Fréttir - Eyjafréttir - 12.06.2008, Blaðsíða 15
Frcttir / Fimmtudagur 12. júní 2008
15
3
Knattspyrna mfl. karla - ÍBV 3 - Fjarðabyggð 0
Mótstaðan var ekki mikil
Á föstudaginn lók IBV á móti
Fjarðabyggð á Hásteinsvelli. Að-
stæður voru nálægt því að vera full-
komnar, völlurinn frábær, sólin
skein og ekkl hreyfðist vindur. Þetta
virkaði vel á heimamenn sem unnu
örugglega, 3:0.
Leikurinn byrjaði af krafti, Eyja-
menn vom mun betri aðilinn og
náðu fljótt völdum á miðjunni með
Bjarna Rúnar Einarsson fremstan
þar. Þeir sóttu nær linnulaust en inn
vildi boltinn ekki fyrr en á 40. mín-
útu en markið skoraði Bjarni Rúnar.
í síðari hálfleik bættu Eyjamenn
svo við tveimur mörkum, frá Andra
Olafssyni og Augustine Nsumba.
Lokatölur urðu því 3:0 fyrir ÍBV í
leik þar sem Eyjamenn gáfu ekkert
eftir.
Heimamenn höfðu öll völd í
leiknum en það leit út fyrir að
Fjarðabyggð hafi komið í leikinn til
þess eins að verjast og negla bolt-
anum fram þegar færi gafst. Þessi
taktík reyndist algerlega mis-
heppnuð því áður en Fjarðabyggð
FRÁBÆR ÁRANGUR. Strákarnir eru með fullt hús stiga í 1. deild-
inni.
náði að negla boltanum fram þá ef þeir náðu að negla honum þá
voru Eyjamenn komnir í pressu og unnu annaðhvort Bjarni Hólm eða
Matt Garner boltann í loftinu.
Eyjamenn sóttu nánast allan fyrri
hálfleikinn. Síðari hálfleikur byrjaði
eins og sá íyrri með miklum látum.
Leikmenn IBV létu boltann ganga
vel á milli sín, sundurspiluðu vöm
Fjarðabyggðar og yfirspiluðu þá oft
á tíðum.
Byrjunarlið: Albert Sævarsson,
Arnór Eyvar Ólafsson, Matt Gamer,
Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Þórar-
inn Valdimarsson, Andri Ólafsson,
Bjami Rúnar Einarsson, Augustine
Nsumba, Anton Bjarnason, Egill
Jóhannson, Atli Heimisson
Varamenn: Steinar Emir Knútsson,
Guðjón Ólafsson, Gauti Þorvarðar-
son, Ingi Rafn Ingibergsson, Elías
Fannar Stefnisson.
Maður leiksins: Það er erfitt að
gera upp á milli tveggja leikmanna,
Bjarna Rúnars Einarssonar og
Augustine Nsumba sem báðir stóðu
sig frábærlega. Einnig kom Bjarni
Hólm sterkur inn í liðið á ný.
Áhorfendafjöldi: 300.
Dýrvitlausir
í seinni
hálfleik
KFS mætti Ægi frá Þorlákshöfn um
helgina í skelfilegu veðri á
Helgafellsvelli. Það voru 26 til 30
metrar á sekúndu á Stórhöfða
meðan leikurinn stóð.
Ægir byrjaði leikinn undan vindi
og skomðu þeir tvö mörk á fyrsta
stundarfjórðungi.
Slæm byrjun hjá KFS sem réði
ekkert við sterkan vindinn sem gaf
Ægismönnum byr undir báða
vængi.
Eftir um hálftíma leik vaknaði KFS
aðeins til lífsins og fór að spila
boltanum með jörðinni. Þessi spila-
mennska skilaði KFS að lokum
marki frá Ivari Róbertssyni. Trausti
Hjaltason átti skot sem var varið en
Ivar fylgdi vel eftir og setti boltann
framhjá markmanni Ægis sem kom
engum vörnum við.
