Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Blaðsíða 9
Fréttir / Fimmtudagur 30. desember 2010
9
ELDGOSIÐ í Eyjaf jallajökli hafði talsverð áhrif í Eyjum. Gosaska barst í miklu magni til Eyja í
maímánuði sem kallaði á mikið hreinsunarstarf í bænum.
Áhugahópur, með þá Róbert
Sigurmundsson og Jóhann Jóhanns-
son í fararbroddi, vildi byggja upp
hið gamla útræði í Höfðavík. A
þeim stað var áður útræði
Ofanbyggjara og vildi hópurinn
hefja staðinn til vegs og virðingar á
ný.
Fegurstar á Suðurlandi
Eyjastúlkur stóðu sig vel í kepþninni
um Ungfrú Suðurland. Knatt-
spymukonan Hlíf Hauksdóttir varð í
fyrsta sæti og Birgitta Ósk
Valdimarsdóttir í öðm sæti. Sara
Dögg Guðjónsdóttir var valin vin-
sælasta stúlkan og Thelma
Sigurðardóttir ljósmynda- og sport-
stúlkan. Auk þeirra Hlífar og
Birgittu ávann Svava Kristín
Grétarsdóttir sér rétt til að taka þátt í
keppninni Ungfrú Island.
Apríl
Aldís með nýtt kaffihús
Nýtt kaffihús var opnað á skírdag,
Café Varmó að Kirkjuvegi 10. Aldís
Atladóttir og Kristinn Andersen eiga
það en Aldís hefur nokkra reynslu í
rekstri kaffihúss eftir að hún rak
kaffihúsið austur á Skansi í tvö ár.
Aldís er af Varmadalsættinni og
þangað er nafnið sótt.
Kenndi skák á Grænlandi
Skákáhugi er mikill í Vestmanna-
eyjum og nú teygði sá áhugi sig
víðar því að skákmaðurinn Sverrir
Unnarsson brá sér yfir til grannans í
vestri, til Scoresbysunds á Græn-
landi. Þar dvaldi hann nokkra daga
við að kenna bömum skák.
Dýr soðning
Utgerðarmaður í Vestmannaeyjum
var í Héraðsdómi Suðurlands
dæmdur í 600 þúsund kr. sekt fyrir
að taka of mikið í soðið af afla báts
síns. Þótti dómara sýnt að ekki
hefði öll sú soðning lent beint í potti
útgerðarmannsins en um var að
ræða nær hálft tonn af slitnum
humri og skötusel.
Skóbúðin með nýtt hlutverk
Húsið að Vestmannabraut 23, sem
lengst af hafði hýst vefnaðarvöru-
verslun og skóbúð, fékk nú nýtt
hlutverk. Þau Hólmgeir Austfjörð
og Jóhanna Inga Jónsdóttir, sem
rekið höfðu Topppizzur, keyptu
húsið og notuðu sumarið til að gera
það upp og breyta. Seinna um
sumarið opnuðu þau svo nýtt
veitingahús sem fékk nafnið 900
Grillhús.
Apótekið í Baldurshaga
Lyf og heilsa, sem verið hafði við
hlið Krónunnar á Strandveginum,
ákvað að flytja sig um set í rúmbetra
húsnæði í nýja verslunarhúsinu í
Baldurshaga. Reyndar flutti apótek-
ið ekki fyrr en í júlí en forsvarsmenn
þess tilkynntu um flutninginn þegar
í apríl.
114 gengu á Heimaklett
Að vanda var ýmislegt um að vera
um páskana og nýttu Eyjamenn og
gestir sér helgina til að auðga bæði
andann og efnið. Veðurblíðan hafði
í för með sér að fjöldi fólks var í
gönguferðum úti um alla eyju og
alls gengu 114 manns á Heimaklett
um páskana.
