Fréttablaðið - 05.11.2013, Síða 18
FÓLK|HEILSA
Fræðadagar eru árlegur viðburður hjá Heilsugæslu höfuðborgar-svæðisins og eru ætlaðir starfs-
mönnum og fagfólki. Dagskráin fer
fram 7. og 8. nóvember að þessu sinni
en dagskráin er afar fjölbreytt. Mál-
stofur eru níu en þeirra á meðal er
málstofan „Kynáttunarvandi – Er ég
Ég“. Þar mun Helgi Garðar Garðarsson,
forsvarsmaður kynáttunarvandateymis
á BUGL, fjalla um meðferð og úrræði
fyrir ungmenni með kynáttunarvanda
og Margrét Magnúsdóttir og Freyja
Dögg De Leon flytja erindið Hlustið á
okkur því þetta er okkar líf.
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahús-
prestur flytur erindi um hvernig fagað-
ilar geta unnið gegn eigin fordómum.
„Ég ætla að fjalla um mikilvægi þess
að við meðferðaraðilar og fagaðilar sem
fylgjum fólki könnumst við okkur sjálf,
þekkjum okkar eigin sögu og eigin for-
dóma,“ segir Vigfús og telur alla hafa
gott af því að kíkja inn á við. „Ég hugsa
að hver og einn geti fundið eitthvað
sem vert er að skoða,“ segir hann og
bendir á að fáir séu fordómalausir með
öllu. Sjálfur segist hann reglulega þurfa
að líta sér nær. „Ég held að við sem
vinnum náið með fólki hljótum alltaf að
hitta okkur sjálf fyrir einhvers staðar.“
En hvernig er best að taka á eigin
fordómum? „Fordómar okkar hljóta
alltaf að vera vísbending um okkar eig-
in sögu og það sem hefur mótað okkur.
Því ætti heiðarleg sjálfsskoðun að vera
leiðin til að berjast gegn fordómum
sínum,“ svarar Vigfús. Þá sé einnig gott
að kynnast og fræðast meir um það
sem fordómarnir beinast gegn.
Vigfús hefur unnið með fjölskyldum
þeirra sem eiga við kynáttunarvanda
að stríða. „Ég hef reynt að hjálpa fólki
að eiga heiðarlegt samtal til að það
geti sýnt hvert öðru skilning,“ segir
hann og finnst það yfirleitt ganga vel.
„Þar kemur samfélagsleg úrvinnsla
meðal annars inn í. Samfélagið hefur
áttað sig á fjölbreytninni í mannlífs-
flórunni og það hjálpar fólki að vinna
við sín eigin mál.“
TEKIST Á VIÐ EIGIN
SÖGU OG FORDÓMA
HEILSA Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur er einn fjölmargra sem
taka til máls á Fræðadögum heilsugæslunnar sem haldnir verða í vikunni.
Vigfús ræðir mikilvægi þess að fagaðilar skoði eigin fordóma.
PRESTUR Vigfús flytur
erindið Hvernig við
könnumst við okkur
sjálf, okkar eigin for-
dóma og álitamál sem
við þurfum að mæta í
starfi, á Fræðadögum
heilsugæslunnar sem
haldnir verða í vikunni.
MYND/ANTON
Hugsanlega má nota einfalda
blóðprufu til að greina þá sjúk-
linga sem eru með sortuæxli
sem byrjað er að dreifa sér.
Þetta eru niðurstöður rannsókn-
ar sem gerð var við Dundee-há-
skólann í Skotlandi og kynntar
voru á ráðstefnu í Bretlandi
á dögunum. Fréttavefur BBC
greinir frá því að rannsakendur
telji lykilinn að því að greina
hvort sortuæxli hafi dreift sér
vera að mæla magn erfðavísis-
ins TFP12 í erfðaefni blóðs.
Erfitt getur verið að greina
sortuæxli og vandasamt að
meðhöndla það ef það dreifir
sér. Talið er að uppgötvun
vísindamannanna geti leitt til
hraðari greiningar og nýrra
meðferða.
Dr. Tim Crook leiddi rann-
sóknina. „Með því að nota blóð-
prufu höfum við einfalda og
nákvæma leið til að athuga hve
langt sjúkdómurinn er geng-
inn. Auk þess sjáum við fyrr
hættumerki um að meinið sé
að dreifa sér. Þetta gæti gefið
læknum og sjúklingum upplýs-
ingar mun fyrr,“ segir hann.
Vísbendingar eru um að með-
ferð sé mun áhrifaríkari á fyrstu
stigum og því er til mikils að
vinna að ná til sjúklinga þegar
meinið er rétt að byrja að dreifa
sér.
Yfir átta af hverjum tíu lifa
lengur en tíu ár eftir að sortu-
æxli greinist. Sérfræðingar segja
að enn meira þurfi að gera fyrir
sjúklinga sem eru með sortu-
æxli sem dreift hafa sér í önnur
líffæri. Niðurstöður vísinda-
mannanna við Dundee-háskól-
ann gætu hjálpað til við að þróa
ný meðferðarúrræði fyrir þann
hóp.
GREINA ALVARLEG
MEIN MEÐ BLÓÐPRUFU
Ný rannsókn á sortuæxlum gæti leitt til hraðari
greiningar og nýrra meðferðarúrræða.
Parísartízkan býður upp á vandaðan tísku- og skófatnað frá Þýskalandi og Ítalíu í stærðum 36-50.
Áhersla er lögð á gæði og góða persónulega þjónustu
Skipholti 29b • S. 551 0770
Parísartízkan
vertu vinur okkar á facebook
15% – 20% afsláttur af öllum fatnaði.
Í tilefni að 50 ára afmæli Parísartísku ætlum við að bjóða upp á léttar veitingar út þessa viku.