Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.09.2013, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 04.09.2013, Qupperneq 14
4. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 14 Í fréttum Ríkisútvarpsins mánudaginn 2. septem- ber baðst rektor Háskóla Íslands afsökunar á þeim óþægindum sem aftur- kölluð ráðning stunda- kennara við skólann kynni að hafa valdið. Að sögn rektors hefur komið í ljós í málinu að verk- lagsreglur skólans varð- andi ráðningu stunda- kennara hafi ekki verið nægilega skýrar og að þær verði endurskoðaðar á næstu dögum. Vegna þessar- ar miklu uppgötvunar er vert að rifja upp nokkur söguleg atriði. Í lok árs 2009 stofnuðu stunda- kennarar við Háskólann með sér félagið Hagstund. Ástæðan var sár óánægja með kjör hópsins, en jafnframt var ætlunin að þrýsta á um hvers kyns um bætur varð- andi réttindamál. Næstu miss- erin sendi félagið stjórnendum Háskólans ýmis erindi og átti marga fundi með stjórnsýslunni. Meðal þess sem sérstök áhersla var lögð á var að bæta þyrfti ráðningamálin – þar sem ekki væri hægt að tala um eiginlegan ráðningarsamning, engin tilraun væri gerð til að skilgreina rétt- indi og skyldur stundakennara og að mikið misræmi væri milli einstakra deilda skólans í þessum efnum. Kvartað til Umboðsmanns Þótt Háskólinn segðist sýna umkvörtunum félagsins mikinn skilning bólaði ekkert á úr bótum og fór svo að lokum að Hag- stund kvartaði til Umboðsmanns Alþingis á árinu 2012. Umboðs- maður sendi HÍ í kjölfarið ítar- legar spurningar um hvernig ráðningarmálum stunda- kennara væri háttað. Í svari skólans í september á síðasta ári, sem undir- ritað var af rektor, kom glögglega í ljós í hvílíkum ólestri málin væru og vinnubrögð mis- munandi milli deilda. Í júní í fyrra sendu Hagstund, BHM og Félag háskólakennara sameiginlegt erindi til Háskól- ans þar sem óskað var eftir stofn- un samráðsnefndar um málefni stundakennara og réttindi þeirra. Ellefu mánuðum síðar, að und- angengnum áréttingum, meðal annars með opnu bréfi í Frétta- blaðinu og að lokum fyrirspurn frá Umboðsmanni Alþingis um gang mála, barst svar Háskólans. Það var á þá leið að skólinn væri í sjálfu sér hlynntur því að mynd- aður yrði starfshópur en að rétt- ast væri að fjármálaráðuneytið stæði fyrir slíku. Það er því kátlegt að fylgjast nú með undrun stjórnenda HÍ yfir því að ráðningamál stunda- kennara við stofnunina séu í molum. Erfitt er að hafa samúð með Háskólanum í þessu máli, enda hefur hann meðvitað ýtt því á undan sér. Vonandi verður upp- ákoma liðinna daga þó til þess að stofnuninni skiljist loksins að það er allra hagur að skýra með full- nægjandi hætti réttindi og skyld- ur stundakennara. Íslenskur leigumarkaður er rústir einar. Verðið er upp- sprengt og réttur leigjenda í besta falli óljós. Óvissan sem fylgir því að þurfa að yfirgefa húsnæði sitt með nokkurra vikna til nokk- urra mánaða fyrirvara er afar mikil og er í ósamræmi við til að mynda réttindi húseigenda. Lítið framboð og mikil eftirspurn eftir leiguíbúðum hefur hækk- að leiguverð fram úr öllu hófi en talið er að um 2000 leigu- íbúðir vanti til að anna þeirri eftir- spurn. Sumir leigjendur eru heppn- ir en aðrir eru óheppnir. Sem aftur þýðir að ekki er setið við sama borð. Hið opinbera getur heilmikið gert í málum leigjenda og hefur til þess ógrynni verkfæra. Með sameigin- legu átaki ríkis og sveitarfélaga væri hægt að stórbæta stöðu leigj- enda með því að auka réttindi þeirra og skyldur. Hvað er til ráða? Gott og vel. En hvað geta sveitar- félögin gert? Þau geta til að mynda markað sér stefnu að útvega lóðir og lönd til að leiguíbúðir rísi. Þann- ig gæti sveitarfélagið orðið hluti af byggingafélagi eða leigufélagi og nýtt styrk sinn innan bæjar- marka viðkomandi sveitarfélags. Reykjavíkurborg hefur nú þegar sett fram metnaðarfulla áætlun í þessum efnum en í Kópavogi, næst- stærsta sveitarfélagi landsins, ómar eftirspurnin um allt og virðist sem hugmyndafræði eða ósamstaða innan meirihlutans komi í veg fyrir aðgerðir. Ekkert er gert í Kópavogi Í Kópavogi hefur í stuttu máli ekk- ert verið gert fyrir leigjendur. Fyrri meirihluti var langt kominn með metnaðarfulla áætlun í málefnum leigjenda, m.a. með stofnun leigufélags. Útreikningar um að sá rekstur myndi standa undir sér liggja fyrir en slíkt verkefni strax eftir hrun hefði hjálpað mikið til að létta á þeim þrýstingi eftirspurnar á byggingu íbúða sem henta litlum fjölskyldum og einstaklingum sem eru að koma undir sig fótunum. Fjölbreytni í valkostum á húsnæði er hluti af