Fréttablaðið - 04.09.2013, Page 32

Fréttablaðið - 04.09.2013, Page 32
4. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24 BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur „Það er rosalegur sigur fyrir mig að fá svona flott og virt verðlaun, þarna er ég kominn í hóp efnilegra listamanna,“ segir myndlistar- maðurinn Davíð Örn Halldórs- son, sem hlaut nýverið hin virta Carnegie-styrk. Þetta er í ellefta sinn sem Carnegie-verðlaunin eru veitt og tóku sautján norrænir listamenn þátt í ár. Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin og að auki er veittur styrkur til yngri listamanns upp á 100.000 sænskar krónur, eða tæplega tvær milljónir íslenska króna. „Ég fékk styrkinn sem er veittur ungum og efnilegum lista- mönnum og fer í framhaldi af því til Stokkhólms á opnun sýningar- innar Carnegie Art Award 2014 í Konstakademien,“ útskýrir Davíð Örn, sem útskrifaðist úr mynd- listardeild Listaháskóla Íslands árið 2002 og hefur síðan þá haldið fjölda sýninga bæði hér heima sem og erlendis. „Sýningin í Konstakademien mun standa í eitt til tvö ár og veita mér tækifæri til þess að sýna á fleiri listasöfnum í Evrópu og eflast og opna einhverjar dyr fyrir mig í framtíðinni.“ Davíð Örn sýnir fimm verk á sýningunni og hafa þau meðal annars skírskotun til popplistar, vegglistar og listasögu. „Ég nota blandaða tækni þar sem ég mála og spreyja á viðarplötur með iðnaðar málningu og tússlitum. Þetta er ekki hefðbundin tækni en ekkert of skrítin heldur.“ Það er í nógu að snúast hjá Davíð Erni um þessar mundir, en í októ- ber tekur hann þátt í samsýningu í Artíma Gallerí í Reykjavík og síðar í Leipzig auk þess sem hann undirbýr einkasýningu í Gallerí Þoku. - áo Mun efl aust opna einhverjar dyr Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson hlýtur hinn virta Carnegie-styrk í ár. HLÝTUR VIRT VERÐLAUN Listamaðurinn Davíð Örn Halldórsson hlaut hinn virta Carnegie-styrk í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS HROSS Í OSS KL. 6 - 8 2 GUNS KL. 6 / ELYSIUM KL. 8 - 10 KICKASS 2 KL. 10 -H.G., MBL -V.G., DV -T.V. - BÍÓVEFURINN.IS / SÉÐ & HEYRT “SPARKAR FAST Í MEIRIHLUTANN Á AFÞREYINGARMYNDUM SUMARSINS. FÍLAÐI HANA Í BOTN.” „ÆSISPENNANDI!“ - ENTERTAINMENT WEEKLY ÖRLÖG HEIMSINS ERU Í HANS HÖNDUM ELYSIUM KL. 5.30 - 8 - 10.25 ELYSIUM LÚXUS KL. 8 - 10.25 HROSS Í OSS KL. 6 FLUGVÉLAR 2D / 3D ÍSL TAL KL 3.20 KICK ASS 2 KL. 8 - 10.20 PERCY JACKSON KL. 3.20 - 8 2 GUNS KL. 5.30 - 8 - 10.30 2 GUNS LÚXUS KL. 5.30 STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 3.20 - 5.40 GROWN UPS KL. 10.20 HROSS Í OSS KL. 6 - 8 - 10 ELYSIUM KL. 5.30 - 8 - 10.25 PERCY JACKSON KL. 5.40 - 8 2 GUNS KL. 8 - 10.30 STRUMPARNIR 2D ÍSL TAL KL. 5.40 WAY WAY BACK KL. 10.20 Miðasala á: og „HROSS Í OSS ER AFAR FRUMLEG OG ÁHUGAVERÐ MYND“ -H.S., MBL EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI AKUREYRI KEFLAVÍK VARIETY ROGER EBERT COSMOPOLITAN JULIANN GAREY / MARIE CLAIRE SCOTT MANTZ / ACCESS HOLLYWOOD NEW YORK TIMES SAN FRANCISCO CHRONICLE ELYSIUM 5.30, 8, 10.40(P) KICK ASS 2 8, 10.30 2 GUNS 10.30 STRUMPARNIR 2 5.30 2D PERCY JACKSON 5.30 T.V. - Bíóvefurinn -H.G., MBL 5% „Það eru þrjú stopp í túrnum. Höfn í kvöld, Egilsstaðir á morgun og Akureyri á föstudag,“ segir uppi- standarinn og listamaðurinn Hug- leikur Dagsson, sem hefur uppi- standstúr sinn á Höfn í Hornafirði í kvöld. Sýningin ber titilinn Djókaín og á meðal umfjöllunarefna Hugleiks eru klámvæðingin, íslenska tungu- málið, barneignir og hákarlar. „Þetta er hálfgerð „best of“ sýn- ing. Ég fer með efni alveg frá því ég byrjaði í uppistandi. Sýningin er um sjötíu mínútur að lengd, nema ég sé æstur og tali hratt, þá gæti hún verið styttri.