Fréttablaðið - 05.11.2013, Side 19
BÍLAR
B
ílasýningin í Tókýó hefur
ávallt verið vettvangur nýj-
unga og óvæntra hluta. Fyrir
nákvæmlega 50 árum, miðað
við síðustu helgi, kom Mazda
bílaheiminum í opna skjöldu
með algerlega nýrri gerð
brunavéla, Rotary-vélinni. Síðan þá hefur
þessi vél verið hjartfólgin bílaáhugamönn-
um, þrátt fyrir að Mazda hafi nýverið
ákveðið að hætta framleiðslu hennar. Rot-
ary-vélin er ólík öðrum bílvélum að því
leyti að í stað stimpla er hvelfdur þríhyrn-
ingur inni í næstum sívölu sprengirýminu.
Þríhyrningurinn snýst þegar eldsneytið
brennur í holum milli hans og innri veggja
sívalningsins. Faðir Rotary-vélanna var
þýski verkfræðingurinn Felix Wankel
og hafa Rotary-vélar einnig verið kallað-
ar Wank el-vélar í höfuð hans. Hann fékk
einkaleyfi á þeim árið 1929 en hóf ekki af
alvöru þróun þeirra fyrr en upp úr miðri
síðustu öld og fyrsta fullþróaða vélin kom
ekki fram fyrr en árið 1957.
Margir keyptu einkaleyfi Wankels
Fjölmörg fyrirtæki keyptu einkaleyfi
hans og þróuðu vél hans enn frekar.
Meðal þeirra fyrirtækja voru Merc edes
Benz, General Motors, Rolls Royce og
Mazda. Enginn tók þó smíði þeirra í meiri
hæðir en Mazda. Rotary-vélar sáust þó
frá ýmsum framleiðendum í fólksbílum,
sportbílum, trukkum, mótorhjólum, flug-
vélum, snjósleðum, go-kart bílum, hjól-
sögum, sjóköttum og ofuröflugum keppn-
isbílum. Einn bílanna hafði sigur í Le
Mans-þolakstrinum, hinn frægi 787B-
bíll frá Mazda, sem vann kappaksturinn
árið 1991. Sá bíll var 700 hestöfl og hafði
hámarkshraðann 338 km/klst. Meðal-
hraði hans í keppninni var 205 km/klst.
og komst hann 362 hringi á brautinni á
þeim 24 klukkustundum sem þolakstur-
inn tekur.
Ótrúlegar móttökur fyrsta bílsins
Þegar Mazda tók Rotary-vélina upp á sína
arma og smíðaði fyrsta bílinn með þannig
vél hét fyrirtækið ekki einu sinni Mazda
heldur Toyo Kogyo, sem síðan stofnaði
bíladeild innan fyrirtækisins sem fékk
nafnið Mazda. Þegar Mazda sýndi sinn
fyrsta Rotary-bíl á bílasýningunni í Tókýó
árið 1963 voru aðeins liðin þrjú ár síðan
Mazda framleiddi sinn fyrsta bíl, R360 kei
car. Því var þetta útspil Mazda bæði mjög
óvænt og metnaðarfullt. Fyrsti Rotary-bíll
Mazda var með 0,8 lítra sprengirými, en
Rotary-vélar eru hvað þekktastar fyrir að
ná mörgum hestöflum út úr litlu sprengi-
rými. Bíllinn var 70 hestöfl og fékk nafn-
ið Mazda Cosmo Sport og ók forstjóri Toyo
Kogyo þessum sportlega og fríða bíl inn
á sýninguna við mikla eftirtekt sýningar-
gesta. Bíllinn fékk verðskuldaðar frábær-
ar móttökur, enda var hann framúrstefnu-
legur, afar sportlegur og eins og beint úr
einhverri framtíðarkvikmynd. Hann bar
þó keim af Ford Thunderbird, bara miklu
minni, en margir af fyrstu bílum jap-
anskra framleiðenda báru mjög keim af
bandarískri framleiðslu.
Fordómar í garð japanskra framleiðenda
Þessi fyrsti Rotary-bíll Mazda sýndi
heimsbyggðinni fyrir hvað Mazda ætlaði
sér að standa í framtíðinni og ný stjarna
var fædd. Margir höfðu þó efasemdir um
bíla frá Japan, sem síðar átti að sannast að
voru aldeilis ekki á rökum reistar. Sömu
fordómum mætti 2000GT-bíll Toyota, sem
menn síðar áttuðu sig á að var aldeilis frá-
bær bíll og er söfnunarbíll í dag. Mazda
hélt áfram að þróa bíla með Rotary-vél-
um og næsti bíll kom aðeins ári síðar,
1964, og aðrir japanskir framleiðendur
fylgdu í kjölfarið. Árið 1967 hafði Mazda
fullkomnað Cosmo-bílinn og var vél hans
orðin 110 hestöfl með 10A Rotary-vélinni.
Er Rotary-draumurinn úti?
Rotary-vélin þjáðist samt alltaf af mikilli
eldsneytiseyðslu og því urðu margir bíla-
framleiðendur henni afhuga. Mazda hélt
þó uppi nafni hennar og setti Rotary-vél-
ar í flestar sínar bílgerðir. Frægir bílar
Mazda með Rotary-vél urðu síðar RX-3 og
RX-7 sportbílarnir, en kaupendum þeirra
var eyðslan ekki efst í huga. Síðasti bíll-
inn sem Mazda framleiddi með Rotary-vél
varð svo RX-8, sem bílageggjarar þreyt-
ast ekki á að mæra fyrir frábæra aksturs-
eiginleika. Sala hans fór þó sífellt minnk-
andi og svo fór að framleiðslunni var hætt.
Mazda hefur þó haldið áfram að þróa nýja
Rotary-vél sem kölluð er 16X, en ókostir
Rotary-vélanna gætu reynst Mazda fjöt-
ur um fót og ekki víst að fyrirtækið þori
að ráðast í framleiðslu bíls með þeirri vél.
Mazda er þó ekki alveg tilbúið að jarða
þessa frægu arfleifð sína og útför Rot-
ary-vélarinnar hefur ekki enn farið fram.
Skyldi Mazda sjokkera bílaheiminn einu
sinni enn með Rotary-bíl á komandi bíla-
sýningu í Tókýó?
50 ÁRA AFMÆLI ROTARY-VÉLARINNAR
Rotary-vélin er ólík öðrum bílvélum að því leyti að í stað stimpla er hvelfdur þríhyrningur inni í næstum sívölu
sprengirýminu. Þrátt fyrir kosti Rotary-véla eru ókostirnir svo margir að allir hafa horfið frá framleiðslu þeirra.
Mazda RX-8
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2013