Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2009, Qupperneq 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 16. júlí 2009
Skemmdir
á bíl og
brotin
rúða
Það var frekar rólegt hjá lög-
reglu í vikunni sem leið og
ekkert alvarlegt sem kom upp.
Nokkrar tilkynningar bárust
þó lögreglu vegna ölvunar og
stympinga en engin eftirmál
hafa orðið vegna þeirra.
Tvö skemmdarverk voru til-
kynnt til lögreglunnar í vikunni
sem leið og var í öðru tilvikinu
um að ræða skemmdir á bif-
reið. Hún hafði verið rispuð
aftan við vinstri afturhurð.
Talið er að skemmdirnar hafi
verið unnar aðfaranótt 10. júlí
sl. þar sem bifreiðin stóð við
Ásaveg 21.
I hinu tilvikinu var um að
ræða rúðubrot í húsi Drífanda-
stéttarfélags að Mistræti 11 en
rúðan mun hafa verið brotin
aðfaranótt 11. júlí sl.
Þar sem engar upplýsingar
eru um hverjir eru gerendur í
þessum tveimur tilvikum óskar
lögreglan eftir því að þeir sem
eitthvað vita um hverjir þarna
voru að verki, hafi samband
við lögreglu.
Tvo ohopp
í umferð-
inni
Tvö umferðaróhöpp voru til-
kynnt lögreglu í vikunni og var
í báðum tilvikum um minni-
háttar óhöpp að ræða og engin
siys á fólki.
Sex kærur liggja fyrir vegna
brota á umferðarlögum. I
fjórum tilvikum er um að ræða
kærur vegna vanrækslu á að
nota öryggisbelti í akstri.
Þá liggur ein kæra fyrir vegna
hraðaksturs og ein vegna ólög-
legrar lagningar ökutækis.
Ný lög valda taugatitringi meðal stofníjáreigenda í sparisjóðunum:
Heimilt að lækka stofnfé
-Vitum lítið um framhaldið - Líklegt að tekið verði mið af stöðu hverrar
fjármálastofnunar fyrir sig, segir Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri
FRÁ fundi stofnfjáreigenda sem geta tekið ákvörðun um lækkun stofnfjár.
Ný lög um fjármálafyrirtæki voru
samþykkt á alþingi sl. föstudag.
Talsverða athygli hefur vakið að
lögin kveða á um að stjómir spari-
sjóða geta lagt til að fundur
stofnfjáreigenda taki ákvörðun um
lækkun stofnfjár. Hefur þessi
umræða valdið nokkrum taugatitr-
ingi meðal stofnfjáreigenda í spari-
sjóðum víðs vegar um land sem
margir hverjir hafa lagt talsvert fé í
sparisjóði landsins.
Þegar Ólafur Elísson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja, var
spurður út í breytingarnar sagði
hann lagabreytinguna tvíþætta. Hún
opnar vemlega á heimildir spari-
sjóða um víðtækt samstarf sín á
milli og einnig er búið að heimila
lækkun á stofnfé sem fyrir er í
sjóðum þar sem rikið kemur inn
með nýtt stofnfé.
„Því miður hafa ákvæðin um aukið
samstarf fengið litla umfjöllun í
fjölmiðlun og á þingi en mér finnst
þau mjög mikilvæg," sagði Ólafur
og á þar við að sparisjóðum er m.a.
heimilt að hafa ráðgjöf um áhættu-
stýringu, rekstur upplýsingakerfa,
bókhald, greiningu og skýrslugerð
til eftirlitsstofnana, lögfræðiráðgjöf,
vömþróun og markaðssamstarf um
sameiginleg vömmerki, innlend og
erlend greiðslumiðlun og þjónustu
við erlend viðskipti o.fl.
„Lögin gera einnig ráð fyrir að
stofnfáreigendafundur geti tekið
ákvörðun um lækkun stofnfjár til
jöfnunar taps sem ekki verður jafn-
að á annan hátt. „Það hlýtur að vera
mismunandi eftir stöðu sparisjóða
hvernig þetta verður gert. Neyð-
arlögin vom sett í byrjun október og
þann 18. desember voru gefnar út
reglur um hvaða skilyrði sparisjóðir
þyrftu að uppfylla til að ríkið kæmi
inn með aukið stofnfé.
