Fréttablaðið - 22.02.2013, Qupperneq 18
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Leikritið heitir einfaldlega Sigvaldi
Kaldalóns og það fjallar um ár Sigvalda
í Ísafjarðardjúpi,“ útskýrir Elfar Logi.
„Eftir að hann útskrifaðist sem læknir
var hans fyrsta embætti að leysa af á
Hólmavík, en svo var honum boðið að
taka við Nauteyrarhéraði og þangað fór
hann og ílentist í ellefu ár.“
Samdi hann mikið af tónlist á þeim
árum? „Já. Í bók Gunnars M. Magnús,
sem heitir einfaldlega Bókin um Sig-
valda Kaldalóns, kemur hann aftur
og aftur að því hvað Djúpið hafi haft
inspírerandi áhrif á Sigvalda, bæði
fólkið og náttúran. Þar uppgötvaði hann
lífið og var í gífurlegu stuði. Á þessum
ellefu árum samdi hann að minnsta
kosti hundrað lög sem landsmenn kunna
enn þann dag í dag mörg hver. Ég ætla
nú ekkert að telja þau öll upp en get
nefnt til dæmis Þú eina hjartans yndið
mitt sem hann tileinkaði konu sinni.“
Þú einskorðar verkið við þann tíma
sem hann var fyrir vestan? „Já, en leik-
ritið gerist samt í Solleröd í Danmörku
þar sem Sigvaldi var á heilsuhæli til
að ná sér af slæmum berklum. Rammi
verksins er sá að hann býður einni
starfsstúlkunni þar með sér í hugar-
ferð vestur.“
Þú samdir verkið, leikur Sigvalda
og syngur lögin hans í sýningunni, eða
hvað? „Nei, ég syng nú ekki. Það ræð
ég ekki við. En mér til halds
og trausts er ég með mikla
listakonu sem heitir Dagný
Arnalds og hún er bæði leik-
kona og hljóðfæraleikari í
sýningunni auk þess sem
hún syngur nokkur laganna.
Ég ræð bara við að syngja
Megas.“
Frumsýning er í kvöld
í Hömrum á Ísafirði og
önnur sýning þar á sunnu-
dag, hvert verður svo
framhaldið? „Þegar maður
startar nýju ævintýri vill
maður aðeins leyfa því að
gerast og svo tekur maður
dansinn. Það er þó þegar
ákveðið að bæta við sýn-
ingu í Hömrum sunnu-
daginn 3. mars vegna
mikillar ásóknar í miða.
Svo veit ég ekkert hvað
gerist. Það er mikið verið
að spyrja um páskana
þannig að ég reikna með að ég laumi
inn nokkrum sýningum þá svo fólk geti
hvílt sig á rokkinu smá stund, kíkt í
leikhús og kynnst Sigvalda.“
fridrikab@frettabladid.is
Samdi hundrað lög á
ellefu árum í Djúpinu
Kómedíuleikhúsið á Ísafi rði frumsýnir í kvöld leikritið Sigvalda Kaldalóns eft ir Elfar Loga
Hannesson, sem jafnframt leikur titilpersónuna. Verkið fj allar um þau ár sem hið ástsæla
tónskáld starfaði sem héraðslæknir í Nauteyrarhéraði í Ísafj arðardjúpi.
SIGVALDI KALDALÓNS Elfar Logi leikur tónskáldið ástsæla í eigin verki sem
einfaldlega ber nafn þess.
Faðir minn, tengdafaðir, afi og fósturfaðir,
JÓN DANÍELSSON
fyrrverandi skipstjóri,
Dunhaga 15, Reykjavík,
varð bráðkvaddur þann 19. febrúar sl. Útför hans fer fram frá
Neskirkju fimmtudaginn 28. febrúar kl. 15.00.
Örn D. Jónsson Laufey Guðjónsdóttir
Steinunn Arnardóttir Leópold Kristjánsson
Ágústa Arnardóttir Einar Þorsteinn Arnarson
Pétur Emilsson Sigrún Edda Sigurðardóttir
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EGILL GUÐLAUGSSON
múrari,
áður til heimilis að Berjarima 9,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 9. janúar.