Við þetta efldist liðið mikið og
sjálfstraust færðist í mannskapinn.
f síðari hálfleik komu KFS menn
dýrvitlausir til leiks, staðráðnir í því
að vinna leikinn. Á 53. mínútu jafn-
aði Davíð Egilsson með góðu
skallamarki eftir hornspyrnu frá
Trausta Hjaltasyni.
Stundarfjórðungi síðar komst KFS
síðan yfir með marki frá fyrir-
liðanum Trausta sem skoraði með
glæsilegum skalla í fjærhomið eftir
fyrirgjöf frá Trausta Hermannsyni.
Trausti var að skora í sínum
þriðja leik röð og hefur verið mikil
stígandi í hans leik. KFS fékk
nokkur færi undir lokin og þar á
meðal eitt stangarskot frá Sindra
Viðarssyni. Lokatölur urðu því 3:2
fyrir KFS sem vann mikinn barát-
tusigur. KFS vann þar með sinn
fyrsta leik í 3. deildinni gegn
taplausu liði Ægis.
Yngri flokkarnir
Annar flokkur réttir úr kútnum
Um helgina mætti 2. flokkur karla
Knattspymufélagi Rangæinga í 32
liða úrslitum Bikarkeppninnar.
Leikurinn fór fram á Týsvellinum í
alveg ömurlegu veðri, roki og rign-
ingu. Strákamir létu það hins vegar
ekkert á sig fá og völtuðu hreinlega
yfir Rangæinga.
Það var Guðjón Ólafsson sem kom
Eyjamönnum á bragðið með smekk-
legu marki. I kjölfarið fylgdu tvö
mörk frá Gauta Þorvarðarsyni, tvö
mörk frá Steinari Emi Knútssyni og
Hjörleifur Davíðsson rak svo smiðs-
höggið á sex marka sigur heima-
manna. Flokkurinn byrjaði nokkuð
illa og tapaði fyrir Hetti í fyrstu um-
ferð deildarinnar en nú eru þeir
vonandi að rétta úr kútnum því þeir
eiga að fara upp um riðil þetta tíma-
bil.
I seinustu viku mætti 2. flokkur
kvenna KR í A-deild. Liðið er að
mestu leyti uppistaðan í meist-
araflokknum sem hefur verið að
spila ágætlega. Þetta eru að sjálf-
sögðu ungar stelpur sem eiga margt
eftir ólært en fá núna tækifæri til
þess að sanna sig.
Leikurinn byrjaði ekki vel hjá
Eyjastelpum sem lentu undir eftir 17
mínútur eftir sjálfsmark. Þær fengu
svo annað mark á sig rétt eftir að
seinni hálfleikur hófst. Eftir það
efldist liðið aðeins og hin bráðefni-
lega Kristín Erna Sigurlásdóttir náði
að skora þegar urn hálftími var eftir
af leiknum. Það sem gerði út urn
þennan leik var mark KR á 63.
Mínútu, Eyjastelpur höfðu þá verið
að komast hægt og bítandi aftur inn
í leikinn en þetta mark gerði alger-
lega út um leikinn.
Eyjastelpur náðu þó aðeins að
klóra í bakkann með marki frá
Þórhildi Ólafsdóttur en KR fór með
sigur af hólmi 3-2.
rj
Golf: Boðsmót Eimskips
Gunnar Berg sigraði tvöfalt
Ekkert almennt mót var á kapp-
leikjaskrá Golfkúbbsins um helgina.
En á föstudag var haldið Boðsmót
Eimskips sem undanfarin ár hefur
verið eitt af glæsilegri mótum
sumarsins. Rúmlega 80 manns tóku
þátt í því og heimamenn í
talsverðum meirihluta. Allir voru
ræstir út samtímis kl. 13 og að móti
loknu var síðan boðið til veislu í
Golfskálanum þar sem enn bættist í
hópinn og voru nokkuð á annað
hundrað manns þar saman komin.
