Fréttablaðið - 05.11.2013, Síða 2

Fréttablaðið - 05.11.2013, Síða 2
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 „Ég skor- aðist hvergi undan því að ræða erfið mál þegar skrásetjari vildi að við tækjum þau fyrir. Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi fjármálaráðherra ÍTALÍA Listflugdeild ítalska flughersins gladdi almenning í Róm með því að bregða upp fánalitunum á flugi sínu yfir höfuðborgina. „Dagur þjóðeiningar og heraflans“ er haldinn hátíðlegur 4. nóvem- ber ár hvert þar sem haldið er upp á uppgjöf Austurríkis árið 1918, en með því lauk hernaðarþátttöku Ítala í fyrri heimsstyrjöldinni. Ítalía var að nafninu til í bandalagi með Þýskalandi og Austurríki-Ungverja- landi í upphafi stríðsins, en árið 1915 lagði landið til atlögu við Austur- ríki eftir leynisamninga við Breta og Frakka. - þj Ítalskar herþotur teiknuðu fánalitina á hátíðardegi í gær: Minntust loka heimsstyrjaldar ÞRÍLITUR ÞOTUREYKUR Ítalski flugherinn lék listir sínar á hátíðardeginum í gær. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL „Þegar ég sá blaðið þennan morgun hafði ég strax áhyggjur og reyndi að hringja í Ögmund.“ Þetta segir Steingrím- ur J. Sigfússon, fyrrverandi fjár- málaráðherra, í bók sinni „Stein- grímur J – Frá hruni og heim“ um viðbrögð sín við forsíðu Fréttablaðsins þann 30. septem- ber 2009. Ögmundur Jónasson, sem þá var heilbrigðisráðherra, sagði af sér ráðherraembætti þann sama dag. Í forsíðufréttinni kom fram það mat Jóhönnu Sigurðardóttur að stjórnarsamstarfinu væri sjálf- hætt næðist ekki samstaða um Icesave á næstu dögum. „Yfir- lýsingar forsætisráðherra fara ekki fram hjá mér,“ var haft eftir Ögmundi Jónassyni heilbrigðis- ráðherra í sömu frétt. Um leið og Steingrímur sá fréttina á forsíðu Fréttablaðsins reyndi hann að hringja í Ögmund. Aldrei þessu vant hafi hann ekki tekið síma en upp úr tíu hafi hann fengið skilaboð um að Ögmundur væri á leiðinni niður í ráðuneyti til að hitta hann. Steingrímur segir að Ögmundi hafi ekki verið haggað. „Ég skil ekki enn hvers vegna hann sagði af sér,“ segir Stein- grímur í bókinni sem Björn Þór Sigbjörnsson skrásetti. Greint er frá því að Steingrímur hafi hringt í Jóhönnu og sagt henni hvað hún ætti í vændum. Að sögn Steingríms kom á Jóhönnu. Hann bað hana um að fallast ekki á afsagnarbeiðnina sem hún hefði því miður gert. Hún hefði sagt Steingrími eftir á að hún hefði ekki náð neinni rökræðu við Ögmund. Hann hefði auk þess verið búinn að boða blaðamenn til fundar við sig og þeir beðið eftir honum úti á tröppum. Þar hefði hann tilkynnt um afsögn sína. Spurður um tilefni bókarskrif- anna segir Steingrímur að hann hafi fengið fjölda fyrirspurna og áskorana um að segja frá bar- áttunni við að reyna að koma í veg fyrir að Ísland færi á haus- inn. Hann hafi meðal annars verið beðinn um að halda fyrir- lestra, einkum erlendis, um glím- una við endurreisn Íslands. „Ég ákvað að slá til þar sem maður var þar sem eldarnir brunnu sem heitast á þessum árum. Sumt lifir með okkur næstu árin og það ýtti frekar á að gera þetta fyrr en seinna.“ Steingrímur kveðst hafa viljað draga upp stóru myndina, eins og hann orðar það. „Ég skoraðist hvergi undan því að ræða erfið mál þegar skrásetjari vildi að við tækjum þau fyrir.“ Hann segist í þeim tilfellum hvorki hafa hlíft sjálfum sér né öðrum. ibs@frettabladid.is Áhyggjufullur þegar hann sá forsíðufrétt Ögmundur Jónasson kom æstur til Steingríms J. Sigfússonar sama dag og Frétta- blaðið birti frétt um möguleg slit stjórnarsamstarfs. Í bók sinni kveðst Steingrímur hafa beðið forsætisráðherra um að fallast ekki á afsagnarbeiðni Ögmundar. „Svo kom hann og var mjög æstur og tilkynnti mér að hann væri að fara til Jóhönnu að segja af sér. Ég sagði að hann gæti það ekki, menn segðu ekki af sér ráðherradómi upp úr þurru, hann hefði ekki rætt þetta í þing- flokknum eða neitt en hann sagðist vera búinn að ákveða sig. Við töluðum saman í tuttugu mínútur og það lá við að ég færi á hnén en honum varð ekki haggað. Við kvöddumst svo í góðu, tókum utan um hvor annan og hann hafði einhver orð um að þetta myndi ekki þýða vinslit milli okkar en hann yrði að gera þetta.