Áhyggjur af vatnsbóli
Menn höfðu ekki haft tiltakanlegar
áhyggjur af gosinu í Fimmvörðu-
hálsi, sem einhverjir kölluðu túrista-
gos. En heldur kámaði gamanið
þegar gos hófst í sjálfum Eyjafjalla-
jökli enda bæði vatnsból og vatns-
leiðsla Eyjamanna örskammt frá
eldstöðvunum. Svo fór þó að
hvorugt varð fyrir skemmdum. Þá
óttuðust menn um nýju höfnina í
Landeyjum enda urðu nokkrar tafir
á vinnu við hana vegna eldsum-
brotanna. Vestmannaeyingar urðu
lítið varir við afleiðingar gossins í
aprílmánuði en bændur á sjálfu
gossvæðinu urðu fyrir þungum
búsifjum vegna þess.
Umdeildar breytingar
Þjóðhátíðamefnd kynnti nýtt skipu-
lag í Herjólfsdal. Þar bar hæst
grjótvörn í brekkunni, stærra
tjaldsvæði sem og varanleg bygging
úr steinsteypu undir stóra sviðinu.
Ekki vom allir á eitt sáttir um þá
nýbyggingu en þjóðhátíðarnefnd
sagði hana nauðsynlega til að
bregðast við auknum kröfum nýrra
tíma.
íbúar mótmæltu
Ekki vom heldur allir á eitt sáttir
þegar kynnt var breyting á deili-
skipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis.
Þar kom í ljós að tjaldstæðið við
Þórsheimilið yrði stækkað verulega.
Ibúar á þessu svæði risu öndverðir
upp og mótmæltu, bentu á að tjald-
stæðið væri nánast komið inn í
húsagarða hjá þeim sem myndi
valda verulegu ónæði. Forsvars-
menn bæjarins sögðu á móti að
strangar reglur yrðu settar um
umgengni á svæðinu.
Skurðaðgerð á æðarfugli
Smári Steingrímsson, skurðlæknir,
er ýmsu vanur en um miðjan apríl
fékk hann harla óvenjulegan sjúk-
ling á skurðarborðið hjá sér. Jakob
Smári Erlingsson kom til hans með
illa vængbrotinn æðarblika sem
krakkar höfðu fundið niðri í fjöm.
Smári dó ekki ráðalaus, þótt væng-
urinn væri tvíbrotinn, kom fyrir vír
inni í beininu, bjó um sárið og gaf
fuglinum sýklalyf. Mun hann hafa
braggast vel.
Töfðust í tvo sólarhringa
Talsverð röskun varð á flugi vegna
gossins í Eyjafjallajökli, ekki aðeins
á Islandi heldur og úti um alla
Evrópu. Tuttugu og tveggja manna
hópur frá Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum fékk að finna fyrir
því þegar þau hugðust fljúga heim
frá Svíþjóð að afloknu námsferða-
lagi þar. Vegna öskufalls tafðist
hópurinn um tvo sólarhringa.
Útskrift hjá Visku
Það er ekki einungis Framhalds-
skólinn sem sér um menntun á
framhaldsskólastigi í Eyjum.
Fræðslu- og símenntunarmiðstöðin
Viska er einnig með slíkt nám á
boðstólum í því sem nefnist Grunn-
menntaskólinn. Þar stunda nem-
endur nám í íslensku, ensku og
stærðfræði auk þess sem teknir eru
fyrir fleiri þættir. Að þessu sinni
voru útskrifaðir níu nemendur frá
Grunnmenntaskólanum.
Jóna Heiða bæjarlistamaður
Bæjarlistamaður Vestmannaeyja var
að venju útnefndur á sumardaginn
fyrsta. Fyrir valinu varð Jóna Heiða
Sigurlásdóttir, listakona, sem tók
við keflinu af Sigurfmni Sigurfinns-
syni.
Maí
Engin sjúkraflugvél
Afleitt ástand skapaðist í Eyjum
þegar Flugfélag Vestmannaeyja,
sem hafði sinnt sjúkraflugi frá
Eyjum, missti flugrekstrarleyfið.
