Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 21
INNHEIMTA
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013
Kynningarblað
Greiðsluerfiðleikar, gjalddagi, eindagi, sektir og góð ráð.
Mikil viðhorfsbreyting hefur orðið í þjóðfélaginu síðustu ár með útvist-un innheimtu enda felst mikið hag-
ræði í því að geta útvistað slíkri starfsemi til
sérfræðinga og einbeitt sér að kjarnastarf-
semi. Þó er ekki sama hvernig er að verki
staðið við þá þjónustu, enda er eðlilegt að
litið sé á innheimtuaðilann sem framleng-
ingu af kröfuhafanum og mikilvægt að inn-
heimtan sem slík raski ekki viðskiptasam-
bandi kröfuhafa og viðskiptavina þeirra sem
eiga tímabundið í erfiðleikum með að standa
í skilum,“ segir framkvæmdastjórinn Davíð
B. Gíslason.
Sveigjanleiki í fyrirrúmi
Innheimtuferli Momentum er mjög sveigj-
anlegt. Kröfuhafi getur ráðið sínum ferlum
sjálfur og byggt þá á sinni reynslu á sínum
viðskiptavinum og vilja sem og ráðlegging-
um starfsfólks Momentum. Þetta á til dæmis
við um fjölda bréfa, símhringinga og tíma-
lengd milli aðgerða.
Enginn kostnaður kröfuhafa
„Almenn stefna Momentum er sú að kostnað-
ur af innheimtunni lendir á þeim sem stofnar
til kröfunnar með því að greiða hana ekki á
umsömdum tíma, en dreifist ekki almennt á
alla viðskiptavini kröfuhafa. Þannig er tryggt
að þeir sem standa skil á greiðslum á tilsett-
um tíma geti notið bestu kjara í viðskiptum
sínum við kröfuhafa. Í samræmi við þetta
greiðir kröfuhafi engin skráningargjöld, ár-
gjöld eða annan slíkan kostnað hjá Moment-
um,“ segir Davíð.
„Útrás“ utan höfuðborgarsvæðisins
Mikil aukning hefur verið á verkefnum
Momentum og Gjaldheimtunnar enda hefur
nálgun fyrirtækjanna að innheimtustarfsemi
fallið vel í kramið hjá viðskiptavinunum.
„Momentum og Gjaldheimtan hafa um
árabil haft hluta af starfsemi sinni á Siglu-
firði og er það dæmi um að fyrirtækin vilja
stuðla að meiri nánd við þá aðila sem verið
er að þjónusta á landsbyggðinni. „Þróunin
á innheimtumarkaðinum hefur verið mjög
hröð síðustu ár og hafa kröfur um rafrænar
vinnslur og tengingar alltaf verið að aukast.
Momentum og Gjaldheimtan hafa alla tíð
leitast eftir því að bjóða upp á hagkvæm-
ar lausnir sem auðvelda einstaklingum og
fyrir tækjum störf og bjóða upp á sveigjan-
legar leiðir eftir kröfum hvers og eins kröfu-
hafa. „Þessi þróun hefur valdið því að mun
auðveldara er fyrir fyrirtæki eins og Moment-
um og Gjaldheimtuna að nýta sér starfskrafta
á landsbyggðinni.“
En af hverju Siglufjörður?
„Við höfum verið mjög ánægð með það fólk
sem við höfum fengið til starfa á Siglufirði
sem kemur ekki á óvart af fyrri kynnum
okkar af Siglfirðingum. Nú eru fimm starfs-
menn að vinna fyrir okkur þar og ljóst er að
við höfum hugsað til þess að auka frekar við
á þeim vettvangi, enda eru verkefnin alltaf
að aukast, bæði almennt og einnig að fjölga
þeim verkefnum sem auðvelt er að vinna frá
útibúum líkt og á Siglufirði,“ upplýsir Davíð.
Verður framhald á þessari
útvíkkun á landsbyggðinni?
„Við erum alltaf að skoða það að opna starfs-
stöðvar og bakvinnslur á fleiri stöðum á
landinu og horfum auðvitað til þeirra svæða
þar sem þjónusta okkar er nýtt. Möguleik-
arnir eru endalausir í því sambandi og
höfum við verið ánægð með þær viðtökur
sem við höfum fengið víða um land. Fram-
tíðin er því björt hjá okkur í þessu sem og
öðru.“
Nokkrar staðreyndir
Innheimtuferli Momentum er mjög sveigjanlegt og getur kröfuhafi ráðið sínum ferlum sjálfur.
Þetta á til dæmis við um fjölda bréfa, símhringinga og tímalengd milli aðgerða.
Mikil aukning hefur verið á verkefnum Momentum og Gjaldheimtunnar enda hefur nálgun fyrir-
tækjanna að innhemtustarfsemi fallið vel í kramið hjá viðskiptavinum.
Momentum og Gjaldheimtan hafa um árabil haft hluta af starfseminni á Siglufirði og er það
dæmi um að fyrirtækin vilja stuðla að meiri nánd við þá aðila sem verið er að þjónusta á lands-
byggðinni.
& RÁÐGJÖF
Momentum á Siglufirði
Momentum og Gjaldheimtan eru fyrirtæki sem reka innheimtuþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög, lífeyrissjóði og
fleiri. Yfir þrjátíu starfsmenn starfa hjá fyrirtækjunum. Höfuðstöðvarnar eru í Reykjavík en auk þess er starfsstöð á Siglufirði. Vel
kemur til greina að opna starfsstöðvar og bakvinnslur á fleiri stöðum á landinu.
Fimm starfsmenn vinna fyrir Momentum á Siglufirði og er búist við að þeim muni fjölga. Þá er verið að skoða að opna starfsstöðvar á fleiri stöðum á landinu. MYND/VILHELM