Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Qupperneq 8
8 Frcttir / Fimmtudagur 30. desember 2010 var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið, og til að greiða 35 milljónir króna í sekt. Dóminn hlaut hann fyrir að hafa skilað efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum á árunum 2003 til 2005. Leikskólakennarar sextugir Félag leikskólakennara minntist þess að 60 ár em frá stofnun Félags leikskólakennara í Vestmanna- eyjum. I tilefni þess var sett upp sýning í Safnahúsinu þar sem minnst var Sigurbjarnar Sveins- sonar, rithöfundar, auk þess sem fluttir vom fyrirlestrar um hann sem og sögu leikskóla í Vestmanna- eyjum. At börnin sín Fyrirsögnin hér að ofan gæti vakið hrylling hjá einhverjum. En málið er að steinbítshrygna í Náttúru- gripasafninu tók upp á því að hrygna á harla óvenjulegum tíma, þar sem hrygningartími steinbíts er yfirleitt í desember. Klappaði hún hrognin saman í kökk, eins og venjan er og hringaði sig síðan utan um hann. En væntanlega hefur eitt- hvað komið upp á eða hrygnan uppgötvað að hún var á vitlausum tíma, því að daginn eftir sáu starfs- menn safnsins að hún var búin að éta öll hrognin. Og lýkur þar með þeirri hryllingssögu. Anna á Löndum flutt Anna Sigmarsdóttir frá Löndum stóð uppi allslaus eftir að hús hennar eyðilagðist í óveðri sem gekk yfir á haustmánuðum 2009. „Eg verð að halda áfram, ég er algjörlega alls- laus,“ sagði Anna við fréttamenn þegar hún kynnti þeim nýja fataviðgerðarverkstæðið sitt sem hún kom upp að Skólavegi 6 53 fengu aðstoð Ef til vill halda margir að Vestmannaeyjar séu slíkt gósenland að hér þurfi engir á aðstoð að halda, á borð við það sem er í Reykjavík, þar sem fólk stendur í biðröðum eftir mat. Á aðalfundi Rauða kross deildarinnar í Vestmannaeyjum kom þó fram að beiðnum um aðstoð hefur fjölgað mjög milli ára, voru 23 fyrir jólin árið 2008 en fjölgaði í 53 fyrir jólin 2009. Rauði krossinn hefur komið að þessu hjálparstarfi í samstarfi við önnur líknarfélög í bænum. Trausti ráðinn til ÍBV Vegna aukins umfangs ákvað knattspymuráð ÍBV að auglýsa eftir framkvæmdastjóra knattspyrnuráðs en það hafði undanfarið verið á könnu framkvæmdastjóra ÍBV. Fjórir sóttu um og var Trausti Hjaltason valinn úr þeim hópi. Fjölgun milli ára Fram kom að íbúum Vestmannaeyja fjölgaði milli áranna 2008 og 2009, úr 4090 í 4129, eða um 39 manns. karlar eru fjölmennari í Eyjum en konur og af þessari fjölgun íbúa vom karlamir tvöfalt fleiri, eða 26, en konur 13 talsins. Þýskir músíkantar á ferð Þriggja manna hljómsveit frá Þýskalandi, Killerpilze, ákvað að taka upp myndband með tónlist sinni í Vestmannaeyjum. Þýska stúlkan Sonja Lenz, sem hér dvaldi í mörg ár, benti þeim á þennan möguleika og var þeim innan handar í ferðinni. Piltamir vom líka hinir ánægðustu með árangur ferðarinnar. Stefán yfir í ísfélagið Stefán Friðriksson, viðskipta- fræðingur, var ráðinn framkvæmda- stjóri Isfélags Vestmannaeyja en undanfarin tíu ár hefur hann verið aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar. Hann sagði að tíminn hjá Vinnslustöðinni hefði verið ánægjulegur en hann hlakkaði til að takast á við ný og spennandi verkefni með góðu fólki. Snjór setti allt úr skorðum Yfirleitt er fremur snjólétt