Fréttablaðið - 05.11.2013, Side 14

Fréttablaðið - 05.11.2013, Side 14
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS M ikið óskaplega hefur ráðherrum í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur verið orðið mál að tjá sig um þá upplifun. Eða að minnsta kosti að fegra sinn hlut og leiðrétta ímyndina – sína eigin nota bene ekki ríkisstjórnarinnar sem slíkrar – eftir hið hroðalega afhroð sem samstarfsflokkarnir Samfylkingin og Vinstri græn hlutu í alþingiskosningunum í vor. Að minnsta kosti þrír ráðherrar þeirrar stjórnar eru í sviðsljósinu í yfirstandandi jólabókaflóði, þótt Jóhanna sjálf stingi reyndar ekki niður penna heldur láti eiginkonuna um það. Össur Skarphéðinsson og Steingrímur Sigfússon sjá hins vegar sjálfir um sín skrif og Össur fer mikinn í fjölmiðl- um þessa dagana með lýsingar úr bókinni. Minna hefur frést af innihaldi bókar Steingríms en umfjöllunin um það með til- heyrandi flennifyrirsögnum hlýtur að skella á von bráðar. Össuri verður tíðrætt um það í viðtölunum hversu þungbær aðförin að Geir H. Haarde hafi reynst honum og hversu litlu hafi munað að sá sirkus allur hafi sprengt ríkisstjórnina. Ekki hefur hann þó séð ástæðu til að tjá sig um það hvers vegna hann yfirgaf ekki stjórnina fyrst hún fór fram með slíku gerræði. Sennilega hefur honum, eins og flestum öðrum stjórnmálamönnum, þótt vænna um embættið en sannfær- ingu sína þegar á hólminn var komið. Það er nefnilega enginn vandi að öðlast völd, vandinn felst í því að sleppa þeim, eins og rithöfundurinn Andri Snær Magnason orðaði það þegar sú ákvörðun Jóns Gnarr að hætta sem borgarstjóri var til umræðu á Facebook. Öll borgar- stjóratíð Jóns Gnarr er reyndar auðvitað gjörningur sem ekki á neitt skylt við hefðbundna pólitík en engu að síður er sú ákvörðun hans að hætta með sæmd að eigin frumkvæði eitthvað sem pólitíkusar mættu taka sér til fyrirmyndar. Tala nú ekki um gamlir jálkar sem enn eru pikkfastir í hags- munapólitík og hrossakaupum fortíðarinnar og kalla það að benda á ávirðingar allra annarra en sjálfra sín að gera upp stjórnarsetu. Það er svo önnur Ella hvort þessi bókaskrif þjóni þeim til- gangi sínum að fegra hlut viðkomandi ráðherra og sverta hlut annarra. Enda ætti það varla að skipta máli héðan af hver var í góða liðinu og hver í því vonda í fortíðinni. Fortíðin er nefni- lega liðin og komið að þeirri framtíð sem fjöldafylgi Besta flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum var upphafið að og því eiga ýmsir erfitt með að kyngja. Sá grunur læðist að manni að það sé ekki tilviljun að vinstriráðherrarnir vilji beina athyglinni að öðru en því sem aflaga fór í stjórnartíð síðustu stjórnar nú í upphafi kosningabaráttuvetrar. Að þeir vilji að borgarstjórnmálin lúti þeirra gamalgrónu lögmálum og fari sem fljótast úr því fari sem gjörningur Besta flokks- ins og frammistaða Jóns Gnarr á stóli borgarstjóra hefur veitt þeim í. Að enn séu þeim völdin hjartfólgnari en flest annað, þótt þeir þykist hafa látið af þeim og sett stjórnun flokka sinna í hendur yngra fólks. Það skyldi þó ekki vera. Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Óþreyja er meðal hjúkrunarfræðinga á öldrunarstofnunum og öðrum stofnunum á velferðarsviði þar sem hjúkrunarfræð- ingar starfa. Nú er mælirinn að verða fullur, á tímum samdráttar þar sem laun sumra hjúkrunarfræðinga hafa verið lækkuð með þeim formerkjum að það sé verið að hagræða og lítið fjármagn sé til að reka fyrirtæki í velferðarþjónustu. Vinnuálag hefur aukist til muna og hjúkrunarfræðingum ætlað jafnvel í sumum tilfellum að bera ábyrgð á þátt- um sem tengjast hjúkrun ekki á neinn hátt. Vinnuálag er oft mikið og hjúkrun- arfræðingar taka aukna ábyrgð á mörg- um sviðum. Stofnanasamningar hjúkr- unarfræðinga eru lausir og ekki hefur verið samið við okkur svo árum skiptir (margir samningar runnu út 2006). Þau svör sem hjúkrunarfræðingar hafa fengið hjá rekstraraðilum er að ekk- ert fjármagn sé til og af þeim sökum sé ekkert að semja um. Á sama tíma hafa hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá rík- isstofnunum gert nýja stofnanasamninga og inn í það fléttast jafnlaunaátak sem samþykkt var 21. janúar 2013. Einn- ig hafa nokkur hjúkrunarheimili gert stofnanasamning við hjúkrunarfræð- inga og því ber að fagna. En eftir sitja hjúkrunar fræðingar á mörgum hjúkrun- arheimilum og fyrirtækjum í velferðar- þjónustu þar sem velferðarráðuneytið mun ekki setja neitt aukið fjármagn til þessara stofnana. Ef velferðarráðuneytið mun ekki sjá sér fært að allir hjúkrunarfræðingar hafi sambærilega samninga mun verða atgervisflótti hjá þeim sem starfa á öldr- unarstofnunum og á velferðarsviði. Aldraðir munu verða fyrir enn frek- ari skerðingu á þjónustu á sama tíma og öldruðum fjölgar og aukin þörf er fyrir hjúkrunarrými. Hjúkrunarfræðingar sem starfa í öldr- unarþjónustu munu því biðla til velferð- arráðuneytisins um að setja aukið fjár- magn til stofnana svo hægt sé að hlúa að öldruðum og sjúkum á faglegan hátt. Ójafnræði og stofnanasamningar HEILBRIGÐIS- MÁL Fríða Pálmadóttir hjúkrunarfræðingur og trúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga á Eir hjúkrunar- heimili ➜ Ef velferðarráðuneytið mun ekki sjá sér fært að allir hjúkrunarfræð- ingar hafi sambærilega samninga mun verða atgerfi sfl ótti hjá þeim sem starfa á öldrunarstofnunum og á velferðarsviði. Fyrrverandi ráðherrar í uppgjörsfasa: Ég er góði gæinn Að viðra fýluna Össur Skarphéðinsson rekur í nýrri bók sinni deilurnar sem kraumuðu undir yfirborðinu í Samfylkingunni á meðan eldtungurnar teygðu sig til himins úr gluggunum VG-megin á stjórnarheimilinu. Það sem svo gerðist í framhaldinu vekur upp spurningar um hvort hafi reynst heilladrýgra; að flagga óhreina tauinu og gera upp við kergj- una opinberlega með látum og slá af sér óhamingju- hrólfa eða bera meinin með sér inn í kosningabar- áttuna. Það mætti kannski læra eitt og annað af hruni Sam- fylkingar í síðustu kosningum. Námslán og átthagafjötrar Vigdís Hauksdóttir leggur fram fyrir- spurn til ráðherra þar sem hann er inntur eftir því hvort til greina komi að skilyrða námslán einstaklinga sem stunda nám erlendis „þannig að komi þeir ekki heim til starfa að námi loknu hækki vextir á lánum þeirra til samræmis við almenna markaðsvexti“. Þetta er hár- rétt hugsun. Það er ekkert sem hvetur okkar besta og klárasta fólk til að sækja sér fyrsta flokks menntun til útlanda heldur en gamaldags átthaga- fjötrar. Aðrétta ESB Fyrsta heildarritið um sauðfjárrækt á Íslandi er komið út hjá Uppheimum. Um er að ræða mikið og merkt rit, en athygli vekur að einn helstu styrktar- aðila á bak við útgáfu bókarinnar er sjálft Evrópusambandið í gegnum menntaáætlunina Leonardo. Einhver forkólfur úr bændahreyfingunni hafði einhvern tíma á orði að siðlaust væri að þiggja aðréttu frá ESB, en nú er sauðkindin blessuð víst gengin í þessi björg. thorgils@frettabladid.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR LEIKJASKJÁKORT Sannkallað ofurskjákort fyrir leikina. Twin Frozr gaming skjákort hlaðið öllu því besta frá MSI.Fyrir þá sem gera alvöru kröfur um ö uga grafík. 54.990 GEFORCE GTX N760

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.