Fréttablaðið - 22.02.2013, Side 19
ÁSGEIR TRAUSTI Á SKAGANUM
Tónlistarsnillingurinn nýverðlaunaði, Ásgeir
Trausti, verður með tónleika í Bíóhöllinni á Akra-
nesi annað kvöld kl. 21.00. Sérstakur gestur verður
Pétur Ben sem spilar nokkur af sínum bestu lögum
áður en Ásgeir og hljómsveit stíga á svið.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarps-þáttinn Eldað með Holta á ÍNN.
Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-
kjúklingi fyrir áhorfendur.
Hér færir Úlfar okkur uppskrift fyrir
fjóra að einstaklega girnilegum kjúklingi
í sesamsósu með kjúklingabaunum,
sveppum, kúrbíti og spínati. Rétturinn
er borinn fram með brauði. Tilvalinn
réttur til að koma konunni á óvart á
konudaginn.
Hægt er að fylgjast með Úlfari elda
þennan ljúffenga rétt í kvöld klukkan
21.30 á sjónvarps stöðinni ÍNN. Þætt-
irnir verða svo endursýndir yfir
helgina. Einnig er hægt að horfa á þá á
heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
SESAMSÓSA
1 dl þurrristuð sesamfræ
1,5 msk. hunang
1 msk. dijonsinnep
1 msk. sítrónusafi
1 msk. ljóst edik
Salt og nýmalaður pipar
1,5 dl olía
Setjið allt nema olíuna í mat-
vinnsluvél og grófmaukið. Hellið
þá olíunni í mjórri bunu í skálina
og látið vélina ganga á meðan.
KJÚKLINGUR
3 msk. olía
6-800 g kjúklingabringur, skorn-
ar í teninga
10 sitakesveppir eða venjulegir
í bátum
1/3 kúrbítur í bitum
10 stk. dvergmaís í bitum
3 dl soðnar kjúklingabaunir
1/2 poki spínat
Salt og nýmalaður pipar
AÐFERÐ
Hitið olíu í wokpönnu eða stórri
pönnu og steikið kjúklinginn
í 3 mínútur eða þar til hann
er fallega brúnaður. Bætið þá
sveppum, kúrbít og dvergmaís á
pönnuna og steikið í 3-4 mínútur
til viðbótar. Kryddið með salti og
pipar. Næst er kjúklingabaunum
bætt á pönnuna og látið krauma í
eina mínútu. Að lokum er spínati
og sesamsósu bætt við og öllu
blandað vel saman. Borið fram
með góðu brauði.
KJÚKLINGUR Í SESAMSÓSU MEÐ KJÚKLINGABAUNUM, SVEPPUM, KÚRBÍT OG SPÍNATI
FLOTT UPPSKRIFT
Meistarakokkurinn Úlfar
Finnbjörnsson matreiðir
girnilegan kjúklingarétt.
MYND/ANTON
BLÖNDUNARLOKI
FYLGIR
af OSO hitakútum,
Wösab olíufylltum ofnum
og Vortice loftræstiviftum.
AFSLÁTTUR
15%
NORSK
FRAMLEIÐSLA
Gæða viftur fyrir baðherbergi, eldhús, vinnustaði o.fl.
Olíufylltir
rafmagnsofnar Stærðir: 250W-2000W