvar. Á stöðvunum var meðal annars boðið
upp á Afró-dans, Hip-Hop dans, listsköpun, íþróttir o.m.fl. Það var
mikil gleði og spenna sem ríkti í skólanum og alltaf gaman að sjá
þegar börnin leggja sig fram í einhverju sem þeim finnst spennandi.
Listin að vera leiðtogi:
Flott framtak
Viska, fræðslu og símenntunarstöð,
bauð öllum konum í Vestmanna-
eyjum á leiðtoganámskeið í síðustu
viku. Námskeiðið var fjögur kvöld
og byggðist upp á fyrirlestrum tvö
kvöld, hópastarfi þriðja kvöldið og
sameiginlegum kvöldverði fjórða
kvöldið.
Ásdís Halla Bragadóttir var með
fyrsta námskeiðið á þriðjudags-
kvöld í Alþýðuhúsinu undir yfir-
skriftinni „Listin að vera leiðtogi."
Þar fór hún yfir helstu þætti leið-
toga og niðurstaðan er sú að allir
sem virkja aðra með sér til að bæta
umhverfið eru leiðtogar. Leiðtoginn
fæst fyrst og fremst við breytingar
og það er afar mikilvægt að ein-
staklingar hafí sýn og geti þannig
náð takmörkum sínum hvort sem er
í einkalífi, starfsvettvangi eða á
öðrum sviðum.
Allir geta orðið leiðtogar og í lok
fyrirlestrar vitnaði Ásdís Halla í
Lao Tze, kínverskan heimspeking.
„Bestu leiðtogarnir eru þannig að
fólkið tekur ekki eftir þeim.
Næstbestu leiðtogarnir eru þannig
að fólkið ber virðingu fyrir þeim.
Næstnæstbestu leiðtogarnir eru
þannig að fólkið óttast þá og næst-
næstnæstbestu leiðtogamir em
þannig að fólkið hatar þá. Þegar
besti leiðtoginn hefur lokið
störfum, segir fólkið: „Við gerðum
þetta sjálf.“
Á miðvikudagskvöld fluttu Eva
Hrund Einarsdóttir, Sigþrúður
Ármann og heimakonur fyrirlestra
í Alþýðuhúsinu og síðan var hópa-
starf í Hamarskóla á ftmmtudag.
Námskeiðinu lauk svo með
hátíðarkvöldverði og fjöri í
Alþýðuhúsinu á föstudagskvöld.
ÞAKKAÐ Valgerður Guðjónsdóttir, forstöðukona Visku, þakkar konum sem komu að undirbúningi og
fluttu ræður á leiðtoganámskeiðinu. Var það gert í hóflnu sem fram fór í Alþýðuhúsinu.