Fréttablaðið - 03.06.2013, Side 13

Fréttablaðið - 03.06.2013, Side 13
MÁNUDAGUR 3. júní 2013 | SKOÐUN | 13 Þorsteinn Gylfason sagði að menning væri „að gera hlutina vel“ og hitti naglann á höfuðið eins og hans var von og vísa. Steinn Steinarr hafði það hins vegar eftir fóstru sinni að menn- ing væri rímorð og notað til þess að ríma á móti orðinu ,þrenning‘. Og hitti náttúrlega naglann á höf- uðið líka og þar með ætti málið að vera útrætt. Samt fór þetta orð – ,menning‘ – að bögglast fyrir mér á dögunum þar sem ég var farinn að gaula í sturtu, eins og maður gerir gjarn- an við slíkar kringumstæður, með flámælisframburði lagið með Grafík sem hann Helgi Björnsson söng svo eftirminnilega um árið: Ennþá lefir menningin! Ég hugsaði: Menning er flá mælis- framburður á orðinu minning. Menning er minning sem hnikað hefur verið til. Þjóðmenningarráðherrann Fyrst fannst mér þetta meiri- háttar uppgötvun hjá mér en eftir því sem dagarnir hafa liðið hefur hrifning mín á yrðingunni dofn- að. Ég fór samt í framhaldinu að velta fyrir mér þessu fyrirbæri – því nú vilja stjórnmálamenn fara að stjórna menningunni, ekki síst þjóðmenningunni sem Sigmundur Davíð ætlar hafa umsjón með. Sem sé: Ennþá lefir menningin. Líka ,þjóðmenningin‘: hún er hitt og þetta, gott og slæmt, fallegt og ljótt, sem býr í sameigin- legum ótæmandi og sístækkandi þekkingarsjóði sem kalla mætti ,þjóðar minni‘: Tilteknar aðferðir við að tala, yrkja, syngja, smíða, dansa (eða kannski öllu heldur dansa ekki), klæðast, hugsa, mat- búa, binda, leysa – jafnvel elska. Hvar á maður að hætta? Hvað á maður að hafa með? Bara silfur- skeiðarnar eða líka allt hitt gamla bestikkið? Hver á að velja? Til dæmis blessað flámælið: Er það hluti af íslenskum menningar- arfi? Eða eigum við að láta eins og það hafi aldrei verið til? Í flestum fjölskyldum býr minning um þennan framburð sem var upp- rættur með harðýðgi. Samsláttur á i og e annars vegar og u og ö hins vegar var alsiða hér og þar um landið, enda eðlilegt framhald í þróun tungumálsins. Menn ótt- uðust hins vegar að yrði ekkert að gert gæti farið svo að samfellan í þróun tungunnar kynni að rofna; beygingakerfið kynni að falla saman og við hættum að skilja gamla texta. Og því var gengið í það af miklu harðfylgi að útrýma þessum framburði sem kallaður var ,hljóðvilla‘. Alið var á því að líta niður á fólk sem hafði þenn- an framburð og hann hafður til marks um fábjánahátt. Fólki var markvisst kennt að skammast sín fyrir menningu sína, hvernig það talaði – hvernig og hvert það var. Hvort er þá ,þjóðmenning‘? Sú iðja að kúga fólk til sam ræmdrar hegðunar við það sem menningar- leg yfirstétt ákveður með mis- góðum rökum að sé hið rétta og hreina – eða hitt: að heiðra það hvernig alþýða manna talaði? Hvers vegna sýnir Sig mundur Davíð forsætisráðherra ,þjóð- menningunni‘ slíkan áhuga? Langar hann í slík hreinsunar- störf? Við höfum ekki orðið fyrir því að stjórnmálamaður hafi sóst eftir slíkum völdum yfir þjóð- legum stofnunum síðan Jónas frá Hriflu var á dögum. Sá valda- sækni maður gerði sér grein fyrir mikilvægi hins menningarlega bolmagns fyrir stjórnmálamenn og beitti því líka