í Vestmannaeyjum og það sem af var vetri hafði snjór ekki sérstaklega plagað íbúana. En það virðist orðið SEXTUGIR LEIKSKÓLAKENNARAR. Kiwanis menn komu færandi hendi þegar Félag leikskólakennara minntist þess að 60 ár voru liðin frá stofnun félagsins. Af því tilefni var sett upp sýning í Safnahúsinu. Eldgos hafið Eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi og fór almannavamanefnd í viðbragðs- stöðu þar sem menn höfðu af því áhyggjur að vatnsból Eyjamanna kynni að vera í hættu vegna þess. Svo reyndist þó ekki vera. Fullkomið brúðkaup Leikfélag Vestmannaeyja setti upp verkið Fullkomið brúðkaup í leik- stjóm Ara Matthíassonar. Verkið fékk mjög góða dóma og góða aðsókn. nokkuð reglubundið að einu sinni á hverjum vetri kyngir niður snjó sem setur allt úr skorðum. Og það gerðist aðfaranótt fimmtudags í lok febrúar. Á fimmtudagsmorgun voru nánast allar götur ófærar og allt skólahald féll niður. Þar sem veður var einnig slæmt var fólk beðið um að halda sig heima. Fyrri ferð Herjólfs féll niður og tókst með naumindum að ryðja leiðina niður á bryggju fyrir seinni ferðina. En snjórinn í Vestmannaeyjum er fljót- ur að bráðna og viku síðar var hann að mestu horfinn. Fullt af tónlist Tónlistarfólk í Vestmannaeyjum hefur jafnan verið duglegt að miðla af sínum gnægtabmnni til bæjarbúa og gildir þá einu hvaða tegund tón- listar er um að ræða. Dagur Tónlistarskólans var haldinn, þar sem bæði nemendur og kennarar héldu uppi viðamikilli dagskrá og þau Guðmundur H. Guðjónsson, Védís dóttir hans og Sólveig Unnur Ragnarsdóttir, sópransöngkona og kennari við Tónlistarskólann, buðu upp á bráðskemmtilega tónleika sem bæði fóm fram í kirkjunni og Safnaðarheimilinu. Mars Ágæt loðnuvertíð Þó svo að loðnan léti seint sjá sig, eins og hennar hefur verið vandi hin síðari ár, tókst þó prýðilega til með að vinna þá loðnu sem hér barst á land. Vom menn almennt nokkuð ánægðir með útkomuna en aflinn sem barst til Eyja var um 35 þúsund tonn og var áherslan lögð á hrogna- vinnslu. Munu FES og FIVE hafa náð um 2200 tonnum af hrognum úr þessum afla, auk þess sem eitthvað var einnig unnið af hrognum um borð í Hugin VE. Stálsleginn á eftir Hann vildi ekki gera mikið úr volki sínu í höfninni, sá aldni sægarpur Guðfinnur Þorgeirsson, en hann varð fyrir því óhappi að detta í sjóinn þegar hann var á leið um borð í trilluna sína. Honum tókst ekki að komast af sjálfsdáðum upp á brygg- juna en vildi það til happs að Bjarki Ómarsson, starfsmaður í Mið- stöðinni, heyrði til hans og kom með liðsauka til bjargar. Guðfinnur sagðist einskis meins kenna sér eftir þetta og hann hefði verið stálsleginn á ný eftir að hafa komist í heita sturtu. Hæsta einkunn í sushi Alltaf er gaman að heyra af Eyjamönnum sem eru að gera það gott, hvort sem er í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Einn þeirra var Eyjamaðurinn Sigurður Guðgeirs- son sem opnaði nýjan sushi-stað, Suzushii, í Reykjavík. Staðurinn fékk hæstu einkunn í úttekt tíma- ritsins Gestgjafans og var Sigurður að sjálfsögðu ánægður með það. Þór Vídó með verðlauna- myndina Þór Sigurgeirsson Vídó átti sig- urmyndina að þessu sinni í ljósmyndasamkeppninni en þema mánaðarins var Hraunið. Gyða með gulli Gyða Arnórsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði í kvennaflokki í Lífstílskeppninni sem fram fór í Keflavík en alls tóku 20 konur þátt. Ný verslun, La Tienda Þau Guðmundur Guðmundsson og Sigríður Stefánsdóttir keyptu hús- næðið að Strandvegi 45, þar sem Oddurinn og síðar Póley voru til húsa. Þar settu þau upp verslun með hljóðfærum, golfvörum og fleiru. Nafnið var sótt í spænska tungu, La Tienda, sem þýðir einfaldlega Búðin. Luna sannaði sig Um miðjan mars gerði lögreglan í Vestmannaeyjum upptæk um 200 grömm af amfetamíni en efnin fund- ust í bfi sem var að koma með Herjólfi. Lögregluhundurinn Luna þefaði þau uppi og voru fimm manns handtekin í framhaldinu. Þá var leitað í þremur íbúðum þar sem einnig fannst nokkuð af fíkniefnum. Talið var að markaðsvirði efnanna hafi numið allt að tveimur milljónum króna. Nýir eigendur - nýr staður Eigendaskipti urðu á veitinga- staðnum Volcano Café í Drífanda. Vala Arnardóttir, Friðrik Páll Arnfinnsson og Guðmundur Sveinsson tóku við rekstrinum af þeim Björgvin og Margréti. Nýju eigendurnir sögðust ætla að flytja reksturinn í nýtt húsnæði, að Strandvegi 66 og stóðu við það, opnuðu nýja staðinn um sumarið. Ekki ráð nema í tíma sé tekið Það er misjafnt hve mikið fólk hlakkar til þjóðhátíðar, sumir byrja að telja niður strax og hverri hátíð lýkur en aðrir láta skemmri tíma nægja, svo sem mánuð, líkt og bömin og jóladagatölin þeirra. En í marsmánuði mátti þegar orðið sjá að einhverjir voru famir að hugsa fyrir þjóðhátíð, a.m.k þeir á fastalandinu sem vantaði húsnæði á þjóðhátíð. Um það bil helmingur af smáaug- lýsingum í Fréttum í einu blaðinu í mars var frá fólki uppi á landi sem var að auglýsa eftir húsnæði yfir þjóðhátíð. LFmdeilt frumvarp sam- þykkt Skötuselsfrumvarp Jóns Bjarna- sonar, sjávarútvegsráðherra, var samþykkt á alþingi en það heimilar m.a. veiðar á skötusel gegn gjaldi. Utgerðarmenn í Eyjum voru and- snúnir þessu frumvarpi, bæði vegna mismununar en einnig vegna þess að þeir töldu með því stefnt í ofveiði. Dólgamir ánægðir Þeir voru ánægðir peyjarnir í Eyjahljómsveitinni Dólgunum, þeir Geir, Gísli Rúnar og Arnar Geir en þeir komust áfram í Músík- tilraunum, þrátt fyrir að vera einna yngstir þátttakenda. Sá elsti 15 ára en sá yngsti aðeins 12 ára. Kannski hefur það haft sitt að segja því að gagnrýnandi Morgunblaðsins sagði að þeir hefðu farið langt á bamslegri einlægninni og reynsluleysinu. Orkubóndinn í Eyjum Nýsköpunarmiðstöð Islands efndi til námskeiðs í Vestmannaeyjum undir yfirskriftinni Orkubóndinn en slík námskeið höfðu verið haldin víða um land. Þar var fjallað um ýmsa möguleika til orkunýtingar og orku- vinnslu, m.a. vindorku og sjávarföll. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, fór fyrir þessu námskeiði en margir vísinda- og fræðimenn leiðbeindu þar einnig. Um þrjátíu manns sóttu námskeiðið í Eyjum. EFNILEGIR ROKKARAR. Strákarnir í Dólgunum stóðu sig vel í Músíktilraunum og komust í úrslita- keppnina þrátt fyrir að vera ein yngsta sveitin. Sveitina skipa þeir Geir, Gísli Rúnar og Arnar Geir. Nýr ritstjóri Ólafur Jóhannesson var kynntur sem nýr ritstjóri á vefnum eyjar.net og tók hann við af Kjartani Ólafssyni Vídó. Byggt í Höfðavík?

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.