Fréttablaðið - 05.11.2013, Blaðsíða 23
| FÓLK | 3HEILSA
Birna Katrín Ragnarsdóttir hjá RB-Rúmum segir að fyrirtækið framleiði mikið af rúmum fyrir
hótel- og gistiheimili um allt land auk
þess að þjóna einstaklingum. Fyrir-
tækið hefur alla tíð verið í eigu sömu
fjölskyldu.
„Við erum með allt fyrir svefnher-
bergið og höfum nýlega tekið inn
vönduð Esprit-sængurverasett og
handklæði,“ segir Birna. „Við hönnum
rúmin frá grunni eftir óskum við-
skiptavinarins. Öll rúmin eru sér-
hönnuð og unnin samkvæmt pöntun.
Við bjóðum fimm tegundir af spring-
dýnum og það er hægt að velja fjóra
stífleika en fimmta tegundin af dýnum
er fyrir stillanleg rúm. Við erum eitt
af fáum fyrirtækjum í heiminum sem
framleiða sveigjanlega springdýnu.
Auk þess bjóðum við rúmgafla, nátt-
borð og rúmfatakistla en hægt er að fá
allt í stíl,“ útskýrir Birna.
„Við endurvinnum dýnurnar okkar
og mælum með því að fólk láti yfirfara
þær eftir tíu til fjórtán ár. Dýnurnar
þurfa að vera hreinar og fínar þegar
þær koma til okkar aftur og þess
vegna ráðleggjum við fólki að nota
alltaf yfirdýnu. Þær hlífa dýnunum.
Mjög mikið hefur verið um að fólk
láti yfirfara dýnurnar undanfarin ár og
eiginlega má tala um sprengingu í þeim
efnum. Það breyttist mikið eftir hrunið
en áður var algengara að fólk keypti
nýtt,“ segir Birna.
„Við vinnum talsvert eftir árstíðum
því alltaf er mikið að gera fyrir jól og
fermingar og hótelin endurnýja gjarn-
an rúmin á veturna og vorin.“
RB-Rúm hefur alla tíð verið til húsa í
Hafnarfirði. Á heimasíðu fyrirtækisins,
rbrum.is er hægt að kynna sér vöruúr-
val og þar er hægt að setja inn pöntun.
Þá hefur Facebook-síða fyrirtækisins
verið mjög virk. Þar birtast myndir af
nýjum vörum og hægt er að fá upplýs-
ingar um verð. „Við erum með fjölbreytt
úrval af fallegum rúmteppum, sængur-
fötum, púðum og handklæðum.“
Birna segir að ávallt sé lögð áhersla
á gott verð.
RB-RÚM Í SJÖTÍU ÁR
RB-RÚM KYNNIR RB-Rúm í Hafnarfirði hóf rekstur árið 1943 og fagnar því
sjötíu ára afmæli á þessu ári. Hinn 1. desember verður þeim áfanga fagn-
að með opnu húsi. Fyrirtækið hefur ávallt verið í fararbroddi við þróun og
framleiðslu springdýna.
FALLEGT Birna Katrín stendur hér við eitt rúmið en mikið úrval er í versluninni. MYND/VILHELM
AFMÆLI RB-Rúm er til húsa í Dalshrauni 8 í rúmgóðu húsnæði. MYND/VILHELM
RB-Rúm er í
Dalshrauni 8
s. 555 0397.
www.rbrum.is og á
facebook.
JÓLAPAKKINN 2013
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af
öllum stærðum og gerðum, allt eftir þínum óskum.
Við hvetjum landsmenn til að panta tímalega fyrir jólin.
Í verslun okkar finnur þú einnig úrval fylgihluta í
svefnherbergið og ýmsa gjafavöru.
Nýtt hjá okkur eru glæsileg handklæði í mörgum
stærðum frá Esprit sem eru tilvalinn í jólapakkann.