Fréttablaðið - 05.11.2013, Side 21
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
35. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR
undirlagi og ætti að vera fær í
flestan snjó. Snerpa bílsins með
þessa vél er góð. Hann er 7,0 sek-
úndur í hundraðið og ef hann er
keyptur án fjórhjóladrifsins er
hann léttari og fer sprettinn á
6,9 sekúndum. Bílinn má fá með
margs konar vélum og með 3,0
lítra dísilvélinni er hann 5,7 sek-
úndur í 100 og slík vél með hærri
þrýstingi skilar honum þangað á
5,1 sekúndu. Þrjár stærðir bens-
ínvéla eru einnig í boði.
Fagur að innan sem utan
Innrétting bílsins er í stíl við
annað, sérlega falleg og íburðar-
mikil. Leðursætin eru afar fal-
leg og framsætin alveg til fyr-
irmyndar til lengri eða styttri
ferða. Stýrið er enn eitt sem
hrósa þarf í þessum bíl, sport-
legt og fer vel í hendi. Auðvelt er
að finna bestu akstursstöðu og
minni í sætum tryggir að ekki
þarf að leita hennar nema einu
sinni. Bíllinn er hlaðinn staðal-
búnaði, akstursöryggisbúnaði
og munaði um það því hugað er
að öllu fyrir farþega. Rými fyrir
aftursætisfarþega er gott, bæði
fóta- og höfuðrými og vel fer um
tvo þar og alls ekki illa um þrjá.
BMW 5-línuna má fá í fjórum
gerðum, það er hefðbundinn „sed-
an“-bíll, langbakur, GT-bíll með
halaklipptum afturenda og tvinn-
bíll, þ.e. ActiveHybrid 5. Lang-
bakurinn og GT-bílarnir eru með
stærra farangursrými og því enn
hentugri ferðabílar. Í BMW 5-lín-
unni eru sameinaðir einstakir
aksturseiginleikar og sannkallað-
ur lúxus og hvað vilja sannir bíla-
áhugamenn meira? Ekki sakar
svo að eyðsla þessa bíls er eigin-
lega ekki í samræmi við stærð-
ina, aflið og íburðinn, eða að-
eins 5,1 lítri í blönduðum akstri.
Fyrir þetta allt saman þarf að
sjálfsögðu að borga, en BMW 525
xDrive kostar 10.190.000 krón-
ur. Helstu samkeppnisbílar hans
eru Audi A6 sem kostar 8.480.000
kr. með 177 hestafla dísilvél og
10.300.000 með 204 hestafla dís-
ilvél og Mercedes Benz E-Class
með 204 hestafla dísilvél kostar
10.080.000 krónur.
● Aksturseiginleikar
● Lítil eyðsla
● Vel smíðaður
● Verð
● Ytra útlit að eldast
● Tímafrekt að venjast
stjórntækjum
KEMUR Á ÓVART
● Framsætin eru með þeim allra þægilegustu
● Stýrið fer svo vel í hendi að leitun er að öðru eins
● Þrátt fyrir mikið afl er eyðsla bílsins afar lítil
Suzuki er hvað þekktast fyrir
smíði smærri bíla og ætlar
greinilega ekki að víkja af leið,
enda gengur fyrirtækið ágæt-
lega nú. Í næsta mánuði mun Suz-
uki sýna eina fjóra hugmynda-
bíla á bílasýningunni í Tókýó
og víst er að þeim er ekki ætlað
að slá í gegn í landi hinna stóru
bíla í Bandaríkjunum. Bílarn-
ir heita Crosshiker, X-Lander og
hinu umdeilanlega nafni Hustler
og Hustler Coupé. Crosshiker er
smár jepplingur sem vegur að-
eins 810 kíló og er með 1,0 lítra
þriggja strokka vél. Bíllinn á að
höfða til þeirra sem bæði setja
umhverfissjónarmið á oddinn og
kjósa spennu. X-Lander er byggð-
ur á Jimny-bíl Suzuki, en verður
tvinnbíll með 1,3 lítra vél og fjór-
hjóladrifinn. Hann er bæði ætl-
aður sem lipur borgarbíll en fær
um að fara ótroðnar slóðir, enda
bíllinn með ágæta veghæð. Hustl-
er og Hustler Coupé eru rúmgóð-
ir strumpastrætóar, rúmgóðir að
innan en samt nettir að utan.
Smáir bílar
fyrir stóra
framtíð
Allir eiga þessir nýju bílar það sam-
merkt að vera agnarsmáir, en það
er einmitt það sem Suzuki er hvað
þekktast fyrir.
Einkar stílhrein
innrétting og smíði
og efnisnotkun til
fyrirmyndar en tíma
tekur að venjast
ýms um stjórn-
tækjum bílsins.
ÖRY
GGI
ALLA
N
HRI
NGIN
N
„Grænu skrefin
mín í borginni eru
harðskeljadekk“
Toyo harðskeljadekk tryggja
minni mengun og meira öryggi
Upplýsingar í síma 590 2045
eða á www.benni.is
Söluaðilar
um land allt
María Lovísa Árnadóttir - Markþjálfi og hönnuður