Því var um tíma engin sjúkraflugvél
í Vestmannaeyjum. Svo fór að
lokum að Flugfélag Vestmannaeyja
hætti sínum rekstri en flugfélagið
Mýflug tók að sér að sinna
sjúkrafluginu.
Þá hafði Flugfélag íslands tilkynnt
að í ágúst, eftir þjóðhátíð, myndi
félagið hætta áætlunarflugi til Eyja,
þar eð þá yrðu ríkisstyrkir úr sög-
unni. Flugfélagið Emir ákvað þá að
taka áætlunarflugið að sér, hóf flug
milli Reykjavíkur og Eyja í ágúst og
hefur sinnt þvf hið besta.
Gamlir Eyjamenn í heim-
sókn
Sönghópur ÁtVR, eða Átthaga-
félags Vestmannaeyinga á Reykja-
víkursvæðinu kom til Eyja og hélt
tónleika í byrjun maí. Fengu þau
hinar bestu viðtökur hér.
800 lúðurþeytarar
Og fleiri tónlistarmenn létu til sín
heyra í maí. Samband íslenskra
skólalúðrasveita stóð fyrir stórmóti í
Eyjum og voru þátttakendur um 800
talsins. Settu þeir skemmtilegan
svip á mannlífíð í bænum.
Kór að norðan
Enn af tónlistarfólki. Sextíu félagar
úr Kirkjukór Akureyrar, með
Eyjakonuna Bergþóru Þórhalls-
dóttur í broddi fylkingar, sóttu
Eyjarnar heim og héldu tónleika
ásamt kollegum sínum í Kór
Landakirkju.
Meiri tónleikar
Og látlaust af tónlist. Þær Védís
Guðmundsdóttir, þverflautuleikari
og Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari,
buðu upp á tónleika í Safnaðar-
heimilinu þar sem þau Guðmundur
Hafliði og Sólveig Unnur, söngkona
krydduðu upp á tónleikana. Segja
má því að músíkelskir Eyjamenn
hafi fengið vænan skerf að tónlist á
vordögum í maí.
Sérkennilegt sólpallsmál
Af og til þurfti lögreglan að eiga við
hin sérkennilegustu mál. I byrjun
maí var lögreglu tilkynnt að timbur,
sem húseigandi nokkur í bænum
hafði ætlað að nota til smíði á sól-
palli við hús sitt, hefði verið tekið
ófrjálsri hendi. Við nánari athugun
kom í ljós að timbrið var komið yfir
í garð nágrannans sem var þegar
byrjaður að smíða sinn eigin sólpall.
Var efnið hið snarasta flutt til baka
en engan skýringar fylgdu frá
nágrannanum á þessari kúnstugu
efnistöku.
Nýr Gandí í flotann
Nýtt skip bættist í flota Eyjamanna.
Vinnslustöðin festi kaup á skipi sem
áður hét Rex HF 24, vinnsluskip,
aðallega ætlað til veiða á upp-
sjávarftski. Skipið fékk nafnið
Gandí VE 171 og skipstjóri var
ráðinn Kristján Einar Gíslason.
í fótspor Sigmunds
Ungur Eyjamaður, Kristinn Pálsson,
varð þess heiðurs aðnjótandi að vera
ráðinn annar af tveimur skopmynda-
teiknurum Morgunblaðsins. Hans
beið nú það hlutverk að feta í fót-
spor Sigmunds Jóhannssonar sem
um árabil hafði annast þann þátt í
blaðinu.
Bjamarey minnkar
Þrívegis á skömmum tíma varð
mikið grjóthrun úr Bjarnarey,
norðaustanverðri. Þeir sem sáu
verksummerki sögðu að þarna væri
um að ræða þúsundir tonna af grjóti
og væru sumir hnullungamir á stærð
við einbýlishús.
