Fréttir - Eyjafréttir - 09.10.2008, Page 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 9. október 2008
Anægja með niðurstöður ánægjuvogar Capacent þar sem
Vestmannaeyjar eru í íjórða efsta sæti af 15 sveitarfélögum:
I samræmi við kraft og
djörfung íbúa og atvinnulífs
-Segir í ályktun bæjarstjórnar - Fréttir leituðu álits nokkurra og eru þeir almennt
ánægðir með útkomuna þó alltaf megi gera betur
Bæjarstjórn fjallaði um niðurstöður
ánægjuvogar Capacent á síðasta
fundi sfnum. í könnuninni var mælt
viðhorf bæjarbúa til þjónustu
sveitarfélagsins og annarra þátta.
Bæjarstjórn fagnar niðurstöðunum
en samkvæmt þeim svara 91.8%
aðspurðra að þeir séu ánægðir með
Vestmannaeyjar sem stað til að búa
á. Einungis 1,2% kváðust óánægðir.
Þar með eru íbúar Vestmannaeyja
meðal þeirra ánægðustu í landinu.
Efst eru Seltjarnarnes, Garðabær,
Reykjanesbær en Vestmannaeyjar
eru í fjórða sæti af þeim 15 sveitar-
félögum sem mæld voru og það
eina af sex efstu sem falla utan
höfuðborgarinnar.
Neðst eru Reykjavík, Árborg,
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað.
I framhaldi af þessari niðurstöðu
samþykkti bæjarstjóm ályktun þar
sem segir að hún telji niðurstöð-
urnar í samræmi við þann kraft og
þá djörfung sem íbúar og atvinnulíf
hér hafí sýnt seinustu tvö ár. „Þá er
einnig hverjum degi ljósara að
niðurstöðurnar eru fyrst og fremst
stór rós í hnappagat starfsmanna
Vestmannaeyjabæjar," segir í fund-
argerð bæjarstjórnar og vakin er
einnig athygli á því hversu undar-
lega háttar til að á meðan ibúum í
Vestmannaeyjum fækkar mælast
þeir meðal þeirra ánægðustu á land-
inu.
Er vitlaust gefið?
„Slíkt telur bæjarstjórn merki um
að vitlaust sé gefið. Bæjarstjórn
spyr því hvert sé hið raunverulega
frelsi til búsetu þegar ánægðustu
íbúar landsins flytja frá Vestmanna-
eyjum í bæjarfélag á suðvestur-
horninu þar sem ánægjan er um-
talsvert minni? Það sem öðru frem-
ur viðheldur straumi á suðvestur-
hornið er opinber uppbygging á því
svæði. Bæjarstjórn hvetur
nkisstjóm Islands til að standa vörð
um landsbyggðina og setja frelsi til
búsetu efst á lista forgangsröðunar í
byggðamálum."
Undir þetta skrifuðu allir bæjar-
fulltrúarnir sjö, Elliði Vignisson
(D), Guðlaugur Friðþórsson (V),
Gunnlaugur Grettisson (D), Kristín
Jóhannsdóttir (V), Páley
Borgþórsdóttir (D), Páll Marvin
Jónsson (D) og Páll Scheving
Ingvarsson (V).
Ekki hægt annað en vera
ánægður
„Varðandi niðurstöður Capacent
um ánægju Eyjamanna þá er ekki
annað hægt en að vera mjög sáttur
miðað við allt sem hefur verið að
gerast á síðustu árum,“ segir Jón
Pétursson, framkvæmdastjóri fjöl-
skyldu- og fræðsusviðs hjá
Vestmannaeyjabæ.
„Á undanfömum tveimur árum
hefur mikið verið að gerast innan
þeirra málaflokka sem ég ber
ábyrgð á, sem er félagsþjónusta,
fræðslu- og uppeldismál og svo
æskulýðs- og íþróttamál. Margar
stórar ákvarðanir og breytingar hafa
verið teknar og árangurinn er að
koma fram. Þar ber að nefna sam-
einingu gamla Sóla og Rauðagerðis
í nýjum leikskóla, aldursskiptingu
Grunnskóla Vestmannaeyja og mik-
Jón: Mikil jákvæðni bæjarbúa
snýst ekki bara um þjónustu
bæjarins heldur einnig um önnur
búsctuskilyrði sem lúta að at-
vinnuöryggi, samgöngum,
þjónustu rfkisins o.fl.
