Fréttablaðið - 05.11.2013, Page 12

Fréttablaðið - 05.11.2013, Page 12
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12 EGYPTALAND, AP Múhameð Morsí, sem var settur af sem forseti Egyptalands í júlí, sagði fyrir dómi í gær að hann væri réttkjör- inn leiðtogi landsins og að dómur- inn hefði enga lögsögu yfir sér. Réttarhaldinu var frestað fram í janúar eftir háreysti í réttar- salnum, en Morsí neitaði meðal annars að klæðast fangabúningi og hann og aðrir sakborningar gerðu hróp að dómurum. Morsí var settur af með her- valdi og er nú ákærður fyrir að hvetja til ofbeldis og morða á að minnsta kosti tíu mótmælendum fyrir utan forsetahöllina í des- ember í fyrra. Hann og fjórtán aðrir framámenn í Bræðralagi múslima eiga yfir höfði sér lífs- tíðarfangelsi eða jafnvel dauða- dóma. Eftir að réttarhaldinu var frestað var Morsí fluttur aftur í varðhald, en talið er að honum sé haldið í fangelsi í eyðimörkinni skammt frá Alexandríu. Mikil öryggisgæsla var við réttarhöldin sem haldin voru í húsnæði lögregluskóla í Kaíró, þar sem réttarhöldin yfir Hosní Múbarak fóru einnig fram. Mikil spenna hefur ríkt í Egyptalandi þar sem stuðnings- menn Morsís og Bræðralagsins hafa mótmælt bráðabirgðastjórn- inni, sem situr í skjóli hersins. Á meðan leggjast yfirvöld af full- um þunga á Bræðralagið og hafa handtekið tugi forystumanna og bannað starfsemi þess. - þj Múhameð Morsí, fyrrverandi forseti Egyptalands, var leiddur fyrir dóm í gær eftir langt varðhald: Sagði dómstól enga lögsögu hafa yfir sér STYÐJA MORSÍ Forsetinn fyrrverandi á stóran hóp stuðningsmanna sem lét skoðun sína í ljós í gær. Þeirra á meðal var þessi maður sem var með grímu með andliti Morsí. NORDICPHOTOS/AFP NOREGUR Brúðkaupsveisla ein sem haldin var í Ósló um helgina fór aldeilis úr böndunum að því er fram kemur á vef Dagbladet. Þegar nokkuð var liðið á veisl- una vatt kona ein úr hópi gestanna sér að brúðinni og veittist að henni með höggum í andlitið. Varð uppi fótur og fit en viðskiptum þeirra tveggja lauk með því að árásarkon- an var flutt á sjúkrahús. Meiðsli hennar reyndust þó óveruleg og fékk hún að fara heim að lokinni skoðun. - þj Brúðkaupsgestur í Noregi: Tapaði slagnum gegn brúðinni HLUTHAFAFUNDUR Dagskrá 1. Tillaga um staðfestingu á samruna við Laugafisk ehf. Stjórn HB Granda hf. leggur til að hluthafafundurinn staðfesti með vísan til 124. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995 samruna Laugafisks ehf. við félagið samkvæmt samrunaáætlun félaganna, dags. 22. ágúst 2013, sem auglýst var í Lögbirtingablaðinu 9. október 2013. Samruninn miðast við 1. júlí 2013 og tekur HB Grandi hf. við öllum rekstri, eignum og skuldum, réttindum og skyldum félagsins í samræmi við samrunaáætlun. Til að mæta samruna félag- anna verður hlutafé félagsins aukið um kr. 15.625.000 og er skiptihlutfall hlutabréfanna 16 þannig að hver hluthafi í Laugafiski ehf. fær 1 hlut í HB Granda hf. fyrir 16 hluti í Laugafiski ehf. 2. Tillaga um hlutafjárhækkun vegna kaupa á öllum hlutum í Vigni G. Jónssyni hf. Stjórn HB Granda hf. leggur til að hluthafafundurinn samþykki að hækka hlutafé félagsins um kr. 100.000.000 á síðasta sölugengi First North, 16,2. Verði hinu nýja hlutafé öllu varið til að kaupa alla hluti í Vigni G. Jónssyni hf. Hluthafar Vignis G. Jónssonar hf. geta einir skrifað sig fyrir hinum nýju hlutum. Þannig fylgir forgangsréttur hluthafa HB Granda hf. ekki þessari hækkun. Áskriftarréttur að hækkuninni skal vera 4 vikur frá samþykkt tillögunnar og skulu hinir nýju hlutir allir greiddir með hlutum í Vigni G. Jónssyni hf. Dagskrá og tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins, Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og einnig á heimasíðu félagsins: www.hbgrandi.is Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent hluthöfum á fundarstað frá kl. 16:30. Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega. Reykjavík, 5. nóvember 2013 Stjórn HB Granda hf. Hluthafafundur HB Granda hf. verður haldinn þriðjudaginn 12. nóvember 2013 í matsal félagsins í Norðurgarði, Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00 ÍS L E N S K A S IA .I S G R A 6 64 27 1 1/ 13 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is RÚSSLAND, AP Nokkur þúsund rússneskra þjóðernissinna komu saman í Moskvu í gær og tóku þátt í mótmælagöngu á breiðgötu í suð- austurhluta borgarinnar. Þátttakendur voru á öllum aldri, allt frá ungum nýnasistum til eldra fólks. „Ungt fólk gegn umburðar- lyndi“ stóð á einum mótmæla- borðanum, en margir veifuðu fána gamla rússneska keisaraveldisins. Slagorðin einkenndust af mik- illi andúð á innflytjendum, eink- um þeim sem koma frá fyrrver- andi sovétlýðveldum í Mið-Asíu og frá Kákasushéruðunum, þar sem múslímar eru í meirihluta. Sumir hrópuðu „Rússland fyrir Rússa“, heilsuðu að sið þýskra nasista og báru merki þýskra nasista. Um 30 manns voru handteknir. Svipaðar göngur voru haldn- ar í fleiri borgum Rússlands, þar á meðal í Pétursborg, Kazan og Irkutsk. Í stórborgum Rússlands hefur í vaxandi mæli sést fólk frá Mið-Asíuríkjunum að vinna í byggingar vinnu eða í ýmsum lág- launastörfum sem Rússar hafa lít- inn áhuga á. Rússnesk stjórnvöld hafa að mestu látið þessa þróun afskipta- lausa, hvorki reynt að stemma stigu við því að fólk frá Mið-Asíu- löndum flytji til Rússlands né reynt að aðlaga það að rússnesku samfélagi. Undanfarið hafa verið áberandi fréttir af nokkrum hryllilegum glæpaverkum, sem innflytjendur hafa framið. Þessir atburðir hafa vakið reiði meðal Moskvubúa og lögreglan er sökuð um að sýna lít- inn áhuga á að hafa uppi á söku- dólgunum. Göngur af þessu tagi hafa verið haldnar á hverju ári þann 4. nóvember allt síðan 2005, en þá var hinn svokallaði einingardag- ur Rússlands haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn. Þessi dagur kom í staðinn fyrir byltingardaginn 7. nóvember, sem haldinn var hátíð- legur á tímum Sovétríkjanna til minningar um októberbyltinguna 1917. Samkvæmt skoðanakönnun- um virðast þó fáir Rússar vita að þessi nýi hátíðardagur er haldinn til minningar um sigur Moskvu- búa á innrásarher frá Póllandi árið 1612. Þess í stað hefur dagurinn að nokkru orðið vettvangur þjóðern- issinna og útlendingahaturs. gudsteinn@frettabladid.is Vilja aðeins eitt þjóðerni Þúsundir Rússa komu saman í Moskvu á einingardegi Rússlands til að úthúða innflytjendum. Útlendingar sagðir stunda glæpi og hirða störfin af Rússum. HEILSAÐ AÐ SIÐ NASISTA Einingardagurinn 4. nóvember hefur orðið að einum helsta vettvangi rússneskra þjóðernissinna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GRÍMU- KLÆDDUR Þátttakendur í mótmæla- göngunni hrópuðu slag- orð gegn inn- flytjendum FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.