Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Blaðsíða 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 30. desember 2010 ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR VE er hið glæsilegasta skip í alla staði og öll vinna mjög vönduð sama hvar litið er. í áhöfn verða fjórtán til fimmtán og eru íbúðir skipverja mjög vistlegar. Þórunn var til sýnis á annan í jólum og nýttu margir tækifærið til að skoða skipið að innan. Meðal annars Þær systur Þóra og Guðbjörg Sigurjónsdætur sem hér eru með Sigurjóni útgerðarmanni og syni Þóru. Ný Þórunn Sveinsdóttur VE 401 - Á ýmsu gekk á smíðatímanum: Tvær skipasmíðastöðvar á hausinn áður en tókst að ljúka smíði á skrokknum Ekki gekk smíðin á nýrri Þórunni Sveinsdóttur snuðrulaust fyrir sig. Skrokkurinn er smíðaður í Póllandi en innréttingar og frágangur á vélum og öðrum búnaði var unninn í Danmörku. Skipasmíðastöðin í Póllandi fór á hausinn og varð að semja við aðra. Tafði það verkið um nokkra mánuði og síðan féll nánast allt bankakerfið á íslandi. Nýr íslandsbanki samdi við útgerðina um áframhaldandi fjármögnun smíðinnar í byrjun árs 2009 og var það ein fyrsta jákvæða fréttin sem kom úr þeirri áttinni eftir hrunið haustið 2008. Hrunið afmarkaðist ekki bara við ísland, Pólverjar fóru líka illa út úr kreppunni. Fór seinni skipa- smíðastöðin einnig í þrot en smíðin endaði hjá skipasmíðastöð í eigu sömu samsteypu. Þeir kláruðu skrokkinn og þá tók við Karstens Skibsværft í Danmörku en Pólverjarnir voru undirverktakar þeirra. Þórunn Sveinsdóttir VE er hið glæsilegasta skip í alla staði og öll vinna mjög vönduð sama hvar litið er. í áhöfn verða fjórtán til fimmtán og eru íbúðir skipverja mjög vist- legar. Þórunn var til sýnis á annan í jólum og nýttu margir tækifærið til að skoða skipið að innan. Þórunn Sveinsdóttir VE er 39,95 metra löng og 11,20 á breidd og aðalvélin er af gerðinni MAK. VIÐAR skipstjóri og eiginkonunni, Eygló Elíasdóttur. Mikið framundan í Höllinni s Otímabær lok á jóladansleik vegna misskilnings Aðfaranótt ntánudagsins var haldinn dansleikur í Höllinni en klukkan þrjú um nóttina birtist lögreglan og vísaði gestum út. Ekki voru allir á eitt sáttir við það en síðar kom í Ijós að lögreglunni urðu á mistök, þar sem dansleikurinn mátti vera lengur. Bjarni Olafur Guðmundsson, rekstraraðili Hallarinnar sagði í samtali við Fréttir að þetta hafi verið óheppilegt. „Fyrst og síðast erum við leið yfir þessu og biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á þessu. Auðvitað varð eitthvað fjárhagslegt tjón en ég er alls ekki að álasa lög- reglunni, enda voru þeir aðeins að vinna vinnuna sína. En fyrst og fremst var þetta leiðinlegt fyrir okkar viðskiptavini. Það er hins vegar nóg fram- undan í Höllinni. Arlegur Gamlársdansleikur með Dans á rósum, Nýársdansleikur með Landi og sonum, ball með Vinum vors og blóma á föstu- degi Þrettándahelgarinnar og tónleikar með Bjartmari og Bergrisunum á laugardeginum. „Ef það þarf að færa Þrett- ándagleðina yfir á laugardag, þá víxlast dagarnir þannig að ballið yrði á laugardeginum og tónleikarnir á fóstudeginum. Þannig að það er nóg um að vera hjá okkur í Höllinni. Svo áttu Ingó og Veðurguðirnir að vera á 2. í jólum en þeir komust ekki vegna veður. Spurning hvort þeir fari ekki að endur- skoða nafnið á sveitinni,“ sagði Bjarni Olafur að lokum. Nýjan Herjólf sem fyrst „Það er brýnt að samgönguráðherra hefji þegar undirbúning að smíði nýrrar ferju sem hentar betur þessari siglingaleið. Þá þarf að tryggja að dæluskip sé á staðnum eins mikið og þörf er á. Bæta þarf upplýsinga- gjöf um ferðir og pöntunarkerfi ferj- unnar samhliða þessu,“ segir Róbert Marshall, þingmaður Sam- fylkingarinnar á Suðurlandi. Hann hefur gagnrýnt bæði Sigl- ingastofnun og samgönguráðherra fyrir framtaksleysi í málefnum Landeyjahafnar. Fyrir hafi legið að sandburður um Markarfljót yrði margfaldur sem kallaði á umfangs- miklar dýpkunarframkvæmdir til þess að halda höfninni opinni, mögulega fyrstu árin. „Ekkert af þessu á að koma Siglingastofnun á óvart. Samt virðist það raunin ef miðað er við seinaganginn og brasið sem einkennt hefur viðleitni