nútímasamfélagi, hvort sem um er að ræða eign, leigu eða búseturétt. Það er því afar óheppi- legt að stórt bæjarfélag eins og Kópavogur hafi í kjölfar meirihluta- skipta tekið meðvitaða ákvörðun um að gera ekkert fyrir leigjendur. Það er dapurlegt að hægrisinnaður meirihluti sem nú fer með stjórn Kópavogs vilji af prinsippástæðum ekki að hið opinbera komi að því að byggja upp traustan langtíma leigu- markað. Oddviti meirihlutans hefur ítrekað bent á að verja þurfi hags- muni leigusala og aðkoma hins opin- bera myndi mögulega vega að sam- keppnisstöðu á leigumarkaði með lækkun leiguverðs. Á sama tíma og Eygló Harðardóttir, félags- og hús- næðismálaráðherra, lýsir yfir vilja ráðuneytis síns til að vera gerandi á leigumarkaði heyrist ekkert frá meirihlutanum í Kópavogi. Verk- færi bæjarfélagsins eru til staðar á sama tíma og ekkert er gert til aðstoðar þeim mikla fjölda bæjar- búa sem vill búa í leiguhúsnæði. Eru stjórnmálamenn í Kópavogi virki- lega að standa vaktina fyrir stór- eignamenn frekar en leigjendur? Nýlega birtist frétt um ungan dreng með ADHD sem vill ekki lifa lengur vegna þess gífurlega ein- eltis sem hann hefur orðið fyrir síðan hann hóf skóla- göngu sína fyrir tveimur árum. Já, við erum að tala um lítinn átta ára dreng sem langar til þess að verða engill, því þá muni loks einhverjir vilja leika við hann. Þessi saga er ekki einsdæmi, það þekkj- um við hjá ADHD samtökunum. Til samtakanna leitar á hverju ári fjöldi foreldra vegna erfiðleika í skóla, eineltis og félagslegrar ein- angrunar barna sinna. En hvað gerir það að verkum að börn með ADHD eru oftar útsett fyrir einelti og hvernig getum við brugðist við? Því meira sem við vitum um röskunina og hinar ýmsu birtingarmyndir hennar, þeim mun betur erum við í stakk búin til þess að skilja einstaklinga með ADHD og koma í veg fyrir óæskilegar aðstæður, þar sem þeir geta orðið fyrir einelti. Lengi vel var því hald- ið fram að börn með ADHD væru bara óþekk, skorti aga og um væri að kenna lélegu uppeldi foreldra og almennri leti þeirra til þess að takast á við foreldrahlutverkið. Sem betur fer hefur þetta breyst. Nú vita flestir að ADHD er taugaþroska- röskun í heila, sem stafar af truflun á boð efnum í stjórnstöð heilans. Helstu einkenni A DHD eru athyglis brestur, ofvirkni og hvatvísi. Mismunandi birtingarmyndir Fáir þekkja hins vegar hinar mis- munandi birtingarmyndir ADHD, en skynúrvinnsla barna með ADHD er að mörgu leyti öðru- vísi en annarra barna. Þau upplifa hávaða, snertingu og truflanir í umhverfinu oft á annan og sterkari hátt og því geta viðbrögð þeirra oft orðið mjög ýkt og sjaldnar í sam- ræmi við það sem við teljum „eðli- legt“ miðað við aðstæður. Þá eiga börn með ADHD erfitt með að lesa í félagslegar aðstæð- ur. Þau eiga því til að ryðjast inn í leik annarra og eiga erfitt með að bíða eftir að röðin komi að sér. Ekki má heldur gleyma því hve börn með ADHD eru oft inni- leg, ástríðufull og hvatvís og geta þannig stundum stuðað hin börnin í hópnum. Þar getur samhent starfs- fólk skóla oft gert kraftaverk með því að lesa í aðstæður og aðstoða börn við að koma þeim af stað í leik með öðrum börnum, þróa með þeim félagsfærni og styrkja barn- ið þegar það sýnir æskilega hegð- un með jákvæðni og hrósi. Jákvæð- ur bekkjarandi, þar sem lögð er áhersla á að börnin séu bekkjar- systkini og alið á samkennd og væntumþykju, getur líka haft víð- tæk áhrif utan skólastofunnar. Við sem samfélag berum líka ábyrgð á því að fræða börnin okkar um fjölbreytileika mannlífsins, virðingu og tillitsemi. Að einelti og útilokun eða útskúfun einstaklings sé ekki valkostur eða eins og við segjum við börnin okkar þegar þau eru lítil „ÞAÐ ER EKKI Í BOÐI“. Gamli frasinn sem segir að það þurfi þorp til þess að ala upp barn á svo sannarlega enn við í dag. ➜ Við sem samfélag berum líka ábyrgð á því að fræða börnin okkar... ➜ Eru stjórnmála- menn í Kópavogi virki- lega að standa vaktina fyrir stóreignamenn... ➜ Erfi tt er að hafa samúð með Háskól- anum í þessu máli, enda hefur hann meðvitað ýtt því á undan sér. ADHD og einelti Villta vestrið á leigumarkaði Sjálfskaparvíti Háskólans SAMFÉLAG Björk Þórarinsdóttir formaður ADHD samtakanna HÚSNÆÐI Pétur Ólafsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi STUNDA- KENNARAR Stefán Pálsson fv. formaður Hagstundar stgr. afsláttur 15-50% Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Einungis í tvo daga: 4. og 5. september frá kl. 10:00-18:00 Tökum til á lagernum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.