Fréttablaðið - 04.09.2013, Page 30

Fréttablaðið - 04.09.2013, Page 30
4. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22 Heimili fatahönnuðarins Alexand- ers McQueen er nú til sölu á rúm- lega einn milljarð króna. McQueen hafði fest kaup á þriggja herbergja lúxusíbúð í London stuttu áður en hann lést árið 2010. Hönnuðurinn hugðist endur- hanna íbúðina og hafði margoft talað um það í viðtölum hversu spenntur hann væri að flytja inn í nýju íbúðina við Dunraven-stræti í London. Hann hafði sérstakan áhuga á því breyta eldhúsinu og hlakkaði mikið til að elda gómsæt- an mat fyrir vini sína og fjölskyldu. McQueen náði ekki að fl ytja inn Draumaheimili Alexanders McQueen sem lést árið 2010 hefur verið sett á sölu. ÍBÚÐIN TIL SÖLU Íbúð fatahönnuðar- ins Alexander McQueen fæst keypt fyrir einn milljarð króna. NORDICPHOTOS/GETTY Sjálfbærni er mér ofarlega í huga og ég nýti talvert tilfallandi efni í verkin mín,“ segir Gunn- hildur Þórðardóttir listakona, sem opnar sýninguna Áframhald í Listasafni Reykjanesbæjar á morgun, fimmtudag, klukkan 18. Titillinn vísar bæði í áfram- haldandi þróun listamannsins og endurvinnslu þeirra efna sem verkin eru gerð úr. Gunnhildur kveðst sækja inn- blástur til bernskuárana í Kefla- vík, hluta tengdra sjómennsku, náttúru og mannvirkja á Reykja- nesinu. „Verkin eru litrík og hluti sýningarinnar er innsetning sem er ætluð yngri gestum safnsins,“ segir hún en sjálf á hún fjóra stráka á aldrinum sex mánaða til níu ára. Sýningin er liður í dagskrá Ljósanætur en stendur til 27. október og aðgangur er ókeypis. - gun Bernskuárin eru innblástur REGNBOGAKLETTAR Eitt verka Gunn- hildar í Listasafni Reykjanesbæjar. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Fræðslufundir 20.00 Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða fer fram í Hljóðbergi í Hannesarholti, Grundarstíg 10, í kvöld. Ásta Svavars dóttir cand. mag. í íslenskri málfræði og rannsóknardósent á Árna- stofnun flytja fyrirlesturinn Af erlendri rót. Í fyrirlestrinum verður fjallað um máltengsl, máláhrif og afleiðingar þeirra í tungumálinu. Allir velkomnir. Uppákomur 19.00 Í kvöld stendur Aarona Pichin- son, jógakennari frá New York, fyrir óvenjulegum jógatíma í Hörpu. Um er að ræða jóga með lifandi tónlist, flutta af íslenskum tónlistarmönnum. Þetta er ókeypis viðburður, tveggja tíma upplifun fyrir líkama og sál. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. OPIÐ MÁN-FÖS 9-18 | LAU 10-16 | ÁRMÚLI 40 | S: 517 4600 | WWW.MARKID.IS Birt með fyrirvara um myndbrengl og prentvillur Allir sem kaupa hjól í Markinu fá aðild að þjónustusamningi í 6-12 mán. FJALLAHJÓL - DÖMUHJÓL - GÖTUHJÓL - BARNAHJÓL - FATNAÐUR - HJÁLMAR O.FL. SÍÐUS TU KOMDU VIÐ OG GERÐU FRÁBÆR KAUP! 60% AFSLÁTTUR ALLT AÐ Ekki gleyma að leika þér Mikið úrval Innifalið í þjónustusamningi: Almenn yfirferð á hjólinu, stilling á gírum og bremsum í 6-12 mánuði 10% afsláttur af vinnu á verkstæði og hjólavörum Hámark 2 virkir dagar biðtími á verkstæði 20% afsláttur af hjálmi DAGAR NIR! Jennifer Lopez og Harry Connick Jr. koma til með að taka sæti dóm- ara í sjónvarpsseríunni sívinsælu American Idol, sem hefur göngu sína um áramótin í þrettánda sinn. Þau koma til með að taka sætin af þeim Mariah Carey og Nicki Minaj, sem hafa báðar opinberlega lýst yfir óánægju sinni með þættina. Þannig munu þau Jennifer Lopez og Harry Connick Jr. taka sér sæti við hlið Keith Urban í dómara- panelnum. Randy Jackson kemur einnig til með að snúa aftur í þætt- ina. - ósk Nýir dómarar í Idol Jennifer Lopez sest í dómarasæti í American Idol. DÓMARI Jennifer Lopez dæmir í Idolinu. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.