Fréttablaðið - 22.02.2013, Side 30
FRÉTTABLAÐIÐ Sigrún Edda, afþreying, heilsa, fegurð og hamingja, helgarmaturinn og spjörunum úr.
8 • LÍFIÐ 22. FEBRÚAR 2013
AUGLÝSING: SIGURBORG EHF. KYNNIR
Steinefnafarðinn bareMinerals
kom fyrst á markað í Bandaríkj-
unum árið 1976 og er mest seldi
steinefnafarðinn þar í landi.
Hilde Lise, förðunarmeistari hjá
bareMinerals, er nú stödd hér á
landi til að kynna förðunarlín-
una. Hún segir farðann einstak-
an fyrir þær sakir að hann vinn-
ur með húðinni og hentar öllum
húðgerðum og öllum aldri.
„Allar vörur bareMinerals
eru þróaðar til þess að kalla
fram fegurð þína,“ segir Hilde
Lise. „Húðin nær að anda og
farðinn gefur húðinni raka.
Eingöngu eru notuð einstak-
lega hrein og fá innihaldsefni
svo að húðin fái eingöngu það
sem hún þarf. Það er ótrú-
lega gaman að fylgjast
með konum sem farðað-
ar eru með bareMinerals
í fyrsta sinn, þær ljóma,
húðin ljómar og sönn feg-
urð þeirra kemur í ljós.
Þær sem byrja að nota
bareMinerals fara sjaldn-
ast aftur að nota hefð-
bundinn farða.“
KALLAR FRAM
FEGURÐ
BareMinerals-steinefnafarðinn hefur hlotið ótal verð-
laun og viðurkenningar. Farðinn er 100% náttúrulegur
og hylur einstaklega vel. Farðinn er án ilmefna og
parabena.
Farðinn frá
bareMinerals er
100% náttúrulegur
og án allra ilmefna og
parabena.
Sjá nánar á visir.is/lifid
Segðu mér aðeins frá hlutverki
þínu í Mary Poppins. Ég leik hana
Brillu sem er skemmtilegt hlut-
verk. Hún er matselja á heimili
Banks-fjölskyldunnar og er frek-
ar lélegur kokkur, hún er með
óhæfan aðstoðarmann sem Sig-
urður Þór Óskarsson leikur og
tekst að sprengja mig á leiksvið-
inu hvað eftir annað, hann er svo
fyndinn.
Hvað hafa æfingar staðið yfir
lengi? Æfingar hafa staðið yfir
í tíu vikur. Þetta er margslung-
in sýning, tæknilegt undur verð
ég að segja, full af töfrabrögðum,
frábærum söngvum sem allir
þekkja og ég get lofað mögnuðum
dansnúmerum.
Hvernig líður þér yfirleitt á
frumsýningardögum? Ég reyni
yfirleitt að plata sjálfa mig á
þann hátt að frumsýningar séu
bara eins og venjulegar sýningar
en tekst aldrei. Það er alltaf sér-
stök spenna í loftinu, lítið fiðrildi
í maganum.
Er einhver sérstök rútína sem
þú ferð eftir til að undirbúa þig?
Ég held mér í þokkalegu líkam-
legu formi, les bækur, hlusta á
tónlist, horfi á kvikmyndir og
leikhús til að næra sköpunar-
kraftinn. Svo hef ég mjög gaman
af því að skoða og stúdera fólk.
Fyrir sýningar finnst mér mikil-
vægt að hita röddina vel upp og
svo nota ég hugleiðslu til að slaka
á og róa hugann.
Hefurðu gleymt línunum
þínum á ögurstundu eða lent í
vandræðalegri uppákomu á sviði?
Það er ein uppákoma sem verð-
ur alltaf minnisstæð. Ég var að
leika í söngleik í gamalli skemmu
við Meistaravelli þar sem Bæjar-
útgerðin var til húsa fyrir mörg-
um árum. Söngleikurinn átti að
gerast á síldarplani. Þarna voru
fjölmargir leikarar og hljóm-
sveit. Eggert Þorleifsson var á
sviðinu með vatnsslöngu sem
notuð var til að spúla gólfið. Egg-
ert var vanur að láta seytla að-
eins úr slöngunni og syngja lagið
sitt, en á þessari tilteknu sýningu
kom ekkert vatn. Hann skrúf-
aði stútinn í botn og hrópaði: Það
kemur ekkert vatn! Einn starfs-
maður við leikhúsið, rosalegur
töffari, heyrði þetta og mundi að
hann hafði gleymt að skrúfa frá
krananum baksviðs. Hann rauk
að sjálfsögðu til og skrúfaði frá.
Og það var eins og við manninn
mælt, vatnið frussaðist fram í
slönguna af svo miklum krafti
að hún stóð beint upp í loft og
dældi vatninu yfir okkur leikar-
ana, hljómsveitina og áhorfendur.
Það leið langur tími þangað til við
gátum byrjað að leika aftur, það
hlógu allir svo mikið, bæði þeir
sem stóðu á sviðinu og áhorfend-
ur. Töffarinn sem átti sök á þessu
öllu saman varð svo seinna mað-
urinn minn.
Þú hefur einnig starfað sem
höfundur og leikstjóri, er það
eitthvað sem þú stefnir á að gera
meira af í framtíðinni? Það er
aldrei að vita. Ég hef alltaf haft
gaman af því að skrifa. Ég er með
margt í pípunum hvað það varð-
ar sem ég vona að öðlist vængi
þegar ég gef mér tíma til að sinna
því. Tími er það eina sem mig
skortir um þessar mundir
Bak við tjöldin – Misjafnt er eftir hlutverkum hve mikinn tíma hár og förðun tekur.
Fólkið í Kjallaranum.
Hér má sjá Sigrúnu Eddu í Gullregninu.
bareMinerals vörurnar fást nú hjá
Lyfjum og heilsu í Kringlunni.
Sérstakt byrjunarsett sem inniheldur tvo liti af farða,
sólarpúður, þrjá bursta, primer og laust púður, verður
á tilboðsverði út febrúar á 15.600 krónur.
„Allar vörur bareMinerals eru þróaðar til
þess að kalla fram fegurð þína,“ segir
Hilde Lise, förðunarmeistari hjá bare-
Minerals, en hún kynnir förðunarlínuna
hér á landi um þessar mundir.
MYND/SIGURBORG
Byrjunar-sett bareMinerals
er á tilboði út febrúar á
15.600 krónur.