Helena: Aftur á móti heyri ég
ckki mikið af þeim sem eru með
börnin sín á biðlista fyrir leik-
skólaplássi. Það fer meira í geg-
num skólskrifstofuna og þá leik-
skólafulltrúann.
lar framkvæmdir í Barnaskóla
Vestmannaeyja, sameiningu skóla-
dagheimilins, athvarfsins og
lengda viðveru fatlaðra barna í
Frístundaverinu f Þórsheimilinu,
stofnun Vosbúar, þar sem er þjón-
usta við ungt fólk, flutninga félags-
miðstöðvar barna af Heiðarvegin-
um í Rauðagerði, framlengingu
þjónustusamnings málefnis fatlaðra
og þróun þeirrar þjónustu, úttekt á
málefnum aldraðra, jafnréttisáætlun
bæjarins og ekki síst sameiningu
sviðsins sem fólst í sameiningu
félags- og fræðslusviðs, þ.m.t.
æskulýðs- og íþróttamálin.
Vestmannaeyjabær hefur á að
skipa mjög hæfu og góðu starfs-
fólki sem hefur tekist vel að mæta
breyttu umhverfi og lagt sig fram
um að þjónustan verði góð. Eg er
sammála bæjarstjórn um að niður-
stöðurnar er fyrst og fremst stór rós
í hnappagat starfsmanna Vest-
mannaeyjabæjar."
Jón sagði að annað og meira væri
hægt að lesa úr þessum niður-
stöðum: „Mikil jákvæðni bæjarbúa
snýst ekki bara um þjónustu bæjar-
ins heldur einnig um önnur búsetu-
skilyrði sem lúta að atvinnuöryggi,
Fanney: Það skólaár einkenndist,
eins og allir muna, af miklum
breytingum á skólastarfinu og
skólahúsnæðinu og bæði nem-
cndur og starfsfólk bjuggu, á
köflum, við talsvert skrautlegar
aðstæður til náms og starfa.
samgöngum, þjónustu ríkisins o.fl.
Við búum á stað þar sem atvinnu-
lífið er mjög sterkt og stöndugt,
von er á stórbættum samgöngum,
góð þjónusta frá ríkinu s.s. heil-
brigðisþjónusta og framhaldsskóla.
Jákvæður andi smitar út frá sér og
auðveldar lífið töluvert.
Eg hef búið hér í rúmlega 16 ár
og upplifað tímabil sem hefur verið
frekar óþægilegt. Tæplega 900
manns hefur flutt í burtu, óöryggi
með atvinnulífíð og samgöngur
legið í loftinu, rekstur og staða
bæjarkassans verið erfið og menn
neitað að horfast í augu við
staðreyndir. Auðveldast hefði verið
að pakka saman og skella sér í
partýið á höfuðborgarsvæðinu.
Það gerði ég ekki heldur hef ég
einsett mér eins og margir aðrir að
hætta að hlusta á neikvæðu radd-
imar og skapa frekar samfélaginu
jákvæða þróun. Niðurstöðumar
staðfesta að við erum á réttri leið
og stefnum að því að færa okkur
enn ofar í þessari könnun. Skilyrðin
eru til staðar. Jákvæður andi,
jákvætt rekstrarumhverfi, dugnaður
atvinnulífsins, samheldni íbúa og
pólitíska umhverfið.
Við erum komin í úrvaldsdeildina
eins og Elliði bæjarstjóri sagði og
þar komum við til með að halda
okkur,“ sagði Jón að lokum.
Ánægja þrátt fyrir breyt-
ingar
„Niðurstöðurnar eru sannkallað
ánægjuefni fyrir okkur öll sem
búum í Vestmannaeyjum," sagði
Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri
Gmnnskóla Vestmannaeyja, um
niðurstöður könnunarinnar.
„Sem skólastjóri grunnskólans er
mér sá hluti eðlilega hugleiknastur
og þar kemur fram að þegar könn-
unin var gerð voru 59.7 % að-
spurðra frekar, eða mjög ánægðir
með þjónustu grunnskólans. Þetta
finnst mér ánægjulegt að sjá í ljósi
þess að könnunin var gerð í lok
síðasta skólaárs. Það skólaár ein-
kenndist, eins og allir muna, af
miklum breytingum á skólastarfinu
Rut: Starfsmenn stjórnsýslu- og
fjármálasviðs sem og aðrir starfs-
menn Vestmannaeyjabæjar legg-
ja sig ávallt alla fram við að veita
bæjarbúum góða og persónulega
þjónustu.
og skólahúsnæðinu og bæði nem-
endur og starfsfólk bjuggu, á
köflum, við talsvert skrautlegar
aðstæður til náms og starfa. Þrátt
fyrir það gekk skólastarfið vel og
aldursskipti grunnskólinn okkar
steig sín fyrstu skref af talsverðu
öryggi, þökk sé því frábæra starfs-
fólki sem við höfum á að skipa.
