Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 05.11.2013, Qupperneq 6
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hver er nýr prestur í Staðarpresta- kalli á Snæfellsnesi? 2. Númer hvað er sýning Borgarleik- hússins á Mary Poppins 10. nóvem- ber? 3. Hvað heitir yfi rhönnuður dömulínu Calvins Klein? SVÖR 1. Sr. Páll Ágúst Ólafsson. 2. Sýning númer 100. 3. Fransisco Costa. VIÐSKIPTI Vodafone (Fjarskipti hf.) hefur stefnt Símanum til greiðslu skaðabóta vegna samkeppnislaga- brota á árunum 2001 til 2007. Sím- anum hefur verið birt stefnan og málið, samkvæmt heimildum blaðs- ins, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á allra næstu dögum. Vodafone segir brot Símans hafa falist í ofrukkun á svonefndum lúkn- ingargjöldum. „Ofgreiðslur Voda- fone vegna þessa námu 913 millj- ónum króna á tímabilinu og krefst félagið þess að fá þá upphæð endur- greidda auk vaxta,“ segir í tilkynn- ingu félagsins til Kauphallar. Skaða- bótavextir samkvæmt ákvörðun Seðlabankans eru 4,5 prósent, End- anleg bótaupphæð gæti því orðið um 1,2 til 1,5 milljarðar króna. Vodafone segir að með fyrri úrskurðum samkeppnisyfirvalda og sátt Símans og Samkeppnis- eftirlitsins um lok mála frá því í mars á þessu ári felist viðurkenn- ing Símans á að hafa beitt Voda- fone ólögmætum verðþrýstingi. Gunnhild- ur Arna Gunn- arsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Símans, bendir á að hluti af sátt Símans við Sam- keppniseftirlitið hafi verið að Síminn félli frá þeim dómsmálum sem félagið hafði höfð- að. „Í því felst engin viðurkenning á brotum líkt og ranglega er haldið fram af Vodafone,“ segir hún. Þá segir hún kröfu Vodafone ekki byggða á réttum grundvelli. „Að mati samkeppnisyfirvalda fólst verðþrýstingur í því að of lít- ill munur væri á smásöluverði og heildsöluverði en ekki því að heild- söluverðið væri of hátt. Mikilvægt er í þessu sambandi að lúkningar- verðið á tímabilinu var samþykkt og ákveðið af Póst- og fjarskipta- stofnun.“ Eins gildi tíu ára fyrning- arregla og því geti Vodafone ekki gert kröfu vegna atburða sem áttu sér stað fyrir októberlok 2003. Við þetta lækki krafan um nálægt 200 milljónir króna. „Þá er rétt að halda því til haga að Síminn greiddi Voda- fone umtalsvert hærri upphæðir en Vodafone greiddi Símanum á því tímabili sem um ræðir. Sá mismun- ur nemur yfir tveimur milljörðum króna. Þannig að við skiljum ekki hvað Vodafone er að fara,“ bætir Gunnhildur Arna við. „Fari hins vegar svo ólíklega að dómstólar taki undir sjónarmið Vodafone mun Sím- inn að sjálfsögðu gera sambærilega kröfu á hendur Vodafone vegna ein- okunarstöðu Vodafone í eigin kerfi. Sú krafa myndi að lágmarki nema yfir einum milljarði króna auk vaxta.“ olikr@frettabladid.is GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR SLÁST FYRIR DÓMI Vodafone krefur Símann um bætur vegna samkeppnisbrota Símans 2001 til 2007. Fátítt er að fórnarlömb samkeppnisbrota krefjist bóta. Þó eru dæmi um slíkt vegna samráðs olíufélaga. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND Vilja fá 913 milljónir auk vaxta vegna brota Vodafone vill að Síminn endurgreiði oftekin lúkningargjöld á árunum 2001 til 2007. Bótakrafa með vöxtum gæti farið yfir einn og hálfan milljarð króna. Síminn, sem tekur til varna, er sagður hafa játað sök með sátt við Samkeppniseftirlitið. Lúkningargjöld eru gjöld sem fjarskiptafyrirtæki innheimta fyrir símtöl sem send eru inn í fjarskiptakerfi þeirra, og er lokið þar, en eiga uppruna sinn í kerfum annarra fjarskiptafyrirtækja. Ef til dæmis viðskiptavinur Vodafone hringir í viðskiptavin Símans þá innheimtir Síminn lúkningar- gjöld af Vodafone fyrir að ljúka símtalinu í fjarskiptakerfi sínu. Hvað eru lúkningargjöld? NOREGUR Norðmaður á sextugs- aldri var í tvígang um síðustu helgi staðinn að smygli á jógúrti og kjúklingi frá Svíþjóð. Aftenposten segir manninn hafa verið tekinn á laugardag með 800 jógúrtdósir, fimmtán kíló af kjúkl- ingi, tólf kíló af kjúklingavængj- um og tólf kíló af mjólkurdufti. Á sunnudag var hann svo með