“ Aðspurður segir hann ekki erfitt að standa einn á sviði í svo langan tíma. „Þegar fyrsti hláturinn heyr- ist verður maður nokkuð öruggur og vill helst ekkert fara af sviðinu. En svo er maður aldrei betri en salur- inn, ef hann er ekki í stuði dett ég ekki í stuð. Þetta er svolítið eins og samtal, nema að það er bara ég sem má tala,“ segir hann að lokum. - sm Uppistandstúrinn hefst á Höfn Hugleikur Dagsson er á uppistandsferð um landið. DJÓKAÍN Hugleikur Dagsson hefur uppistandstúr sinn um landið á Höfn í Hornafirði í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Árvökulir vegfarendur og löghlýðnir birta stundum myndir á Facebook þegar þeim ofbýður yfirgangur annarra. Appelsínugulur jeppi komst til dæmis í fréttir eftir að það náðist mynd af jepp- anum í tveimur stæðum. Eigandinn þekktist af skráningarnúmerinu, sem birt var með. Ég rek oft augun í svona myndir og satt að segja spekúlera ég ekki mikið í þeim, þannig. Það fer svo sem eftir því hvoru megin ég fór fram úr þann morguninn, ég viðurkenni það. Dagsformið er mis- jafnt og suma daga er vel hægt að láta svona hluti fara í taugarnar á sér. Svona rífleg bílastæðanotkun er enda hvimleið og tillitsleysi við næsta mann. ÉG gat þó ekki annað en furð- að mig á því hversu oft sá app- elsínuguli náðist á mynd. Var þetta alltaf sami myndasmið- urinn? Vænisýkin náði tökum á mér og ég sá fyrir mér að flokkur fólks væri á ferðinni um bæinn, sem sjálfskipaðir löggæslumenn götunnar með myndavélarnar á lofti, eltandi uppi leppa- lúða sem höguðu sér eins og fífl. FÓLK er fífl og ég líka. Ég hafði því varann á mér, dauðs lifandi fegin að vera ekki á bílnum þennan dag. Varla væri hægt að hanka mig á fæti. Kófsvitnaði þegar ég gleymdi mér svo og hljóp yfir götu án þess að þar lægi gangbraut. Skimaði í kringum mig eftir snjallsíma á lofti og flassblossa. Ég gat ekki vitað hvar hinir sjálfskipuðu drægju mörkin. Þetta var meira að segja í nánd við barnaskóla! ÉG stytti mér hugsunarlaust leið yfir grasflöt þó að malbikaður göngustígur lægi við hliðina á mér og bætti þar með gráu ofan á svart. Ég þorði ekki að líta upp og gekk því í veg fyrir hjólreiðamann sem nauðhemlaði, var hann með mynda- vél? ÉG hljóp við fót, rak mig utan í en gaf mér ekki tíma til að stoppa. Hélt áfram að hlaupa og dró hettuna upp fyrir haus. Ef hinir sjálfskipuðu næðu af mér mynd ætlaði ég ekki að þekkjast. Á fl ótta undan fl assblossum Tískuveldið Calvin Klein vildi fá fótboltastjörnuna David Beckham til þess að sitja fyrir í nýjustu nærfataherferð fyrirtækisins. Því varð ekki að ósk sinni í þetta sinn, þar sem umboðsmenn Beckhams töldu hann vera of frægan fyrir hlutverkið. Í stað Beckhams fékk fótboltastjarnan Freddie Ljung- berg, sem spilaði fyrir Arsenal á sínum, tíma hlutverkið. Ljungberg fetar þarna í fótspor leikarans Mark Wahlberg, sem vakti mikla lukku sem Calvin Klein-fyrirsæta á síðasta ári. Of frægur fyrir Calvin Klein OF FRÆGUR David Beckham þykir of frægur fyrir fyrirsætustörf. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.