Fréttir - Eyjafréttir - 07.08.2008, Page 7
Fréttir /
7
Þjóðhátíðin 2008 verður hátíðin hans Páls Óskars. Hann sló í gegn á barnadagskránni og enginn náði upp meiri stuðningi en hann á stóra
pallinum.
Þjóðhátíðin er ein af gersemum
Eyjanna
-hugleiðingar Elliða Vignissonar að lokinni vel lukkaðri hátíð
ELLIÐI og f jölskylda í Brekkunni á föstudagskvöldið.
Þjóðhátíð okkar Eyjamanna á sér
lengri og sterkari hefð en aðrar
skemmtanir og hátíðir á Islandi.
Uppskriftin er ekki flókin en þrátt
fyrir ríkan vilja hefur engu öðru
bæjarfélagi eða skemmtanahöld-
urum tekist að leika þennan leik
eftir. Þjóðhátíðin er því einstök.
„Brekkusöngur, bálkösturinn allt á
sínum stað, blíðar meyjar vaskir
sveinar saman fylgjast að,“ segir í
einu af þjóðhátíðarlögunum okkar
en það þarf meira til. Þjóðhátíðin
er sameign okkar Eyjamanna allra.
Hún er ein af gersemum Eyjanna
og endurspeglar töfra samfélagsins
og því erum við öll ábyrg fyrir
henni í nútíð og framtíð.
Samheldni, hefðir og
gestrisni
Samheldni okkar Eyjamanna er
fyrir löngu orðin landsþekkt. Það
er ekki síst á þjóðhátíð sem reynir á
þessa samheldni og ár eftir ár
stöndumst við prófið. Þá komum
við Eyjamenn saman sem ein fjöl-
skylda og kappkostum að skemmta
hvert öðru með söng og hverskonar
samveru. Fjölskyldur eru tryggar
sínum eigin hefðum og ganga þær í
arf frá kynslóð til kynslóðar.
Kjötsúpuboð, lundaveislur, rjóma-
tertur og söngveislur eru meðal
þess sem gerir hátíðina okkar öðru-
vísi. Eftir að hafa verið á tæplega
40 þjóðhátíðum þá er það mín til-
finning að gestir okkar séu ætíð að
verða betri í að taka þátt í þjóðhá-
tíð. Virðing fyrir hefðum okkar
heimamanna hefur aukist og gestir
taka þátt í hátfðinni á okkar for-
sendum. Það er lfka afar ánægju-
legt að sjá hversu reiðubúnir
Eyjamenn eru til að opna heimili
sín og tjöld fyrir gestum og veita
þeim innsýn í þau forréttindi sem
það er að vera Eyjamaður. Þar að
auki eru gestir margfalt betur búnir
og tilbúnari til að bjarga sér sjálfir
ef veður setur strik í reikninginn.
Ástæða er til að hafa sérstaklega
orð á myndugleika þeirra ung-
menna sem hingað koma ár eftir ár.
Þau eru sjálfum sér til mikils sóma.
Þá verður seint oflofuð sú mikla
fórnfýsi sem mótshaldrarar og
velunnarar þjóðhátíðarinnar sína ár
eftir ár.
Breytingar eru framundan
Hátíðin sem nú var að Ijúka er um
leið sú stærsta og ein af þeim best
lukkuðu. Um 13.000 manns sóttu
hátíðina og þótt allt hafi gengið vel
þá er okkur öllum Ijóst að með
óbreyttu ástandi eigum við ekki
gott með að taka á móti mikið fleiri
gestum.
Hinsvegar liggur fyrir að það sem
hingað til hefur stjómað stærð
þjóðhátíðar er flutningsgetan til og
frá Eyjum. Eftir tvö ár tvöfaldast
þessi flutningsgeta. Nýr Herjólfur
sem siglir í Land-Eyjahöfn á innan
við 30 mínútur getur sennilega flutt
um 2800 manns á dag innan áætl-
unar og ef við gefum okkur að
skipið sigli allan sólarhringinn líkt
og Herjólfur gerir nú þá getur hann
flutt um 5000 manns á sólarhring.
Þar að auki má leiða líkur að því að
smærri farþegabátar og -ferjur eigi
hægara með að auka enn á mögu-
leika í fólksflutningum til Eyja.