I vetur emm við sannfærð um að
við séum að gera enn betur. Nú er
stærstum hluta framkvæmda á
skólahúsnæðinu lokið, mötuneyt-
ismálin komin í góðan farveg og
ýmsar nýjungar í gangi í viðleitni
okkar til að gera góðan skóla enn
betri. Eg er því viss um að væri
þessi könnun endurtekin í vetur
myndum við sjá enn betri
niðurstöður," sagði Fanney að
endingu.
Munum nýta niðurstöður
til að gera betur
„Við starfsmenn hér í Ráðhúsinu
erum að sjálfsögðu mjög ánægð
með úlkomuna úr Capacent könn-
uninni,“ sagði Rut Haraldsdóttir,
framkvæmdastjóri stjómsýslu- og
fjármálasviðs.
„Starfsmenn stjómsýslu- og fjár-
málasviðs sem og aðrir starfsmenn
Vestmannaeyjabæjar leggja sig
ávallt alla fram við að veita bæjar-
búum góða og persónulega þjón-
ustu.
Tæplega 80% svarenda höfðu
samskipti við bæjar- eða sveitar-
stjómarskrifstofur Vestmannaeyja-
bæjar á sl. tveimur áram. Spurt var
hversu vel eða illa fólki fannst
starfsfólk Vestmannaeyjabæjar hafa
leyst úr erindum þeirra og svöruðu
tæplega 75% mjög vel eða nokkuð
vel. Erum við mjög sátt við það, þó
alltaf megi gera betur.
Við munum nota þessa könnun í
framtíðinni til þess að læra af henni
og bæta okkur í þeim þáttum sem
komu ekki nógu vel út. I þessu
fellst líka ákveðin hvatning til
okkar allra að standa okkur vel í
starfi.
Vil ég nota tækifærið og hrósa
starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar
ARNAR: Það gæti verið
athyglisvert að fá upp á yfir-
borðið hjá þeim er svöruðu
hvorki né og eru frekar
óánægður hvað það er sem vel-
dur því til að sjá hvað hægt er að
bæta.
fyrir vel unnin störf,“ sagði Rut að
lokum.
Fólki finnst gott að búa hér
„Þetta era ánægjulegar niðurstöður.
Ef við skoðum þá sem eru mjög
eða frekar ánægð í flokkunum þá er
það nær allstaðar 60% og yfir. Þetta
hlýtur að segja okkur að fólki
almennt finnst gott að búa hér og
vilji lifa og starfa í Vestmanna-
eyjum,“ sagði Arnar Hjaltalín, for-
maður Drífanda stéttarfélags.
„Það gæti verið athyglisvert að fá
upp á yfirborðið hjá þeim er svör-
uðu hvorki né og frekar óánægður
hvað það er sem veldur því til að
sjá hvað hægt er að bæta.
Dagvistunarmál, skólamál og
sérstaklega íþróttir skora hátt en
umhverfismálin ekki, enda þarf
sannarlega að taka þar til hendinni.
Af hverju var ekki spurt um
öldranarþjónustuna? En við getum
verið sátt við þessa niðurstöðu og
hún gefur okkur byr til þess að gera
enn betur á komandi árum,“ sagði
Amar.
Jákvætt fyrir sveitarfélagið
„Eg er ánægð með heildamiður-
stöðumar, sem eru afar jákvæðar
fyrir sveitarfélagið,“ sagði Helena
Jónsdóttir, skólastjóri Leikskólans
Sóla.
„Og ef ég horfi á það sem snýr að
leikskólum þá get ég ekki verið
annað en ánægð. Jafnframt er mín
upplifun gagnvart foreldrum já-
kvæð. Við erum í góðum sam-
skiptum við þá og samvinna varð-
andi uppeldi er gott.
Við höfum sett okkur það mark-
mið að taka vel á móti öllum sem í
leikskólann koma og það er gert til
að foreldrar verði öraggir gagnvart
því sem við bjóðum uppá. For-
eldrar treysta okkur fyrir bömunum
sínum og við þökkum fyrir það
traust.
Aftur á móti heyri ég ekki mikið
af þeim sem eru með bömin sín á
biðlista fyrir leikskólaplássi. Það
fer meira í gegnum skólaskrifstofu-
na og þá leikskólafulltrúann. En
yfir heildina litið eru þetta góðar
niðurstöður," sagði Helena.
Bæjarstjórn hvetur ríkisstjórn íslands til að standa vörð um landsbyggðina og
setja frelsi til búsetu efst á lista forgangsröðunar í byggðamálum.