Fréttablaðið - 22.02.2013, Síða 24
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og annað frábært, heimili, hönnun, tíska og hugmyndir, Sigrún Edda, afþreying, heilsa, fegurð og hamingja, helgarmaturinn og spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 22. FEBRÚAR 2013
Umsjón blaðsins
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Stefán Karlsson.
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
HVERJIR
HVAR?
M
ig langaði að starfa
innan tískugeir-
ans eftir útskrift
en hafði ekki áhuga
á því að byrja á
að þjóna fólki innan hans til að
koma mér að eins og tíðkast oft.
Ég vildi heldur skapa mín eigin
tækifæri,“ segir Soffía Theó-
dóra Tryggvadóttir, ritstjóri vef-
tímaritsins Nordic Style Magaz-
ine sem kom út í annað sinn í vik-
unni.
Soffía er nýútskrifuð úr tísku-
og markaðsstjórnun frá Fashion
Institute of Technology í New
York en heillaðist af fjölmiðlum
er hún stofnaði tímarit viðskipta-
fræðinema við Háskóla Íslands
fyrir nokkrum árum. „Ég er ekki
endilega heilluð af blaðamennsku
heldur meira af vinnunni sem
liggur að baki þessu ferli að
koma saman tímariti. Ég byrjaði
á þessu verkefni ásamt sænskri
skólasystur minni en við höfð-
um fundið fyrir því að það vant-
aði einhvern miðil sem einblíndi
á hönnun og tísku frá Norður-
löndunum hér í Bandaríkjun-
um,“ segir Soffía og bætir við að
um þessar mundir þyki allt sem
kemur frá Norðurlöndunum mjög
vinsælt vestanhafs.
„Það er mikil gróska í hönn-
un, listum og menningu á Norð-
urlöndunum sem mér finnst vert
að vekja athygli á og við sáum
ákveðið sóknarfæri í að einbeita
okkur að þeim markaði. Það vant-
aði kynningu fyrir þessa færu
hönnuði og merki og við höfum
fengið að heyra að þeir séu mjög
ánægðir með framtakið. Tísku og
hönnun fylgist ég mikið með og
hef mjög gaman af.“
Soffía var búsett í New York en
ætlar að dvelja hér á landi fram
á vor til að koma blaðinu í al-
mennilegan farveg. Hún vinnur
með fólki með fjölbreyttan bak-
grunn sem er víða að af Norður-
löndunum en um þrjátíu manns
komu að síðasta tölublaði. „Blað-
ið er enn þá í mótun og við fögn-
um öllum tillögum sem okkur
berast. Ég hvet líka fólk eindreg-
ið til að hafa samband ef það vill
leggja blaðinu lið,“ segir Soffía
en einnig er verið að glæða vef-
síðu blaðsins lífi og hægt að
fylgjast með á slóðinni Nordic-
stylemag.com.
alfrun@frettabladid.is
VEFTÍMARIT NORÐURLÖND-
IN ERU MJÖG VINSÆL NÚNA
Soffía Theódóra Tryggvadóttir stofnaði veftímaritið Nordic Style Magazine er hún var í
námi í tísku- og markaðsstjórnun í New York. Blaðið hefur fengið mjög góðar viðtökur en
það leggur áherslu á listir, menningu, hönnun og tísku frá Norðurlöndunum.
Soffía Theódóra Tryggvadóttir stofnaði blaðið Nordic Style Magazine í lok síðasta
árs en það hefur fengið góðar viðtökur lesenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
09.00 Fór með dóttur mína í
leikskólann. Hún ákvað að vera
Brave-stelpan í tilefni dagsins.
09.30 Morgunmatur með bestu
Kristínu Ástu á Laundromat café,
eins og venjulega.
11.00 Búðin opnuð.
15.00 Þessi metnaðarfulli ungi
maður mætti með gítar og söng
fyrir okkur á öskudaginn, þrátt
fyrir að nammið hafi verið búið.
Vel gert!
Eftir 15.00 Kaffið á Súfistanum.
16.00 Við Stína í fullu fjöri.
18.00 Yummi-Yummi take-out.
Húsmóðir ársins!
21.00 Ormurinn sofnaður í
mömmu og pabba rúmi og við
taka rólegheit með manninum
mínum. Sjónvarpið, tímarit og
tölva. Nóg að gera.
Dagur í lífi
Það vantaði ekki glæsi-
leikann þegar Hótel Borg
bauð til opnunar í gær
eftir að veitingamennirn-
ir Völundur Snær Völund-
arson og Haukur Víðis-
son tóku við rekstri staðarins.
Rakel Garðarsdóttir leik-
kona, Sigurlaug M. Jónas-
dóttir, Jón Ársæll Þórðar-
son fjölmiðamaður og Stein-
unn Þórarinsdóttir mættu
til að líta staðinn augum. Einn-
ig mættu þau Vera Sölvadótt-
ir, Einar Bárðarson, Ástríður
Magnúsdóttir, Dögg Hjaltalín
og Birna Björnsdóttir danskenn-
ari í gleðina.
Oddný Jóna Bárðardóttir verslunareigandi Fjörugur öskudagur
á Laugaveginum
Grensásvegur 8, sími 553 7300
mán-fim 12–18, fös 12–19, lau 12–17
Kr. 7.990,-
Kr. 8.990,-
Kr. 7.990,-
Kr. 9.990,-
Kr. 7.990,-
Kr. 8.990,-
Uppáhalds
HÖNNUÐURINN Það er
nú ansi erfitt að vera með
uppáhaldshönnuð frá Norð-
urlöndunum þar sem það
eru margir frábærir og ólík-
ir. Eins og stendur er ég ein-
staklega hrifin af Ostwald
Helgason og Altewai.Saome
og ég er einnig mjög skotin í
Moonspoon Saloon.
BÚÐIN Mér finnst ATMO á
Laugaveginum mjög skemmti-
leg. Það vantaði algjörlega
svona verslun sem sýnir svart
á hvítu hve frambærileg ís-
lensk fatahönnun er.
KAFFIHÚSIÐ Ég er ekki
mikil kaffihúsamanneskja en
kaffihúsið sem ég fór í síð-
ast var Café Salonen í Kaup-
mannahöfn sem vill svo til að
er í eigu Íslendinga.
TÍMARITIÐ Ég er mjög hrif-
in af Eurowoman og er raun-
ar mun hrifnari af skandin-
avískum tískutímaritum en al-
þjóðlegum.
BLOGG Ég fylgist með
hinni sænsku Elin Kling (style-
bykling.nowmanifest.com) og
finnskum bloggara sem heit-
ir Sandra Hagelstam (5inc-
handup.blogspot.com).
VEITINGASTAÐUR Ég fór
á Grillmarkaðinn um daginn
og fékk mér rosalega góða
nautasteik.
NÝJUNGIN Ósýnilegi reið-
hjólahjálmurinn, Hövding, er
mjög einstök hönnun.