Fjármálastofnunum var gefinn kost-
ur á að koma með athugasemdir við
drög að nýjum lögin og stjórn
Sparisjóðs Vestmannaeyja skilaði
sínum sjónarmiðum. Snemma í
mars sótti Sparisjóðurinn eftir
auknu stofnfé frá ríkissjóði. Fjár-
málaráðuneytið hefur umsókn
Sparisjóðsins til meðferðar og hefur
skoðað stöðu sjóðsins ýtarlega en
við höfum ekki fengið viðbrögð
ennþá frá ráðuneytinu um 20%
stofnfjárframlag en sennilega var
beðið eftir að nýju lögin tækju
gildi,“ sagði Ólafur og var í fram-
haldinu spurður hvort hann teldi lík-
legt að stofnfé Sparisjóðs Vest-
mannaeyjar yrði fært niður.
„Við vitum lítið um framhaldið en
mér finnst líklegt að tekið verði mið
af stöðu hverrar fjármálastofnunar
fyrir sig,“ sagði Ólafur og átti von á
að málin skýrðust fljótlega.
Þrjár hollenskar skútur voru í
höfn í Eyjum á mánudaginn og
ein norsk. Ein þeirra, Songo
d'Oro, kom hingað til þess að
láta athuga með sinkið á botni
skútunnar.
Upphafið er að eigandinn, Holl-
endingurinn Henry, hitti tuðru-
farana frá Eyjum í Færeyjum
Bauð hann þeim um borð og
þegar 14 voru komnir um borð
til hans var skútan sigin eins og
loðnudallur. Meðal þeirra voru
Smári Harðarson, kafari og
Snorri Jónsson. Henry þurfti að
láta skipta um sink á skútunni og
var Smári tilbúinn að redda því
fyrir þennan nýjasta vin
Vestmannaeyja.
Smári stóð við orð sín og ekki
voru sinkin illa farin en Smári
hreinsaði gróður af botnsjám
mælitækja skútunnar. Hollend-
ingurinn Henry þakkaði fyrir sig
með því að taka fram ferðagrill
sitt og grillaði kjöt handa Smára.
HENRY, Smári og Snorri og
skútan Songo d'Oro sem útleggst
sem Óskagullið.
Hugur í Hressófólki - Hver missir mest?
Nú er mikill hugur í Hressófólki.
Átak í gangi og allir leggja sig fram
um að komast í form fyrir þjóð-
hátíð. Þátttakendur, sem eru 32,
eiga nú í harðri baráttu um hver
missir mest enda vegleg verðlaun
fyrir sigurvegarann.
Átakið stendur í rúman mánuð og
lýkur 24. júlí. Ónafngreind kona, á
besta aldri, mætir í ræktina tvisvar
á dag og æfir úti þess á milli. Enda
lætur árangurinn ekki á sér standa
og kílóin fjúka og er hún við það
að vera í einu af fimm efstu sæt-
unum. Ef hún sigrar í keppninni
verður hún til sýnis í Dalnum um
þjóðhátíð og verður það þá auglýst
síðar.
Karlamir gefa heldur ekkert eftir
og em sömuleiðis í toppsætunum.
Þeir eiga það til að mæta í varma-
fötum og vatnslausir á æfingar en
gefa lítið upp um æfingaprógrömm
og mataræði.
Bryddað hefur verið upp á ýms-
um nýjungum á Hressó, m.a. em
sportbúðir í gangi, 40 mínútna
brennslutímar, tekið er sérstaklega
á iðkendum í hádegistfmum hvort
sem er í tækjatímum eða hjólatím-
um. Viðskiptavinir hafa því nánast
aldrei vitað á hverju þeir ættu von
enda herðir það þá sem vilja sem
fyrst komast í form. T.d. geta þeir
allt eins verið í pallapúli í
Skvísusundi áður en við er litið eða
eitthvað annað álíka spennandi.
Fólkið sem stundar Hressó er því
sífellt að bæta heilsuna þar sem
hreyfing og hollt mataræði er lykil-
atriði.
Frá Hressó.