Mótið var punktamót, efstir þessir:
1. Gunnar Berg Viktorsson 43 p
2. Ágúst Ómar Einarsson 39 p
3. Kristgeir Orri Grétarsson 38 p
Einnig voru veitt verðlaun fyrir tvö
bestu heildarskor. Þar var Gunnar
Berg Viktorsson einnig í efsta sæti á
69 höggum eða einu undir pari vall-
arins en Örlygur Helgi Grímsson í 2.
sæti á 74 höggum.
Þetta er glæsilegur árangur hjá
Gunnari Berg sem fram til þessa
hefur verið öllu þekktari fyrir afrek í
annarri íþrótt, handboltanum. Eftir
þessu að dæma er hann ekki síðri
með hvíta boltann.
Þá voru og veitt nándarverðlaun á
öllum par 3 brautum og hlutu þau
Sigurjón Óskarsson, Ragnar Ragn-
arsson, Sigursveinn Þórðarson, Ein-
ar Ólafsson og Huginn Helgason.
Mótið fór fram í blíðuveðri eins og
best verður á kosið og þótti öll um-
gjörð um það, verðlaun, teiggjafir
og veitingar, fádæma veglegt.
Nú um helgina fer hér fram annað
stigamót unglinga í Kaupþings
mótaröðinni og verður þar margt um
manninn. GV á þar átta keppendur,
með íslandsmeistara síðasta árs,
Hallgrím Júlíusson fremstan f
flokki.
Laugardaginn 21. júní verður svo
Afmælismót GV, þar sem þess
verður minnst að 70 ár eru frá stofn-
un klúbbsins. Verður f því móti leik-
ið á elsta vellinum, í sjálfum
Herjólfsdal, en sá völlur var aðeins
sex holur. Þar var t.a.m. teigurinn á
næstsíðustu holunni uppi á klett-
inum sem er ræðupallur á þjóðhátíð.
Verður nánar greint frá því móti og
öðru er afmælinu tengist í næsta
blaði.
VERÐLAUNAHAFAR á boðsmótinu, ásamt Eyjamanninum Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eimskips en hann
er annar frá hægri.
íþróttir
ANTON Bjarnason hefur eins og
liðið í heild staðið sig vel í sumar.
Víkingur 1 - ÍBV 4
Marka-
talan 17:1
Á þirðjudagskvöld sótti meist-
araflokkslið karla Víking heirn.
Víkingum var fyrir mótið spáð
efsta sætinu í deildinni en þeirn
hefur hins vegar ekki gengið alveg
nógu vel. Leikurinn byrjaði fjör-
lega en Þórhallur Hinriksson kom
Víkingum yfir á 4. mínútu úr
vítaspyrnu. Skömmu seinna var
Þórhallur rekinn út af fyrir að hafa
fengið tvö gul spjöld. Eyjamenn
nýttu sér það og náðu að skora á
24. mínútu en markið skoraði
Pétur Runólfsson. Staðan í
hálfleik var því 1-1. Eftir níu
mínútur af seinni hálfleik komust
Eyjamenn síðan yfir með marki
frá Atla Heimissyni. Eftir markið
náði ÍBV yfirhendinni á vellinum
og hélt boltanum vel. Víkingurinn
Runólfur Sveinn Sigmundsson
fékk síðan rautt spjald á 77. mín-
útu eftir leiðindabrot. Eyjamenn
skoruðu síðan tvö mörk á seinustu
fimm mínútum leiksins og unnu
því þriggja marka sigur á Víkingi
1-4. Næsti leikur Eyjamanna er
gegn KA en hann er á laugar-
daginn klukkan 14.00 á Há-
steinsvelli.
Framundan
)
Fimmtudagur 12. júní
Kl. 17.00 ÍBV-Afturelding, 4.
flokkur karla.
Föstudagur 13. júní
Kl. 18.00 ÍBV-Selfoss, 3. flokkur
karla.
Laugardagur 14. júní
Kl. 14.00 ÍBV-KA, meistara-
fiokkur karla.
Mánudagur 16. júní
Kl. 20.00 Grótta-ÍBV, 2. flokkur
karla.