stofn- unarinnar til að hafa nauðsynlegan búnað á svæðinu,“ sagði Róbert sem krefst þess að dælt verði úr höfninni þegar gefur og nauðsyn er. „Þegar ég segi að það skorti póli- tíska forystu í málið þá á ég við að samgönguráðherra tryggi að allt sé gert til að halda höfninni opinni. Eg hef jafnframt oftar en einu sinni hvatt hann til að hefja þegar vinnu að smíði nýrrar ferju en ekkert gerist. Eg er ekki með neinar digur- barkalégar yfirlýs'ingar, eins og ráðherrann heldur.fram, heldur er þetta jákvæð hvatning um að gera betur. Eftir fjóra til fimm mánuði erum við að detta innf einhverja mestu ferðamannatrafffk sögunnar í Eyjum og því gildir að nýta tímann vel. Við ættum að geta verið komin með nýtt skip að ári en það kallar á samstillt átak allra Eyjamanna ekki seinna en strax. Þá þarf hönnunar- og útboðs- ferli að heljast núna í janúar og stjórnvöld að halda fast um taumana. Eg er sannfærðari en nokkru sinni að Landeyjahöfn hafi verið rétt ákvörðun. Ég hef trú á þessari framkvæmd og við verðum öll að hafa trú á henni og tala hennar máli,“ sagði Róbert að endingu. Siggi Gúmm skrifar: Þá var kátt í Höllinni Ég hef alltaf hrifist af Palla Scheving fyrir það hvað hann er góður penni. Fannst mér trampó- línbuddugreinin hans í V-blaðinu mjög góð, en þegar kemur að nafngiftinni á sparkhúsinu, er ég ósammála honum. Mér finnst ekkert óeðlilegt að menn vilji tjá sig um nafngiftina, húsið á að heita Hásteinshöllin og ekkert annað. Eimskip getur fengið sitt merki á hana meðan þeir styrkja íþróttastarfið. Mér finnst ekkert að því að halda í gamlar hefðir og óþarfi að hæðast að því. Týsheimilið heitir Týsheimili í mínum huga og Þórsheimilið Þórsheimili og grasvöllurinn Hásteinsvöllur. En eflaust verður gaman að horfa á leik með Palla Scheving og fleirum í Samskips- stúkunni við Hásteinsvöll í skjóli Eimskipshallarinnar og sjá Nethamarsboltann rúlla á grænu grasinu í næstu framtíð. Gleðilegt ár Eyjamenn og konur Siggi Gúmrn. Gengið til styrktar Krabbavörn Árleg ganga til styrktar Krabba- vörn í Vestmannaeyjum verður haldin á gamlársdag kl. 11.00. Farið verður frá Stórhöfða og Steinsstöðum og endað á Vina- minni þar sem boðið verður upp á súpu og brauð. Þátttökugjald í gönguna er kr. 1500 en fyrirtæki hafa einnig stutt gönguna með myndar- legum upphæðum. Hefur ágóðinn, sem hefur verið í kringum ein milljón, runnið óskiptur til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. Rósa Guðmunds: Vill fá símana -Lofar að kæra ekki Veski var stolið af tónlistar- konunni Rósu Guðmundsdóttur, á Lundanum um jólin og inni- haldið tekið. Hún segir tjónið talsvert en í veskinu voru m.a. tveir símar, Iphone 4 og gylltur Dolce & Gabbana sími. „Ég er búin að koma því þannig fyrir að sím- amir eru þjófinum gagnlausir þannig að hann getur allt eins skilað þeim. Ég mun ekki leggja fram kæru ef ég fæ símana í hendurnar og hann getur stungið þeim inn um bréfalúguna hjá foreldrum mínum við Helga- fellsbraut 6 og málið er úr sögunni. Svo er líka hægt að skila þeim til lögreglunnar eða inn á ritstjóm Frétta. Ég skora líka á þá sem eitthvað vita um málið, að hafa samband við mig eða skrifa mér línu á facebook. Fundarlaun eru í boði,“ sagði Rósa. Útgefandi; Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjiini. Bilstjóri: Óinar Garðarsson. Blaðantenn: GnObjörgSigurgeirsdóttirog Júlins Ingason. Ábyrgdarmenn: Omar Gardars- son & Gísli Valtýsson. PrentvinmU Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestinannaeyjum. Adsetur rilstjómar: Straudvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang'rafpóstur frettir@ey jafrettir.is. Veffang: http/Avww.eyjafrettir.is FRÉTTHÍ koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskiift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnmn, Vöruval, Herjólfi, Flugliafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum, verslun 11-11 og Skýlinu í Fridarhöfn.. FRÉTTIK eru prentaðar í 2IKH) eintökum. FRÉTTIK eru aðilar að Saintökiun bæjar- og béraðsfréttablaða. Bftii'])i'entun, hljóðritun, uotkun ljósmynda og annað er óbeimilt nema lieimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.