óspart og af ómældu stjórnlyndi. Er Jónas þá fyrirmynd Sigmundar í þessum efnum? Eru það skilaboðin frá Laugarvatni, staðnum sem Jónas bjó til? Megum við eiga von á því að Sigmundur fari að hlutast til um sögukennslu í skólum, staf- setningu í fornritum, listamanna- laun? Fari að skrifa ritdóma og halda háðungarsýningar á rangri list? Langar hann að láta rita Íslandssöguna á ný sem eitt sam- fellt Icesave-mál? „Hvort fást hér megingjarðir…? Sjáum hvað setur. Ennþá lefir menningin, hvað sem öðru líður. Og þjóðmenningin. Er hún lokað mengi? Er þjóðmenningin á söfnum? Að slá með orfi og ljá – er það þjóðmenning en ekki hitt að aka um á vespu? Er Eve online þjóðmenning? Orðin sem verk- fræðingarnir hafa verið svo dug- legir að búa til fyrir íðorðasafnið og hafa mörg hver ratað inn í dag- leg störf – eru þau þjóðmenning? Burstabærinn en ekki Harpa? Sögnin ,að læka‘ og hið afleidda nafnorð ,læk‘ - samanber sögnina ,að hika‘ og nafnorðið ,hik‘ – er hún þjóðmenning? Er þjóðmenn- ing að nota sögnina ,að brúka‘ eða eiga dönskuslettur að vera úti? Verða ráðnir dyraverðir þjóð- menningarinnar í forsætisráðu- neytið eða jafnvel búið til Þjóð- menningarráð í anda Jónasar? Eigum við von á tilskipun úr for- sætisráðuneytinu um að hætta að nota hið útlenska orðskrípi ,belti‘ en tala heldur um ,megingjarðir‘? Eða er ,íslensk þjóðmenning‘ kannski það sem aðhafst er í land- inu og hefur verið allar þær aldir sem þessi þjóð hefur verið til, gott eða slæmt eftir atvikum, fagurt og ljótt, merkilegt og lítilsiglt? Sumt þess virði að halda á lofti og rifja upp reglulega – en það getur aldrei verið opinber stjórnvalds- ákvörðun hvernig og hvort það skuli gert. Því íslensk menning er ekki skírlíf og ströng heldur frjálslynd og frjósöm, sífellt að eignast börn í lausaleik með alls konar hæpnum elementum. Hún er ævagömul og síung. Iðja lifandi fólks í margbreytilegum heimi kallar á ný viðmið í sífellu, nýjar lausnir, ný orð – nýjar aðferðir í bland við þær gömlu við að tala, yrkja, syngja, smíða, dansa, klæð- ast, hugsa, matbúa, binda, leysa – lifa og lefa. Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Ennþá lefir menningin Til dæmis blessað flámælið: Er það hluti af íslenskum menningararfi? Eða eigum við að láta eins og það hafi aldrei verið til? FRÁ ESKIFIRÐI Sumir segja að Hólmatindur sé fallegasta fjall landsins. Náttúru- fegurðin ein einkennir hins vegar ekki Austfirðina. Þar var líka algengt flámælið sem greinarhöfundur veltir fyrir sér í pistli sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Yfirdýnur gera rúmið þitt notalegra Kaldasvampur - þrýstijöfn- unarsvampur - latex Eggjabakkadýnur mýkja og verma rúmið þykktir 4-6 cm. Tilvaldar í sumar- húsið, ferðabílinn og tjaldvagninn Dýnur og púðar sniðnir eftir máli eða sniðum - með eða án áklæðis - mikið úrval áklæða Mikið úrval af svefnstólum og sófum í stöðluðum stærðum eða skv. máli Svampdýnur og pokagormadýnur framleiddar eftir máli og sniðum - margir stífleikar og mikið úrval áklæða Stærðir: 80 x 200 cm 90 x 200 cm 100 x 200 cm 120 x 200 cm 140 x 200 cm 160 x 200 cm 180 x 200 cm

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.