svipað magn af jógúrti og kjúklingi og deginum áður og 800 djúsfernur að auki. Talið er að andvirði varanna sé um hálf milljón króna, fjórfalt meira en leyft er að hafa með sér yfir landamærin. Maðurinn er tal- inn hafa ætlað að selja vörunar í Noregi, en þrætir fyrir það. - þj Bífræfinn brotamaður: Jógúrtsmyglari tekinn tvisvar SVÍÞJÓÐ Hálffimmtugur Svíi, sem hótaði að dreifa nektarmyndum af þrettán ára stúlku á netinu ,var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjölda kynferðisbrota á net- inu. Stúlkan svipti sig lífi en ekki var hægt að ákæra manninn fyrir dauða hennar. Maðurinn fékk einnig aðra stúlku til að stilla sér upp fyrir framan vefmyndavél og hótaði henni einnig. Hann hafði í tutt- ugu önnur skipti reynt að fá fleiri stúlkur á aldrinum 11 til 14 ára til hins sama en þær neituðu. Hinn dæmdi sagði að einhver annar hefði fjarstýrt tölvu hans. - ibs Dómstóll í Svíþjóð: Netníðingur fer í fangelsi í tvö ár SMYGL Maður smyglaði jógúrti inn í Noreg frá Svíþjóð. MYND/TOLLVESENET SÁDI-ARABÍU, AP Saud al-Faisal, utanríkisráðherra Sádi-Arab- íu, fullvissaði John Kerry, hinn bandaríska starfsbróður sinn, um að vinátta þjóðanna væri ekki í hættu, þrátt fyrir erfitt ástand í Sýrlandi, Íran og Palestínu. „Hér er ekkert rúm fyrir tilfinn- ingasemi og reiði, heldur frekar fyrir stefnu skynseminnar og yfir- vegunar,“ sagði al-Faisal þegar hann tók á móti Kerry í Ríad í gær. Kerry sagði fyrir sitt leyti að samskipti ríkjanna hafi verið „djúpstæð“ og þau hefðu nú staðið yfir í 75 ár og muni áfram vera góð. - gb John Kerry í Sádi-Arabíu: Vináttutengslin tryggð áfram SAMSTARF Liðsmenn skákfélag- anna Hróksins og Kalak hittu Alequ Hammond, forsætisráð- herra Grænlands í gær og færðu henni við það tækifæri selskinn frá Árneshreppi á Ströndum að gjöf sem þakklætisvott fyrir dyggan stuðning við starf félag- anna á Grænlandi og vináttu við íslendinga. Að sögn Hrafns Jök- ulssonar bar margt bar á góma á fundinum. Aleqa, sem fylgist vel með starfi Hróksins og Kalak, lét í ljós mikið þakklæti og sagði skákina frábæra aðferð við að efla tengsl Íslands og Grænlands. -jme Forsætisráðherra Grænlands Fékk íslenskt skinn að gjöf JOHN KERRY OG SAUD AL-FAISAL Láta ekki erfiðleika í Miðausturlöndum trufla vináttuna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Talsverður fjöldi af tilhæfulausum kærum sem aldrei voru líkur á að myndu leiða til sak- fellingar hafa tafið fyrir starfs- mönnum embættis sérstaks sak- sóknara frá hruni, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. „Þetta geta til dæmis verið kærur þar sem töluvert vantar inn í sög- una hjá kæranda, eða að viðkom- andi háttsemi hafi verið kærð áður til lögreglu, og fengið þar málalykt- ir,“ segir Ólafur. „Við höfum ekki tekið saman sér- staka tölfræði um þetta, en þetta kemur alltaf af og til upp,“ segir Ólafur. Hann segir engar einhlítar skýr- ingar á því hvers vegna fólk leggi fram kærur þar sem því megi vera ljóst að þær muni ekki leiða til sak- fellingar. „Það virðist vera að einhverjir telji hanga í loftinu að það sé veiði- leyfi á fjármálastofnanir í þessu umhverfi. Það gerir það kannski að verkum að fólk leitar til yfirvalda á nýjan leik og vonar að nú verði tekið öðruvísi á málinu. En auðvit- að er fyrri niðurstaðan bindandi,“ segir Ólafur. Hann segir þessi mál geta tekið töluverðan tíma fyrir starfsmenn embættisins, enda þurfi alltaf að skoða málin og í besta falli rök- styðja niðurfellingu. Ekki hafi verið tekið saman hver kostnaður emb- ættisins hefur verið. Af þeim hátt í 600 málum sem embættið hefur fjallað um hafa 247 verið felld niður. Ólafur segir til- hæfulausu kærurnar ekki stóran hluta af þessum fjölda. „En þær eru ekki lítið brot, þær telja nokk- uð, þessar kærur.“ - bj Sérstakur saksóknari segir talsverðan fjölda af tilhæfulausum kærum hafa tafið vinnu hjá embættinu: Telja opið veiðileyfi á fjármálastofnanir FYRIR DÓM Aðeins hluti mála, sem rannsökuð eru hjá sérstökum saksókn- ara, endar fyrir dómi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.