Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Side 13
Frcttir / Fimmtudagur 30. desember2010
13
Arleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja:
Úthlutað úr sjóðnum í 23. sinn
s
Leikfélagið, Viska, Ahugamenn um Hraunveitu og Bjarni Jónasson fengu úthlutað og skrifað
undir samstarfssamning við Taflfélag Vestmannaeyja og ÍBV-íþróttafélag
Sparisjóðurinn styrkir bæði ÍBV-íþróttafélag og Taflfélag Vestmannaeyja. Hér undirrita forráðamenn
Sparisjóðsins og IBV samstarfssamninginn. Aftari röð frá hægri: Magnús Bragason, handknattleiksdeild
IBV, Sigþóra Guðmundsdóttir, knattspyrnudeild kvenna og Óskar Örn Ólafsson, knattspyrnudeild karla.
Fremri röð frá vinstri: Ólafur Elísson, Sparisjóðsstjóri, Helgi Bragason, formaður stjórnar Sparisjóðsins
Páll Scheving, varaformaður ÍBV-íþróttafélags og Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri ÍBV.
Á Þorláksmessu var var úthlutað
úr Styrktar- og menningarsjóði
Sparisjóðs Vestmannaeyja en
sjóðurinn var á sínum tíma stofn-
aður til minningar um Þorsteinn
Þ. Víglundsson, fyrrverandi
Sparisjóðsstjóra. Þetta var í 23.
skiptið sem úthlutað er úr
sjóðnum en í ár voru það Áhuga-
menn um sögu hraunhitaveit-
unnar í Vestmannaeyjum, Leik-
félag Vestmannaeyja, Viska -
fræðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja og Bjarni Jónas-
son - Utvarp Vestmannaeyja, sem
fengu úthlutað úr sjóðnum.
Helgi Bragason, stjórnarformaður
Sparisjóðsins afhenti styrkina. Um
hraunhitaveituna og sögu hennar
sagði Helgi m.a. að mikilvægt væri
að halda utan um söguna. „Um var
að ræða einstakt verkefni, sem
hvergi hafði verið framkvæmt í
heiminum áður svo vitað sé. í árs-
byrjun 1974 var settur upp einfaldur
varmaskiptir í Eldfellshrauni.
Seinni hluta vetrar 1974 var sett upp
tilraunahitaveita í Gufugili sem
hitaði upp 25 hús auk sjúkrahússins.
Árin 1977-8 voru flest hús í
Vestmannaeyjum tengd hraun-
hitaveitunni, en árið 1988 var hætt
að nota veituna. Það má segja að
Eyjamenn hafi þarna virkjað
óvininn. Óvinurinn var að sjálf-
sögðu eldgosið, sem Eyjamenn
þurftu að flýja, en sneru aftur og
virkjuðu óvininn til góðra verka,“
sagði Helgi. Hann bætti því við að
þekkingin um hraunhitaveituna sé
eingöngu til í kollinum á þeim sem
að framkvæmdinni stóðu en flestir
þeirra séu komnir við aldur og mik-
ilvægt að skrásetja söguna.
Um Leikfélag Vestmannaeyja
sagði Helgi að nú fagni félagið 100
ára afmæli en félagið var stofnað 22.
ágúst 1910. „Aðdragandi að stofn-
un félagsins var sýning á leikritinu
Ævintýri á gönguför á vegum
Kvenfélagsins Líknar. f kjölfarið
stofnuðu nokkrir leikarar úr
sýningunni, Leikfélag Vestmanna-
eyja. Ævintýrið hefur því varað í
100 ár á þessu ári. Leikfélagið hefur
verið meira áberandi í menningarlífi
Eyjanna á þessu ári en oft áður þó
starfsemin hafi verið öflug mörg
síðustu ár. Margir litskrúðugir
leikarar hafa stigið á svið hjá félag-
inu og hafa sett svip á samfélagið.
Félagið er mikilvægur hlekkur í
leiklistarstarfi í Vestmannaeyjum.
„Fræðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja - Viska var formlega
komið á fót í upphafi árs 2003.
Sparisjóðurinn er meðal 18 stofn-
aðila,“ sagði Helgi. „Markmið
VISKU er að efla menntun og
fræðslustarfsemi í Eyjum. Hafa
forgöngu um fræðslu og fjarkennslu
á sem flestum sviðum og miðla því
til almennings og atvinnulífs í
Vestmannaeyjum," sagði Helgi en
styrkurinn er veittur Visku til að
koma á fót lesblindugreiningu fyrir
fullorðna þeim að kostnaðarlausu
eða sem næst því.
Að lokum var það Bjami Jónasson
sem fékk styrk úr sjóðnum. „Bjami
Jónasson er fæddur í
Vestmannaeyjum 4. október 1937
og ólst þar upp. Hann hefur lagt
gjörva hönd á margt. Bjarni er
mikill áhugamaður um flug og var
m.a. hvatamaður að gerð flugvallar
á Bakka í Landeyjum árið 1978.
Bjarni rak flugþjónustu í
Vestmannaeyjum til margra ára og
flaug reglulega á Bakkaflugvöll.
Flugmálastjóm tók við rekstri vall-
arins árið 1990. Um tfma rak hann
flugskóla en hætti flugstarfsemi
1982. Frá árinu 1993 hefur Bjami
staðið að rekstri hljóðvarps; Útvarp
Vestmannaeyja eða Úvaff á FM 104
sem útvarpað hefur reglulega frá 3.
júlí 1993. Þannig hefur hann verið
brautryðjandi á mörgum sviðum,“
sagði Helgi um Bjarna en úthlutunin
er fyrst og fremst hugsuð sem
viðurkenning fyrir störf hans að
rekstri útvarps en þannig hafi hann
lagt sitt af mörkum til að auðga
mannlíf og varðveita söguna.
Að lokinni afhendingu styrkjanna
voru svo undirritaðir samstarfs-
samningur milli Sparisjóðsins og
Taflfélags Vestmannaeyja annars
vegar og hins vegar Sparisjóðsins og
ÍBV-íþróttafélags. Báðir
samningamir eru til tveggja ára en
Sparisjóðurinn hefur um áraraðir
verið öflugur bakhjarl félaganna
tveggja.
Jólastemmning í miðbænum á Þorláksmessu
Það var virkilega jólaleg stemmn-
ing í miðbæ Vestmannaeyja á
Þorláksmessu. Eins og svo oft
áður rölta heilu fjölskyldurnar
saman í bæinn til að sýna sig og
sjá aðra, drekka í sig stemmn-
inguna áður en jólahátíðin
gengur í garð. Flestir eru búnir
að Ijúka helstu jólainnkaupunum
en Ijúka þeim með formlegum
hætti á Þorláksmessu. Óskar
Pétur Friðriksson, Ijósmyndari
var einn þeirra sem rölti um í
miðbænum en hann myndaði
stemmninguna og má sjá mynd-
irnar hér til hliðar.
GYLFI Gíslason og Hafþór
Snorrason voru í jólaskapi á
Bárustígnum.
EKTA JÓLASTEMMNING. Það var notaleg tilfinning að heyra
jólalögin hljóma hjá Lúðrasveit Vestmannaeyja.
f JÓLASKAPI. Jóhanna Jónsdóttir og Eydís Sigurðardóttir voru í
jólaskapi við búðarborðið í Volare.
ADOLF Þórsson og María S. Sigurbjörnsdóttir voru með börnin í
Miðstöðinni.
vj W
HRESSAR STELPUR sem brostu sínu blíðasta inn í Volare, þó svo að
þær stæðu við fullan rekka af Liverpoolvörum.