Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 23
SELFRIDGES OPNAR BÍLALÚGU Selfridges opnar bílalúgu í janúar næstkomandi. Þá geta við- skiptavinir pantað draumavarninginn á netinu og fengið afhentan í gegnum bílalúgu með háklassaþjónustu á móttöku- svæði aftan við verslunina á Oxford-stræti. Selfridges vonast til að allar vörur verslunarinnar, nema viðkvæmar matvörur, verði fáanlegar á netinu í lok árs. ANGUR REYKJAVIK Óskar Hallgrímsson, nemi í Listaháskóla Íslands fór að þrykkja á stuttermaboli til að eiga fyrir jóla gjöfum. Nú hefur hann stofnað merkið Angur Reykjavik og selur boli og peysur í Noland. Hægt er að forvitnast frekar um Angur á Facebook. MYND/VILHELM Ég á hjólabretti en kann engin trix, get í mesta lagi rennt mér áfram og aftur á bak. Pælingin er samt að þetta verði að skatewear-línu,“ segir Óskar Hallgrímsson, sem silki þrykkir á boli og peysur undir merkinu Angur Reykjavík. Óskar stundar nám í grafískri hönnun við LHÍ og má rekja upphafið að Angri til blankheita. „Ég var svo blankur fyrir jólin að ég ákvað að stofna Jólamarkað nemenda hönnunardeildar LHÍ. Það mætti einn fyrir utan mig að selja,“ segir hann hlæjandi. „Ég átti hauskúpuhönnunina til og þrykkti hana á boli og seldi fyrir hundrað þúsund kall á tveimur dögum. Ég fann því að ég var með eitthvað í höndunum. Nú sel ég bolina í Noland í Kringlunni,“ segir Óskar, sem ætlar að verða sér úti um græjur fljótlega til að geta þrykkt meira. „Ég á fleira til að prenta og stefni á að gera það í sumar. Ég er bara svo fátækur námsmaður að ég borða allan pening sem ég á,“ segir hann sposkur. „Ég hef verið að nýta mér aðstöðuna í skólanum en ætla að fara með dótið mitt inn á Karolinafund.com og vonast þannig til að geta fjármagnað græjur.“ Spurður hvort hann sjái sjálfan sig fyrir sér sem fatahönnuð í framtíðinni segist hann ekki líklegur til að festast í neinu ákveðnu. „Ég hef unnið sem ljósmyndari fyrir tískuheiminn í mörg ár og spái auð- vitað í tísku en ég hugsa frekar hvernig hægt er að blanda saman mismunandi sviðum og miðlum og búa þannig eitt- hvað til. Ég hef áhuga á hönnun en ég á ekki eftir að einskorða mig við eitthvað eitt, ekki ljósmyndun eða við grafíska hönnun heldur. Mér finnst gaman að búa til eitthvað fallegt, sama hvort það er ljósmyndir, grafík, vídeó eða hvað sem er.“ ■ heida@365.is KANN ENGIN TRIX ÍSLENSK HÖNNUN Óskar Hallgrímsson hannar undir merkinu Angur Reykja- vík. Á teikniborðinu er skatewear-lína en sjálfur kann hann ekkert á bretti. Hann segist hafa mikinn áhuga fyrir tísku og hönnun. Teg 81103 - létt fylltur í 70-85B, 75-90C á kr. 5.800,- buxur við á kr. 1.995,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. Laugardaga frá kl. 10-14 KLASSÍSKUR !

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.