Neyðarsigling í Landeyja-
höfn
Þótt Landeyjahöfn væri formlega
ekki komin í gagnið kom hún þó að
góðu gagni um miðjan maí. Þá var
Björgunarfélag Vestmannaeyja
beðið að flytja bamshafandi konu
sjóleiðina frá Eyjum en þyrla
Landhelgisgæslunnar gat ekki sinnt
útkallinu vegna öskufalls. Ferðin á
Þór, skipi Björgunarfélagsins, gekk
að óskum og varð hvorki móður né
bami meint af.
Guðlaugur ráðinn skipstjóri
Þrír skipstjórar vom ráðnir á Herjólf
frá 1. júlí, en áætlað var að hefja
siglingar í Landeyjahöfn í júlí-
mánuði. Einn þeirra var Eyja-
maðurinn Guðlaugur Ólafsson, sem
verið hefur stýrimaður á Herjólfi.
Óþægindi af öskufalli
Fram til þessa höfðu Vestmanna-
eyjar að mestu sloppið við þau
óþægindi sem eldgosið í Eyjafjalla-
jökli hafði í för með sér. En um
miðjan maí varð þar breyting á.
Mikið öskufall varð þá í Eyjum í
norðanátt og mikil óþrif og óþæg-
indi sem því fylgdu. En um Ieið og
létti til tóku bæjarbúar við sér og
hófu hreinsunarstörf. Þetta öskufall
hafði ýmsar slæmar afleiðingar í för
með sér, t.d. hjá Golfklúbbi
Vestmannaeyja þar sem völlurinn
var ekki leikhæfur í nokkra daga og
aflýsa varð mótum sem höfðu verið
á dagskrá.
Björgvinsbeltið komið
heim
Björgunartækið, sem Björgvin
Sigurjónsson, Kúti á Háeyri, hann-
aði fyrir allmörgum árum, hefur
sannað gildi sitt og er nú um borð í
nær öllum íslenska flotanum. Fram
til þessa hafði framleiðsla þess farið
fram uppi á landi en nú varð breyt-
ing á. Framleiðslan var flutt til Eyja
og tók Grímur Guðnason, hjá
Gúmmíbátaþjónustu Vestmannaeyja
það að sér.
30 með pungapróf
Um miðjan maí var útskrifaður hjá
Visku í Vestmannaeyjum stærsti
hópur sem tekið hefur svonefnt
„pungapróf ‘ í Eyjum. Það eru rétt-
indi til skipstjómar á allt að 12
metra löngum skipum. Af þessum
30 voru 15 frá Eyjum en hinir frá
nær öllum landshomum. Stunduðu
þeir námið í gegnum fjarkennslu-
búnað en komu til Eyja til að taka
lokaprófin.
Síðustu tónleikamir
Áfram hélt músíkin. Hljómsveitin
Tríkot og Lúðrasveit Vestmannaeyja
stilltu enn á ný saman strengi sína
og úr urðu magnaðir tónleikar. Þetta
var í þriðja sinn sem slíkir tónleikar
em haldnir og nú var tilkynnt að
þessir yrðu hinir síðustu með þessu
sniði.
Ásættanleg afkoma
Á ársfundi Lífeyrissjóðs Vest-
mannaeyja fyrir árið 2009 kom fram
að afkoma ársins var mjög ásættan-
leg, miðað við þau ósköp sem
gengið hafa yfir í fjármálum
þjóðarinnar. Sjóðurinn sýndi næst-
besta ávöxtun lífeyrissjóða á land-
inu og sýnt þótti að ekki þyrfti að
skerða líféyri eins og margir sjóðir
standa frammi fyrir.
FEGURSTAR Á SUÐURLANDI. Hlíf Hauksdóttir, knattspyrnukona úr ÍBV var kosin fegurst kvenna á
Suðurlandi og Birgitta Valdimarsdóttir lenti í öðru sæti. í þriðja sæti varð svo Ragna María Gestsdóttir
frá Þorlákshöfn