Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Blaðsíða 11
Fréttir / Fimmtudagur 30. desember2010 11 Leikskólinn Sóli: Er stærðfræði í leikskólum? í leikskólum er leitast við að böm læri sem mest í gegnum leik og starf með því að fást við hlutina við eðlilegar og áþreifanlegar aðstæður. Við í leikskólanum S«a notum fjöibreytt úrval af kubbum sem efnivið, bæði plast- og tré- kubba. Flest böm hafa ánægju af að byggja úr kubbum og þau breyta um form og hugmyndir í sífellu. Viðfangsefnið er óþrjótandi og í byggingaleik ræður hugarheimur bamsins ferðinni, ímyndun og vemleiki vinna saman. Kubbur getur verið hvað sem er í huga þeirra, t.d. bfll, fiskur eða maður. Með því að handleika kubbana kynnast bömin á áþreifanlegan hátt áferð og öðrum eiginleikum þeirra. Þau læra um mismun þeirra og læra að bera þá saman. Þeir eru mis- langir. t.d. í einingakubbunum okkar er lengsti kubburinn fjórum sinnum lengri en einingakubburinn o.s.frv. Hver kubbur hefur ákveðna stærð, lögun, þyngd og jafnframt hefur hann þykkt, breidd og iengd. Þau geta flokkað þá eftir stærð og lögun, en flokkun er mikilvægur þáttur í vísindalegri hugsun. I byggingaleikjum felst því mikil- vægt sjálfsnám í grundvallar- atriðum stærðfræðinnar. Stærð- fræði - vísindahugtök festast smám saman í vitund bamanna. Börnin á Sóla leika sér einnig mikið með púsl og perlur en það er ekkert annað en rökhugsun sem er jú einn gmndvöllur stærðfræðinnar. Hvert á púslið að fara svo heildar- mynd náist. Börnin flokka perlur eftir litum og búa til hin ýmsu mynstur og myndir, en til þess þarf að telja út. Hverjum hefði dottið í hug að það eitt að leggja á borð feli í sér stærð- fræði? í hádegi og kaffitíma skipt- ast bömin á að fá að vera þjónar og þykir það mjög spennandi. Það em sjö böm á þessu borði, hvað þurfum við þá marga diska, glös hnífa, gaffla o.s.frv.? Glasið á að vera fyrir ofan diskinn og gaffallinn við hliðina vinstra megin. Eitt bam er ekki mætt á hringaborði hvað em þá mörg böm mætt á því borði? En svona mætti lengi telja og mörg dæmi um það hvernig unnið er beint og óbeint með tölur og hugtök stærðfræðinnar í leik- skólanum. Svarið við spumingunni hér að ofan er þá væntanlega komið. En besta viðurkenningin á gott starf er þegar að bam kann hlutina en „ENGINN kenndi því neitt, það lærði það bara sjálft". Með bestu kveðjufrá okkur á Gerði Rósa Guðmundsdóttir, tónlistarkona: Myndband í spilun íslensku stöðvunum og U-tubevefnum Rósa Guðmundsdóttir, tónlistar- kona, býr í New York en kom heim til að halda jólin hátíðleg í faðmi fjölskyldunnar. Hún kom við á Fréttum og var auðvitað spurð hvað hún væri að fást við þessa dagana enda alltaf eitthvað að gerast hjá listakonunni. „Eg gaf nýlega út fjögurra laga plötu á iTunes og gerði myndband við eitt þeirra sem er í spilun, eftir því sem ég best veit, hjá RÚV, Skjá Einum og NOVA. Ég fmmsýndi myndbandið á Man- hattan og var með tónleika þar, myndbandið var frumsýnt í þrí- vídd og það var fyndið að sjá alla með þessi gleraugu, “ sagði Rósa og var sátt við útkomuna. „Ég bý í New York og kalla það heima, núna. Védís systir mín vildi endilega fá mig hingað um jólin, svo varð pabbi sjötíu ára á árinu. Það er líka mjög gaman að hitta litlu frænku mín sem er orðin þriggja ára,“ sagði Rósa sem er á kafí í tónlist. „Næst á dagskránni er að halda fund um tónleika á Websterhall en þar hafa margir þekktir tónlistar- menn eins og Madonna og Björk komið fram. Tónleikarnir verða í bland við listsýningu sem þar er haldin. Ég er með eigin hljóm- sveit Rosa and the Ultratight og ég gerðist líka eigandi að veit- ingarekstri. Ég borða ekki dýra- afurðir og og þar sem boðið upp þann valkost á staðnum ákvað ég að