Það er því ljóst að við Eyjamenn
þurfum að taka yfirvegaðar og
meðvitaðar ákvarðanir um þróun
þjóðhátíðarinnar.
Bærinn stendur áfram við
bakið á mótshöldurum
Vestmannaeyjabær hefur undan-
farin ár í góðri samvinnu við móts-
haldara lagt áherslu á að bæta
aðstöðu til mótshalds. Gönguleiðin
í Herjólfsdal hefur verið bætt mikið
sem og akstursleiðir bfla, hlaupa-
brautin hefur verið malbikuð, tjald-
stæðum heimamanna hefur verið
fjölgað og gæði þeirra aukin,
jarðvegsskipt hefur verið á álags-
blettum og þannig mætti áfram
telja. Á þessari leið þarf áfram að
halda. Afar mikilvægt er að allt
sem snýr að hreinsun og sorphirðu
verði tekið til endurskoðunar, bæta
þarf mannvirki og endurskoða
staðsetningu þeirra. Ljóst er að
brekkan ber ekki fleiri gesti en nú
var og huga þarf að bótum á stóra
sviðinu. Endalaust má áfram telja.
Stefnumótun þjóðhátíðar
Af þessum sökum hefur Vest-
mannaeyjabær í samráði við
Þjóðhátíðamefnd ákveðið að skipa
stýrihóp sem fara skal fyrir stefnu-
mótun þjóðhátíðarinnar. Hlutverk
stýrihópsins verður að móta fram-
tíðarstefnu fyrir þjóðhátíðina þar
sem meðal annars verður horft til
uppbyggingar á hátíðarsvæðinu,
áherslur í markaðssetningu, ör-
yggismála og annarra þátta sem
tryggja eiga að töfrar þjóðhátíðar
tapist aldrei og hún haldi áfram að
vera Eyjamönnum öllum til sóma.
Og þá mun allt verða eins og var
sko áður en þú veist, þú veist
og þetta eina sem út af bar
okkar á milli ífriði leyst.
Elliði Vignisson
bœjarstjóri
engum líkur
Því verður ekki á móti mælti að
brennan á föstudagskvöldinu,
flugeldasýningin á laugardags-
kvöldinu og
Brekkusöngurinn og blysin á
sunnudagskvöldinu, sem fá fólk
til að standa á öndinni, eru það
sem fólki finnst standa hæst á
þjóðhátíð. Ekki er ætlunin að
leggja dóm á framlag
skemmtikrafta á hátíðinni og
hver hafi staðið á toppnum á
þeim vettvangi. En fáir ná að slá
Páli Óskari við þegar hann
byrjar að þeyta skífur. Náði
hann upp ótrúlegri stemmningu á
stóra pallinum á sunnudags-
kvöldinu og þeir sem þar stigu
trylltan dans létu rigninguna í
léttu rúmi liggja. Enginn er jú
verri þó hann vökni.
Kjálkabrot
Einn var fluttur til Reykjavfkur
vegna kjálkabrots. Sex aðrar
líkamsárásir voru tilkynntar,
allar minniháttar og nokkur
þjófnaðarmál komu upp þar
greipar voru látnar sópa úr
tjöldum hátíðargesta.
Sautján fíkniefnamál komu upp
á þjóðhátíðinni í ár en lögreglan
lagði mikla áherslu á fíkniefna-
leit. Árið 2005 voru málin á
fimmta tug. I ár var um að ræða
amfetamín, kókaín, kannabis og
sýru og fundust efnin á fólki og
á víðavangi.
Oprútnir
ævintýra-
menn
Morgunblaðið greinir frá því að
boðið hafí verið upp á ferðir með
hraðbát sem flutti farþega út í
trillu sem flutti fólk til Eyja gegn
7000 króna greiðslu. Þarna voru
óprúttnir ævintýramenn á
ferðinni sem þama stefndu fólki
í stórhættu. Var fólk án
björgunarvesta og trillan sem
flutti fólkið til Eyja hefur ekki
leyfi til farþegaflulninga.
Betur fór en áhorfðist en hægt
er að taka undir með einum sem
stóð að flutningunum þegar hann
sagði að þetta hefði verið tómt
rugl.