Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 32
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28 24.900kr. 299.900kr. STYLEBOILER hitakútur fyrir neysluvatni. Ve ðr f ár : Vnr. 10101016 VANTO Sand skel. Mjög vönd ðu og sterk pottskel. 4.990kr. 2.990kr. Vnr. 10101307 Klórtöflur, 2 kg. Vnr. 10101313 Klórkorn, 1 kg. Vnr. 23199001-30 Varmaskiptigrind fyrir gólfhita eða ofna. MIKIÐ ÚRVAL AF HREINSIEFNUM FYRIR POTTINN LAGNAVERSLUN ÚRVAL AF ROTÞRÓM MIKIÐ ÚRVAL AF HITAKÚTUM, MARGAR STÆRÐIR OG GERÐIR Vnr. 25300300 SÆPLAST rotþró, 2600 l. VÖNDUÐ OG STERK POTTSKEL 100 L, 1,2KW 50 L, 1,2KW 15 L, 1,2KW LÁGT VERÐ – ALLA DAGA HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2013 Hátíðir 15.00 Stofnun Barnahjálpar SÁÁ fagnað með skemmtidagskrá þar sem börnum og foreldrum er boðið á Barnahátíð SÁÁ í Von í Efstaleiti 7. Mikki refur og Lilli klifurmús úr Hálsaskógi mæta og gera allt vitlaust og jafn- vel aðrir óvæntir gestir! Tónlist 15.00 Skólahljómsveit Austurbæjar, Kór Vogaskóla og nemendur í 6. bekk Vogaskóla halda tónleika í Ráðhúsi Reykja- víkur. Flutt verða átta lög eftir Magnús Eiríksson í útsetningum Össurar Geirssonar. 22.00 Birgir Örn Steinarsson kenndur við Maus og Hjalti Jón Sverrisson úr Miri koma fram á Hemma og Valda. Þeir ætla að „gera heiðarlega tilraun til tilfinninga flutnings á milli lífvera,“ með kassagítörum, röddum og að mestu frumsömdum hugsmíðum. Myndlist 17.00 Ásrún Kristjánsdóttir opnar sýn- ingu í Gallery Bakary, Bergstaðastræti 14. Ásrún sýnir málverk, unnin á síðust þremur árum. Bíó 20:00 Stutt- og heimildamynda- hátíðin Reykjavík Shorts & Docs Festival hefst. Hún verður haldin 9.-16. maí í Bíó Paradís, Kex Hostel og í Slipp Bíó / Reykjavík Marina. Þetta er í 11. sinn sem hátíðin er haldin og að venju er fjölbreytt úrval íslenskra og erlendra stutt- og heimildar- mynda. Upplýsingar um við- burði sendist á hvar@frettabladid.is „Við Bára erum á sama ári í skól- anum og einhvern tíma í vetur barst í tal að mig vantaði eitt- hvert nútímaverk til að spila á útskriftartónleikunum. Þá spurði hún hvort hún ætti ekki að semja eitthvað fyrir mig og gerði það svo bara,“ segir Þuríður Helga Ingvars dóttir fiðluleikari um tildrög þess að eitt verkanna sem hún leikur á útskriftartón- leikum sínum frá LHÍ er nýtt íslenskt verk eftir skólasystur hennar, Báru Gísladóttur. Verk- ið heitir Eldtungur á Vaðlaheiði, sem Þuríður segir vísa til þess að sjálf sé hún frá Akureyri. „Ég veit reyndar ekkert mikið hvern- ig þessi titill kom til, en þetta er augljós tenging við Akureyri.“ Þuríður hefur numið fiðlu- leik frá sex ára aldri og útskrif- ast með BMus-gráðu frá Listahá- skólanum nú í vor. Hún segist ekki viss hvort hún fari í fram- haldsnám, það verði allavega ekki strax. Auk verksins Eldtungur á Vaðlaheiði mun hún leika Sónötu fyrir fiðlu og píanó eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Sónötu fyrir einleiksfiðlu eftir Jóhann Sebast- ían Bach og sónötu fyrir fiðlu og píanó eftir Sergei Prokofiev. Tónleikarnir eru í Fríkirkj- unni, hefjast klukkan 18 og auk Þuríðar koma fram hljóðfæra- leikararnir Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir á selló, Steiney Sigurðardóttir á selló og Bára Gísladóttir á kontrabassa. Með- leikari er Richard Simm. - fsb Sérsamið verk á útskrift inni Þuríður Helga Ingvarsdóttir fi ðluleikari mun leika nýtt verk eft ir skólasystur sína, Báru Gísladóttur, á útskrift artónleikum frá LHÍ í Fríkirkjunni. ÚTSKRIFTARTÓNLEIKAR Þuríður Helga Ingvarsdóttir heldur útskriftartónleika sína frá LHÍ í Fríkirkjunni á föstudag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.