Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2009, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 16. júlí 2009
13
BUBBI: Ég man þetta mjög vel því ég kom til Eyja eftir vertíðarlok frá Hornafirði. Ég kom til Eyja 12. maí 1974 og var meira og mhma í Eyjum til ársins 1978. Þarna kynntist
maður þessu blómlega lífi sem fylgdi vertíðum í Eyjum.
S __
Bubbi svarar gagnrýni - Hef skoðun og hef rétt á henni - Atti góð ár í Eyjum
Mikil áskorun fyrir mig að
semja þjóðhátíðarlagið
-Margar perlur dægurlagatónlistarinnar í þeim hópi - Svara gagnrýninni með laginu -
Nínon bræður þjóðsagnapersónur - Tímabært að setja Bjössa í Klöpp í lag og texta
Viðtal
Júlíus G. Ingason
Julius @ eyjafrettir. is
A hverju ári er reynt að minna eins mikið á
þjóðhátíðina og mögulegt er í fjölmiðlum og
stór hluti af markaðssetningunni er þjóðhá-
tíðarlagið. Þegar fréttist að Bubbi Morthens
ætti að semja þjóðhátfðarlagið í ár, hrukku
margir við enda voru sumir Eyjamenn ósáttir
við frammistöðu Bubba í fyrra, bæði á þjóð-
hátíð og á tónleikum sem hann hélt í Höllinni.
En það verður ekki tekið af Bubba að hann
kann að semja lög og þjóðhátíðarlagið hans
hittir í mark.
Bubbi var á leið í veiði þegar blaðamaður
Frétta heyrði í honum hljóðið en hann sagðist
hafa gengið með hugmynd að laginu í
nokkurn tíma. „Það er auðvitað mikil áskor-
un að semja þjóðhátíðarlagið enda margar
perlur dægurlagatónlistarinnar eru einmitt
þjóðhátíðarlög. Lögin hafa reyndar verið æði
misjöfn en sum eru frábær og þess vegna
fylgir því smá pressa að semja lagið. Ég vildi
gera góðan brekkusöng en um leið lag með
skírskotun bæði til Vestmannaeyja og Islands.
Eyjan mín, getur auðvitað bæði táknað Vest-
mannaeyjar og Island, þó svo að lagið fjalli
um Vestmannaeyjar."
Segi söguna eins og hún er
Samdirðu lagið sérstaklega eða áttir þú það á
lager?
„Nei, ég samdi það sérstaklega fyrir þjóð-
hátíðina. Ég var reyndar með ákveðnar hug-
myndir þegar kom að því að semja lagið því
Palli Scheving hafði m.a. minnst á það að fá
mig til að semja lagið einhvem tíma. Annar
Palli, en Eyjamaður líka, Páll Magnússon,
útvarpsstjóri hafði líka nefnt það við mig að
það væri skandall að ég væri ekki búinn að
semja Eyjalag. Svo kom kallið frá
þjóðhátíðamefnd og þá var ég ágætlega undir
það búinn að semja lagið,“ sagði Bubbi.
í textanum má finna nokkra samtíðarmenn
Bubba frá því að hann var hér á vertíðum á
ámnum 1974 til 1978. Sungið er um Nínon
bræður, þá Stjána og Sibba, Bjössa í KIöpp
sem kunni hnefatal, Eirík hest og Magga
mann, sem var fyrstur úr jakkanum eftir ball.
Bubbi sagðist ekkert hafa óttast að semja
texta um þessa menn. „Nei, nei, alls ekki.
Nínon bræður voru t.d. þjóðsagnapersónur
þegar ég var úti í Eyjum og það hefði fyrir
löngu átt að vera búið að setja Bjössa í Klöpp
í eitthvað Iag. Þessir menn sem ég syng um
vom margir hverjir þekktir langt út fyrir
Eyjamar og þekkt saga að jaxlar af aðkomu-
bátum vildu reyna sig gegn Bjössa á sínum
tíma, svo öflugur var hann.
Eiríkur hestur var líka gríðarlega öflugur og
Maggi maður talaði um það sjálfur að hann
væri fyrsti maður úr jakkanum eftir ball.
Með þessu er ég alls ekki að gera lítið úr
þessum hetjum heldur segja söguna eins og
hún er,“ sagði Bubbi.
En hefurðu fengið viðbrögð við laginu?
„Jákvæð, bæði frá útvarpsfólki og fólki úti á
götu. Það hefur enginn hreytt í mig ónotum
ennþá þannig að þetta hlýtur að vera í lagi.
Ég fékk reyndar gagnrýni fyrir að gera ekki
KR-texta við þetta góða lag. KR-ingar hefðu
viljað eiga lagið," sagði Bubbi og hló en hann
samdi einmitt KR-lagið á sínum tíma.