“ Úr bók Steingríms J. Sigfússonar KÖNNUN Rúmlega tveir af hverjum þremur landsmönnum, 67,4 prósent, hafa miklar áhyggjur af verðbólg- unni, samkvæmt könnun Capacent fyrir Samtök atvinnulífsins (SA). Í frétt SA segir að aðeins 10,5 prósent hafi litlar áhyggjur af verðbólgunni en 22 prósent segja að verðbólgan valdi þeim hvorki miklum né litlum áhyggjum. Þá vilji 44,9 prósent að mest áhersla verði lögð á að stuðla að lágri verðbólgu í komandi kjara- samningum, en 29 prósent vilja mesta áherslu á verulegar launa- hækkanir. - bj Verðbólga veldur áhyggjum: Tveir þriðju eru áhyggjufullir FORSÍÐUFRÉTTIN Þessi forsíðufrétt þann 30. september 2009 olli Steingrími J. Sigfússyni áhyggjum. Sími: 512 500 0 MEST LESNA DAGBLAÐ Á Í SLANDI MIÐVIKUDAG UR30. sep tember 2009 — 231. tölubl að — 9. árgan gur HANDAVINN A Hannyrðir, h önnun og námskeið í le irkeragerð Sérblað um ha ndavinnu FYLGIR FRÉT TABLAÐINU Í DAG handavinna MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 Miðlar af reynslunni Inga Hrönn Guðmundsdóttir heldur garnkynningar í heima húsum. BLS. 2 Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Björk Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Reykjavík Back- packers, fer ekki troðnar slóðir þegar kemur að ferðalögum. Hún hefur komið til Kúbu, Nepal og Hondúras og er á leið til Kína innan skamms. Hún féllst á að deila ferðasögunni til Nepal með lesendum Fréttablaðsins enda er hún henni enn í fersku minni. „Ég fór með kærastanum mínum Torfa G. Yngvasyni, sem er annar eigenda Arctic Rafting, árið 2007 og dvöldum við í Nepal í fimm vikur. Við byrjuðum á því að ganga Annapurna-hringinn sem var þriggja vikna leiðangur og fórum u í upp á gistingu eins og alla jafna á áningarstöðum heldur einnig afþreyingu og fóru skötuhjúin í bíó þarna í hæstu hæðum. „Við sátum á loðfeldum í sal búnum stóru sjón- varpi og horfðum á myndina Into Thin Air sem er um eitt frægasta fjallgönguslys á Everest. Það var frekar sérstakt, eigandi stóran hluta ferðarinnar eftir,“ lýsir Björk. „Þegar við vorum komin í um 4.900 metra hæð urðum við vitni að undarlegu atviki. Þá hljóp maður á fullri ferð fram úr okkur og skildum við ekkert í kraftin- um þar sem við sil ð Þ maður sem hafði líka þjáðst af hæðarveiki en fengið lélega farar- stjórn.“ Að fjallgöngunni lokinni hittu Björk og Torfi félaga sína í Kat- mandú og lögðu af stað í sjö daga flúðasiglingu niður ána Karnali. „Þessi á er sjaldan farin enda í 240 kílómetra fjarlægð frá næsta vegi. Við vorum með allar vistir í bátunum og settum upp búðir með- fram árbakkanum á hverju kvöldi. Þetta vakti mikla athygli heima- manna, sem eru ekki va i að sjá f Fjöll og flúðir í Nepal Á fimm vikna ferð sinni um Nepal fór Björk Kristjánsdóttir í þriggja vikna fjallgöngu, sjö daga flúðasigl- ingu og á fílsbak í frumskógi. Hún hefur farið víða en Nepalferðin líður henni seint úr minni. FERÐAFÉLAGIÐ ÚTIVIST stendur fyrir gönguferð frá Bláfjöllum niður að Litlu Kaffistofunni sunnudaginn 4. október. Haldið verður frá skíðaskálunum, arkað meðfram Bláfjöllum að austanverðu í gegnum Ólafsskarð niður í Jósepsdal og að Litlu Kaffistofunni. Gangan tekur um sjö til átta klukkustundir. Brottför frá BSÍ klukkan 9.30. www.utivist.is Björk á hápunkti ferðarinnar í 5.416 metra hæð. MYND/ÚR EINKASAFNI Meðal námsefnis: • Mannleg samskipti. • Helstu áfangastaðir erlendis í máli og myndum. • Mismunandi trúarbrögð. • Saga landsins, menning og listir. • Frumbyggjar og saga staðarins. • Þjóðlegir siðir og hefðir. • Leiðsögutækni og ræðumennska. Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan. Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra í leiðsögn á erlendri grund. Ferðamálaskóli Íslands • www.menntun.is • Sími 567 1466 Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson fararstjóri, Pétur Björnsson Consúll, Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður , Höskuldur Frímannsson leiðsögumaður, Sigurður A. Magnússon rithöfundur, Magnús Björnsson fararstjóri, Pétur Óli Pétursson fararstjóri, Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðikennari, Sr. Bjarni Karlsson sóknarprestur, Ómar Valdimarsson blaðamaður. Opið 8-22 Geðsjúkir styrktir Forvarna- og fræðslusjóðurin n Þú getur! veitir fyrstu styrkina. TÍMAMÓT 14 verndar viðkv æma húð Leynist þvottavél frá í þínum pakka? BJÖRK KRIST JÁNSDÓTTIR Fór í fjallgön gu og flúðasiglingu í Nepal • á ferðinni Í MIÐJ U BLAÐSINS Ritskoðuð útgáfa á RÚV Sjónvarpið sýnir ritskoðaða útgáf u af dönsku þáttunu m Forbryd elsen ef tir áramót. FÓLK 18 Stefnir í sögule ga kvikmyndasýni ngu Helgi Felixson b ýður útrásarvík- ingum og alþing ismönnum í bíó . FÓLK 22 Snæbjörn Stei ngrímsson: Smáís mætir ið r STJÓRNMÁL Náist ekki samstaða um lyktir Ic esave-málsi ns innan ríkisstjórna rflokkanna í vikunni er ríkisstjór narsamstarf inu sjálf- hætt. Þetta er mat Jóhö nnu Sig- urðardóttur , sem hefur m isst alla þolinmæði vegna máls ins, sam- kvæmt heim ildum Frétt ablaðs- ins. Jóhanna og aðrir stjórn arliðar telja sig ekk i lengur get a treyst á stuðning neinna þin gmanna stjórnarand stöðunnar í málinu og því þurf i stjórnarfl okkarnir að hafa þing meirihluta. Líf stjórna rinnar velt ur því aftur á afstö ðu Ögmunda r Jónas- sonar og sa mherja han s innan Vinstri græ nna, sem lý st hafa miklum efa semdum um málið, líkt og það g erði þegar m álið kom til kasta Alþ ingis í suma r. Þing- flokkar stjó rnarflokkan na munu hittast á fun dum í dag o g freista þess að leysa málið í sátt. Þá gæti einnig kom ið til aukaf undar í ríkis stjórn í dag. Eins og kun nugt er haf a Hol- lendingar o g Bretar ek ki getað fellt sig að f ullu við þá f yrirvara sem Alþingi samþykkti við ríkis- ábyrgð veg na Icesave- lánsins í sumar. Þeir vilja meða l annars að ábyrgðin gildi lengu r en til 2024, ólíkt því sem kv eðið er á um í fyrirvö rum Alþing is. J ó h a n n a s a g ð i e f t i r ríkisstjórna r fund í gær að áður en ákveðið yrði hvort Icesave- samningarn ir færu aft ur fyrir Alþingi þyrf ti að vera ljó st hvort ríkisstjórn in hefði m eirihluta fyrir málin u í þinginu. Það yrði að fást á hr eint í vikun ni. Spurð hvort stjórn in mundi fa lla næð- ist ekki sam staða sagði h ún að þá yrði að skoð a stöðuna up p á nýtt. Ekki fór á m illi mála að þ ar beindi hún spjótum sínum að Ö gmundi og öðrum ef asemdar mö nnum um Icesave-mál ið innan VG . „Yfirlýsinga r forsætisrá ðherra fara ekki f ramhjá mé r,“ sagði Ögmundur J ónasson í sa mtali við Fréttablaði ð í gærkvöl di. Hann vildi að öðr u leyti lítið segja um málið, en tók þó fram að Icesave- málið væri enn óútkljáð og ljóst væri að það þyrfti að ko ma aftur fyrir þingið . Steingrímur J. Sigfússo n fjár- málaráðher ra mun hitt a breska og hollensk a kollega sí na á árs- fundi Alþjó ðagjaldeyri ssjóðsins í Istanbúl e ftir helgi. Þ ar mun hann reyna að ná end anlegri niður stöðu í málið, lík ast til í formi viðau ka við samn ingana. Óformlegar viðræður um lausn málsins haf a staðið yfir við Hol- lendinga og Breta síðu stu daga og vikur. Sa mkvæmt he imildum Fréttablaðs ins liggur n ú þegar nokkuð ljós t fyrir hver su langt þeir eru tilb únir að teyg ja sig í átt að kröfu m Alþingis. - sh, kh, kóp Stjórnin