Útförin hefur ferið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Sérstakar þakkir færum við Manfred
Lemke presti, Ólafi H. Samúelssyni lækni og öðru starfsfólki á
Hjúkrunarheimilinu Eir 3. hæð norður fyrir góða umönnun og
hlýju í garð okkar allra.
Kristín Stefánsdóttir
Kolbrún Jósepsdóttir
Stefán Egilsson Bryndís Eggertsdóttir
Kristín Ellý Egilsdóttir Grétar Baldursson
Hrafnhildur Egilsdóttir Halldór Bergdal Baldursson
Elísabet Egilsdóttir Kristján V. Halldórsson
Guðmunda Egilsdóttir Stefán Gísli Stefánsson
Egill Egilsson Lára Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
BJARNI HELGASON
frá Vestmannaeyjum,
Þangbakka 8, Reykjavík,
lést 10. febrúar á Hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð,
Helga Sigurðardóttir
Jóhann Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
AUÐUR BIRNA HAUKSDÓTTIR
Austurgerði 1, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 11. febrúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Starfsfólk Heimahlynningar og
krabbameinslækningadeildar 11E,
Landspítala við Hringbraut fær sérstakar þakkir
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Guð blessi ykkur.
Aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS MARTEINSDÓTTIR
Suðurgötu 17, Sandgerði,
lést laugardaginn 16. febrúar á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Útför hennar fer fram
þriðjudaginn 26. febrúar kl. 13.00
frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði.
Ólafur Davíðsson
Sævar Ólafsson Friðbjörg Ósk Arnbergsdóttir
Signý Ólafsdóttir Helgi Sævar Sigurðsson
Elín Ólafsdóttir Guðjón Bragason
Guðrún Ólafsdóttir Guðmundur Þórðarson
Sigurlína Ólafsdóttir
Marteinn Ólafsson
Ingibjörg Þ. Ólafsdóttir
Davíð Þór Ólafsson Stefanía Helga Ingibjargardóttir
Ólafur Þór Ólafsson Katrín Júlía Júlíusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Eir,
andaðist miðvikudaginn 20. febrúar. Útför
hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík,
fimmtudaginn 28. febrúar kl. 13.00.
Kristín María Kjartansdóttir Ingólfur Hauksson
Hannes Jóhannsson Beth Moore
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
PAULS SVEINBJÖRNS JOHNSON.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
Minnismóttökunni, Þorraseli og á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund fyrir góða umönnun og hlýhug í hans garð.
Áslaug Ragnhildur Holm Johnson
Sonja Ragnhildur Johnson Marc C. Johnson
Pétur Snæbjörn Johnson
Birgir Þór Johnson Santok Johnson
Kathleen Johnson Menlove Lynn Menlove
Knut Sveinbjörn Johnson
og barnabörn.
TÓNSKÁLDIÐ Sigvaldi
Kaldalóns var héraðslæknir í
Nauteyrarhreppi í ellefu ár.
Þennan dag árið 1997 létu vísindamenn í
Skotlandi fréttast um tilvist fyrstu skepn-
unnar sem tekist hafði að klóna svo vel
færi. Þetta var ærin Dolly sem búin var til
í Roslin-stofnuninni í Edinborg, en Dolly
kom í heiminn 5. júlí árið 1996. Dolly var
fyrsta spendýrið sem klónað var úr frumu
fullorðinnar skepnu. Fyrri tilraunir til
klónunar höfðu verið úr fósturfrumum.
Klónun Dollyar varð mjög umtöluð, enda
fylgdu klónunargetunni siðferðileg álita-
mál og ótti meðal margra um að tæknina
mætti nota til að klóna fólk. Dr. Ian Wilmut,
sem fór fyrir hópi vísindamannanna
skosku sem stóðu að tilurð Dollyar, sagði
hins vegar að klónun manneskja væri
bæði ógeðfelld og ólögleg. Skoska kirkjan
lýsti því yfir að þótt rannsóknirnar væru
„heillandi“ þá hefði hún sínar efasemdir.
Þá upplýsti Dr. Wilmut líka um hvernig
komið hafði til að kindin var nefnd Dolly.
„Dolly er búin til úr frumu mjólkurkirtils
og okkur komu ekki í hug nokkrir mjólkur-
kirtlar mikilfenglegri en á Dolly Parton.“
ÞETTA GERÐIST 22. FEBRÚAR 1997
Heimurinn fréttir af tilvist Dollyar