Svaraði gagnrýnisröddum með
laginu
Bubbi segist ekki hafa áhyggjur af þeirri
gagnrýni sem hann hefur fengið frá Eyjum.
„Ég veit af þessu og þetta beinist sérstaklega
að því þegar ég hélt tónleika um veturinn og
gagnrýndi samstöðu fólksins með Arna
Johnsen þegar hann vann að því að komast
inn á þing aftur. Ég setti út á þennan stuðning
því ég hafði í tvígang séð hluti gerast á sviði
hjá Árna sem hann svo neitaði fyrir. Ég talaði
um að fólk ætti ekki að vera meðvirkt og
stend við það enn þann dag í dag. En við
skulum hafa það á hreinu að Árni Johnsen er
hinn vænsti maður og okkar samskipti hafa
alltaf verið góð. En ég hef skoðun og hef rétt
á henni, hvort sem það fer illa í einhverja eða
ekki.
Ég tel að ég hafi svarað gagnrýnisröddunum
með þjóðhátíðarlaginu. Og ég vona að þeir
sem gagnrýndu mig á sínum tíma, standi upp
í brekkunni, syngi með, klappi saman hönd-
unum og hylli þá félaga sem koma fram í
textanum."
Hvað með þá gagnrýni að frammistaða þín á
þjóðhátíðinni ífyrra hafi ekki verið nógu
góð?
„Frammistaðan var mjög góð, mér fannst ég
bara flottur á þjóðhátíðinni í fyrra. Ég get
lofað Eyjamönnum því, að þeir þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því að ég standi mig ekki á
sviðinu á þjóðhátíð. Það hef ég gert undan-
farin ár og ætla ekki að hætta því núna,“ sagði
Bubbi ákveðinn.
Skemmtilegur tími í Eyjum
Eins og áður sagði dvaldi Bubbi í Eyjum
meira og minna í fjögur ár, frá 1974 til 1978.
Hann segir þennan tíma hafa verið æði
skemmtilegan. „Sumarið 1974 var til dæmis
eitthverl mesta sólarsumar sem ég man eftir
og þá var gaman að vera í Eyjum. Það var
svo gaman að geta hlaupið upp á Heimaklett
og fengið sér sopa,“ sagði Bubbi og hló inni-
lega.
„Ég man þetta mjög vel því ég kom til Eyja
eftir vertíðarlok frá Homafirði. Ég kom til
Eyja 12. maí 1974 og var meira og minná í
Eyjum til ársins 1978. Þama kynntist maður
þessu blómlega lífi sem fylgdi vertíðum í|
Eyjum. Ég var á verbúð í Vinnslustöð,
ísfélaginu og í Fiskiðjunni og bjó um tjrria á
Kirkjuveginum fyrir neðan Bankann. Ég: man
lika eftir verkstjóra í ísfélaginu, henni Siggu,
sem þótti harðdugleg og öflug kona. Hún var
á þessum tíma amman á verbúðunum og svo
komst ég að því um daginn að hún er enn á
lífi, 101 árs gömul. En þetta var flottur óg
skemmtilegur tími í Eyjum og með textaþum
vildi ég aðeins minnast þeirra sem voru svo
áberandi á þessum tíma.“
Ertu spennturfyrir þjððháfíöinni?
„Já, ég er það eins og alltaf þegar ég kem á
þjóðhátíð. Það er jafnvel inni í myndinnj hjá
mér að taka fjölskylduna með rriér til Eyja og
njóta hátíðarinnar með henni. Vjð skulum sjá
til hvort það gangi upp,“ sagði Bubbi.
Samkeppnin er harðari
Bubbi hefur verið á fleygiferð í sumar með
hljómsveit sinni EGÓ sem snýr nú aftur.
EGÓ fylgir Bubba á þjóðhátíðina. „Þetta
hefur bara gengið glimrandi vel í sumar. Við
höfum verið að koma út lögum sem hafa
fengið góðar viðtökur þannig að við höfum
ekki yfír neinu að kvarta. Það er enn til
sveitaballastemmning í landinu en hún hefur
breyst. Nú eru færri hús og samkeppnin
harðari meðal hljómsveita. Platan okkar
kemur út í október en ég vil ekki tilkynna
nafnið á henni strax. Ég geri það kannski á
þjóðhátíðinni,“ sagði Bubbi hlæjandi að
lokum.
Ég get lofað Eyjamönnum því, að þeir þurfa ekki að
hafa áhyggjur af því að ég standi mig ekki á sviðinu á
þjóðhátíð. Það hef ég gert undanfarin ár og ætla ekki
að hætta því núna,“ sagði Bubbi ákveðinn.