fell ur ef ekki næ st samstaða um Icesave-mál ið Jóhanna Sig urðardóttir t elur ríkisstjó rnina fallna hafi stjórna rflokkarnir ekki meirihl uta á Alþing i fyrir lyktum Icesa ve-málsins. „ Yfirlýsingar forsætisráðh erra fara ekk i framhjá mé r,“ segir Ögm undur Jónas son. INDLAND, AP Indverska geimferða- miðstöðin í kynnti í gær áform um að senda geimfar til Mars. Geimfarinu verður skotið upp í dag og tekur ferðin þrjú hundr- uð daga. Farið verður umhverf- is reikistjörnuna og andrúmsloft hennar og jarðfræði könnuð. Til þessa hafa Bandaríkjamenn, Rússar og Evrópusambandið sent geimfar til Mars, en engum þeirra tókst þó að ná árangri í fyrstu til- raun. Meira en helmingurinn af til- raunum jarðarbúa til að senda far til Mars hefur mistekist, eða 23 af 40 tilraunum. Japanar gerðu mis- heppnaða tilraun árið 2009 og Kín- verjar árið 2011. Takist Indverjum ætlunarverk sitt bætist flaug þeirra, sem heitir Mangalyaan, við flaugar frá Banda- ríkjunum, Rússlandi og Evrópusam- bandinu, sem nú þegar eru á braut umhverfis Mars. - gb Indverjar kynna metnaðarfulla áætlun um geimferðir á næstu árum: Senda geimfar umhverfis mars TILBÚIÐ UNDIR GEIMSKOT Geimfarið á skotpalli á eyjunni Shriharikota út af suðausturströnd Indlands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BJÖRGUN Allt kapp er lagt á að afstýra umhverfisslysi við Reykja- nesskaga þar sem varðskipið Þór er nú með flutningaskipið Fernöndu í togi. Litlar líkur eru á að Fernanda sökkvi í sæ að mati Landhelgis- gæslunnar. Varðskipið Þór hefur haft flutningaskipið Fernöndu í togi við Reykjanesskaga frá því að skip- ið var flutt alelda úr Hafnarfjarð- arhöfn á föstudaginn. Slökkviliðs- menn fóru um borð í skipið gær og sáu þar að járn var sveigt og bogið, slíkur var hitinn í Fernöndu. Kvoðu var sprautað í vélarúm og neðri þil- för skipsins til að tryggja að eldur- inn væri dauður. Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram- kvæmdastjóri aðgerða hjá Land- helgisgæslunni, segir mikilvægt að tryggja að engin glóð leynist í skipinu. En er engin hætta á að skipið bein- línis sökkvi við Reykjanesskaga? „Skipherra og hans menn eru sannfærðir um að litlar líkur séu á því. Skipið flýtur vel og lætur vel í sjónum,“ segir Ásgrímur - ao Járn beygt og bogið í Fernöndu sem verið hefur í togi við Reykjanesskaga: Verulega löskuð eftir brunann FERNANDA ILLA FARIN Eins og sjá má sér verulega á Fernöndu eftir atburði undanfarinna daga. MYND/STÖÐ2 SÝRLAND, AP Sýrlensk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau muni sjá til þess, með samvinnu við hjálp- arstofnanir, að öll börn í landinu verði bólusett gegn mænuveiki. Í síðustu viku kom í ljós að tíu börn höfðu smitast af mænusótt í norðausturhluta landsins, þar sem átök hafa verið hörð og íbúar hafa víða einangrast. Hálf milljón barna í landinu hefur ekki verið bólusett vegna átakanna. - gb Sýrlendingar bregðast við: Ætla að bólu- setja öll börn BANDARÍKIN, AP Bandaríska heil- brigðisvísindastofnunin IMAP gagnrýnir harðlega bandaríska lækna, sem tóku þátt í að þróa pyntingaraðferðir fyrir varnar- málaráðuneytið og leyniþjón- ustuna CIA. Læknarnir eru einnig gagn- rýndir fyrir að hafa tekið þátt í að neyða fæðu ofan í fanga í hungurverkfalli. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá stofnuninni, en þar er í fyrsta sinn farið ofan í aðild lækna að pyntingum á grunuðum hryðjuverkamönnum. - gb Harðorð bandarísk skýrsla: Læknar tóku þátt í að pynta Guðmundur, er þér þá ekkert gefið um pólfarir? „Ég er meira fyrir bólferðir. “ Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar Framtíðar, sló út af borðinu hug- myndir um sameiginlegt framboð með vinstri flokkum í Reykjavík. Slíkt væri dæmi um tvípólapólitík. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.