vera með og það er bara gaman. Hvers vegna kvennahljómsveit? „Við erum fjórar í kvennahljóm- sveitinni og það er ekki útaf ein- hverjum kvennabaráttu eða kven- rembu. Það er margar karlahljóm- sveitir en engin kvenhljómsveit sem spilar rokk/ popp mainstream tónlist,“ sagði Rósa og bætti við að yndislegt væri að eyða jólun- um í faðmi fjölskyldunnar í Eyjum. Gjörningur Gíslínu Daggar - 365 kjólar fá framhaldslíf Gjömingurinn 365 kjólar tókst vel en er nú lokið. Kjólauppboðið í lokin gekk mjög vel og Gíslína Dögg Bjarkadóttir, listakona og höfundur gjörningsins, afhenti Kristjáni Skúla Asgeirssyni lækni á Landspítalanum 561.800 krónur sem er ágóði af uppboðinu. Kristján ætlar ásamt starfsfólki Landsspítalans að koma frekari upplýsingum á vefmn brjost.is sem er fyrir konur sem hafa greinst með brjóstakrabbamein. „Uppboðið á Facebook stóð í tæpa viku og þann 6. nóvember fór sjálft uppboð fram í Veislutuminum í Kópavogi sem styrkti framtakið," sagði Gíslína þegar hún var spurð um uppboðið en hún vili þakka öllum þeim sem styrktu hana og gerðu framtakið mögulegt. „Straumur pressaði og straujaði kjólana sem var alveg frábært og Plastprent gaf plast yfir þá þannig að það var miklu skemmtilegra að pakka þeim og koma á áfangastað, svona fínum og flottum. Te og kaffi styrkti okkur sömuleiðis með því að gefa kaffi á sjálfu uppboðinu og Eimskip flutti kjólana fyrir mig, “ sagði Gíslína og ekki lítið verk að pakka og flytja alla kjólana bæði yfir sjó og land. „Það að var heilmikið fjör á upp- boðinu sem fjórir uppboðshaldarar stýrðu. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir hóf uppboðið, Björgvin Frans, leikari tók við af henni og svo Haffi Haff, stflisti og tónlistarmaður og Heiðar Ingi Svansson, markaðstjóri Forlagsins var uppboðshaldari síðustu tvo tímana. Þetta gekk allt mjög vel,“ sagði Gíslína og hlær því uppboðshaldaramir fóru á kost- um. Gíslína lét búa til glæsilega Gíslína Dögg afhenti ágóðann þann 15. desember á Landspítalanum á deild 10E . Frá vinstri Jónína Ósk Lárusdóttir frá Bætum Ein-stök brjóst, Hrönn Guðmundsdóttir frá Bætum Ein-stök brjóst, Gíslína Dögg og Kristján Skúli Ásgeirsson læknir frá Landspítalanum. sýningaskrá með myndum af öllum kjólunum. „Það seldust 255 kjólar á upp- boðinu og nú eru á milli 70 og 80 kjólar eftir. Þeir eru til sölu á 1000 krónur og hægt sjá númer á þeim kjólum sem eftir eru á Facebook síðunni 365 kjólar sem ennþá opin. Þar er hægt að kaupa kjól en fólk þarf sjálft að greiða sendingar- kostnaðinn,“ sagði Gíslína sem hefur haft í nógu að snúast við að senda kjóla sem hafa verið keyptir á uppboðinu. „Ég hef nú þegar sent 40 til 50 póstsendingar og það er ekki óalgengt að þrír til fjórir kjólar séu í sömu sendingu og ein keypti átján kjóla,“ sagði Gíslína og er ánægð með viðtökumar og önnur kona fór með þrjá fulla poka af kjólum sem hún keypti á upp- boðinu í Veisluturninum. Gíslína ætlar að hafa opið á vinnustofunni á Skólavegi í janúar og þá getur fólk komið og skoðað og keypt kjólana sem eftir eru en þeir sem ekki seljast fá framhaldslíf í leikhúsinu eða hjá Rauða kross- inum. „Ég er þakklát öllum þeim sem komu að gjömingnum með einum eða öðmm hætti. Eyjakonur voru duglegar að gefa kjóla því helmingur þeirra kom héðan og fyrir það er ég þakklát. Aðrir kjólar komu af átján stöðum á landinu og frá Lúxemborg og New York. Ég vil líka þakka öllum þeim sem styrktu mig við gerð uppboðsskrár- innar en það voru: Vinaminni Kaffihús, Tvisturinn, Lögmanns- stofa Vestmannaeyja, Te og kaffi, Póley, Eyjavík, Straumur, Fast- eignasala Vestmannaeyja, Axel Ó., Geisli, Volare, Miðstöðin og Isfélag Vestmannaeyja."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.