Fréttir - Eyjafréttir - 26.06.2008, Qupperneq 11
Fréttir / Fimmtudagur 26. júní 2008
11
SJÖMENNINGARNIR, Ásta, Hildigunnur, Berglind, Freydís, Selma, Anna, Heiða, og þorbjörg
Spurning vikunnar:
Baðaðir þú
þig upp úr
morgun-
dögginni á
Jónsmessu?
Þórunn
Halldórsdóttir
-0 nei, því miður.
Ég vildi að ég
væri nógu kjörkuð
til þess.
ÖlafurTryggvason
-Nei, ég mátti ekki
vera að því. Ég
athuga það næst.
Tískusýning í Eldheimum
Sjö klæðskerar og fatahönnuðir frá
Vestmannaeyjum ætla að sýna
hönnun sína á tískusýningu um
goslokahelgina. Sýningin verður í
Eldheimum og á eflaust eftir að
vekja mikla athygli enda umhverftð
bæði frumlegt og nýstárlegt. Þær
sem hanna fötin eru: Heiða Eiríks-
dóttir í samstarfi við Þorbjörgu
Valdimarsdóttur, Selma Ragnars-
dóttir, Hildigunnur Sigurðardóttir,
Freydís Jónsdóttir, Anna Guðný
Laxdal, Berglind Omarsdóttir og
Ásta Guðmundsdóttir.
Ásta hefur unnið að því að skipu-
leggja sýninguna og segir ekkert
eitt þema verða í gangi heldur muni
hönnuðirnir sýna það sem þeir eru
að fást við þessa stundina. „Hver
og ein sýnir fjögur til sex dress og
eflaust má ftnna smá drama í
hönnuninni sem passar við um-
hverftð. Anna Clausen setur upp
sýninguna fyrir okkur og nú er
unnið að undirbúningi. Okkur
vantar ennþá nokkur módel og við
hvetjum þær sem vilja sýna til að
koma og hitta okkur í Ráðhúsinu
næsta fimmtudag, 24. júní milli
klukkan 16.00-18.00.“
Ásta vann að undirbúningi gos-
lokahátíðar með Andrési Sigur-
vinssyni fyrir tíu árum, þá tókst
mjög vel til og hátíðahöldin enn í
fersku minni. „Það var mjög
skemmtilegur tími og mér finnst
frábært að taka þátt í þessu aftur.
Kristín Jóhannsdóttir hafði sam-
band við mig í vor og mér finnst
tískusýningin í svo framandi
umhverfi bæði áhugaverð og
skemmtileg hugmynd. Ég ímynda
mér að það komi vel út að vera
með sýningu í tengslum við upp-
gröftinn á húsunum, sérstaklega ef
það verður gott veður. Svona sýn-
ing tekur u.þ.b. tuttugu mínútur og
við ætlum að gera þetta eins vel og
við getum. Við erum á kafi í
undirbúningi og mjög spenntar að
taka þátt í þessu enda sýningin í
mjög óvenjulegu umhverfi," sagði
Ásta.
Unnur
Þórarinsdóttir
Nei, ég gerði það
ekki. Þetta er
skemmtilega
þjóðsaga sem
ágætt er að halda í
og hafa gaman að.
Sólueig
Adólfsdóttir
Nei, ekki þetta
árið, því miður. Ég
væri kannski heil
heilsu ef ég hefði
gert það.
Notað og nytsamlegt opnar aftur
-Styrkir Unglingadeild Björgunarfélags Vestmannaeyja
STYRKUR AFHENTUR Hildur Björk Bjarkadóttir tekur við styrknum úr hendi Margoar.
Notað og Nytsamlegt verður opnað
fimmtudaginn 26.júní kl.10 að
Kirkjuvegi 19. Markaðurinn verður
starfræktur í átta vikur og allir sem
eiga húsgögn eða húsmuni sem þeir
vilja gefa og eða gera góð kaup
ættu að kíkja við. Allur ágóði af
sölunni rennur til góðgerðarmála.
Markaðurinn verður opinn alla
virka daga og á laugardögum frá 10
til 16.
„Mér finnst gaman hvað margir
hafa sýnt þessu áhuga. Það er alltaf
verið að spyrja mig hvort markað-
urinn fari í gang aftur og verði
starfandi í sumar,” sagði Margo
Renner sem ýtti markaðnum úr vör
á síðasta ári.
„Ég var svolítið lengi að koma
þessu í gang núna en ég vona að
þeir sem hafa haft samband við mig
og eiga eitthvert dót heima hjá sér
muni koma þvf til okkar núna að
Kirkjuvegi 19. Þar verður tekið á
móti notuðum hlutum sem geta
gagnast öðum og eru í heilu lagi.
Við tökum ekki við fatnaði þar sem
Rauði krossinn sér um það verk-
efni. Allt verður selt á frábærum
kjörum og búast má við skemmti-
legri markarðsstemmingu eins og
síðast. Opið verður frá kl. 10:00 til
16:00 alla daga vikunnar nema
sunnudaga og allir velkomnir á
þessum tíma bæði þeir sem ætla að
gefa hluti og gera góð kaup.“
Margo bendir fólki, sem er með
stóra hluti og erfítt er að flytja, s.s.
ísskáp eða þess háttar, á að taka
mynd og skrifa lýsingu, og hengja
upp á vegg hjá þeim. „Ef þið eruð
að leita að einhveiju sérstöku, t.d.
vinnuborði, vínglösum eða bama-
kerru verður hægt að láta skrá það
á lista og ef eitthvað slíkt kemur
inn þá verður hægt að hringja í
ykkur.“
Eins og síðast verður markaðurinn
rekinn sem góðgerðastarfsemi og
allur ágóði rennur til styrkar
ákveðnu verkefni. „Ánægjulegt er
að nota tækifærið og tilkynna að
ágóðinn frá síðasta ári verður
veittur til Unglingadeildar
Björgunarfélags Vestmannaeyja og
verður notaður til að styrkja fjögur
ungmenni á námskeið og ferð í úti-
vistarskóla á vegum Slysavama-
félagsins Landsbjargar,“ sagði
Margo að lokum.
Kvöldganga
eða síðbúin
Jónsmessu-
ganga
I dag, fímmtudagskvöld, 25. júní
kl. 22.00, verður hin árlega
Jónsmessunæsturganga.
Gengið verður frá Iþróttamið-
stöðinni á Helgafell, Sæfjall og til
baka vestur Hamarinn aftur að
íþróttamiðstöðinni. Sundlaugin
verður opin þetta kvöld til kl.
01.00.
Leiðsögumaður Bjarni
Halldórsson.