Fréttablaðið - 05.11.2013, Qupperneq 32
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Ólafar
Skaftadóttur
SUNNUDAG 3. NÓVEMBER
TÓNLIST ★★★ ★★
MIDLAKE
Iceland Airwaves-hátíðin
HARPA-SILFURBERG
Bandaríska hljómsveitin Mid-
lake spilaði undir hjá Íslandsvin-
inum John Grant á fyrstu sóló-
plötu hans Queen of Denmark og
var mætt á Airwaves vegna þess
kunningsskapar. Hún þakkaði ein-
mitt Grant í lok tónleikanna fyrir
að hafa lokkað sig á hátíðina.
Midlake er frá borginni Denton
í Texas og spilar eins konar þjóð-
lagapopp í ætt við Fleet Foxes og
Band Of Horses, nema hvað að þær
sveitir standa henni báðar framar.
Sex manns voru á sviðinu og
spiluðu þrír þeirra á gítar, þar á
meðal fúlskeggjaður söngvarinn.
Þrír hljóðfæraleikaranna rödduðu
með honum lögin með reglulegu
millibili. Góður hljóðfæraleikur-
inn, sem oft náði fínu flugi, í bland
við raddirnar myndaði hugguleg-
an hljóðheim, sem náði samt ekki
að heilla mann upp úr skónum.
Melódíurnar voru ágætar en ekki
alveg nógu grípandi. Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Félagar Johns Grant
bjuggu til huggulegan hljóðheim.
Huggulegur hljóðheimur
MIDLAKE Hljómsveitin Midlake er frá Denton í Texas. NORDICPHOTOS/GETTY
TÓNLIST ★★★★★
Kraftwerk
Iceland Airwaves-hátíðin
ELDBORG HARPA
Eftirvæntingin var mikil fyrir tónleika
þýsku raftónlistarsveitarinnar Kraftwerk í
Eldborgar sal Hörpu.
Þessi fræga hljómsveit kom síðast hingað
til lands árið 2004 og spilaði í Kaplakrika á
fínum tónleikum en þessir voru miklu flott-
ari. Þar skipti sköpum þrívíddartæknin sem
notast var við sem var hreint út sagt frábær,
auk þess sem salurinn var mun glæsilegri,
með fullri virðingu fyrir Kaplakrika.
Meðlimir Kraftwerk stóðu fjórir við hljóm-
borðin sín og hljóðgervlana fremst á sviðinu
í göllum sem skiptu litum en á bak við þá var
risatjald og þaðan var varpað þrívíddarmynd-
böndum sem fylgdu hverju einasta lagi tón-
leikanna. Þessi mikla margmiðlunarveisla,
sem tónleikarnir voru, hófust með laginu The
Robots og eftir fylgdi hver slagarinn á fætur
öðrum, þar á meðal The Model, Radioactivity,
Autobahn og Computerworld. Hvergi var feil-
nóta slegin.
Að loknu síðasta lagi fyrir uppklapp, gengu
þeir félagar af sviðinu einn af öðrum og
hneigðu sig fyrir áhorfendum eins og sönnum
herramönnum sæmir. Eftir uppklappið tóku
svo við tvö lög. Þá voru þeir reyndar búnir
að spila sín frægustu lög en það skipti ekki
höfuðmáli.
Eftir tónleikana gat maður ekki annað en
fest kaup á einu stykki af Kraftwerk-stutt-
ermabol, enda tónleikar sem verða lengi í
minnum hafðir, sér í lagi fyrir hið sjónræna
gildi. Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Sannkölluð veisla fyrir augu og
eyru í Eldborgarsalnum.
Margmiðlunarveisla í Eldborg
KRAFTWERK Hljómsveitin Kraftwerk spilaði í Eldborgarsalnum á sunnudagskvöld. MYND/ALEXANDER MATUKHNO
TÓNLIST ★★★★★
Ásgeir
Iceland Airwaves-hátíðin
SILFURBERG HÖRPU
Ásgeir steig á svið í Hörpu á laug-
ardag og var þétt staðið í Silfur-
bergi. Þótt von sé á endurút-
gáfu hinnar frábæru plötu Dýrð
í dauðaþögn á næsta ári á ensku
kaus Ásgeir að syngja á íslensku
fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem
fjölmenntu á tónleikanna.
Hæfileikar Ásgeirs eru ótvíræð-
ir og frammistaða hans í Hörpu
var eftir því. Söngur hans frábær
að vanda og flutningur hljómsveit-
arinnar fumlaus. Ásgeir lék einn-
ig ný lög á tónleikunum, m.a. lagið
Lupin Intrigue sem kom út á smá-
skífu kappans í sumar. Fallegt lag
í anda þeirra sem komu út á fyrstu
plötu kappans. Tónleikarnir voru
sem sálræn afslöppun. Fallegar
melódíur og söngur Ásgeirs leið
um salinn og sálarró færðist yfir
undirritaðan í nokkrum lögum.
Sem fyrr var Ásgeir fámáll á milli
laga. Það er það eina sem hægt er
að setja út á tónleikana sem að öllu
öðru leyti voru fyrsta flokks.
Jón Júlíus Karlsson
NIÐURSTAÐA: Frábærir tónleikar
þar sem tónlistin var í aðalhlutverki.
Sálarró hjá
Ásgeiri
Ég hélt strax með Jóni Gnarr og hans liði. Besta flokkinn skipaði margt
vel menntað fólk, sem tók sig ekki of
alvarlega og hafði unnið sigra í lífinu,
ólíkt flokkshestum sumra annarra
framboða. Það eina sem sætti furðu
var að besta liðið vildi fara í pólitík
yfirhöfuð.
JÓN Gnarr staðfesti það sem mig hafði
grunað að vinnuumhverfi stjórnmála-
manna er gróðrarstía eineltis og pers-
ónuárása; ekki ólíkt skólalóðum ungl-
ingaskóla, þar sem illa uppdregnir
krakkar gera hver öðrum lífið leitt,
fullkomlega að óþörfu. Sem betur
fer lætur unglingurinn af þess-
ari hegðun þegar hann verður
að manni – nema hann verði
að stjórnmálamanni.
JÓN Gnarr varð aldrei stjórn-
málamaður. Borgarstjóri Reykjavík-
ur vakti athygli um allan heim með
nýstárlegum aðferðum við að tjá sig.
Hann gerði stjórnmál að listaverki. Á
sinn græskulausa hátt bylti hann hefð-
bundnum rökræðum stjórnmálamanna,
án þess að segja orð. Til dæmis með því
að nýta búningatækni leikarans. Hann
klæddist fallegum kjól í gleðigöngu,
Obi Wan Kenobi-búningi þegar svo bar
undir og bleikum jakkafötum á tylli-
dögum. Þannig tjáði hann sig skýrar um
æskilegan fjölbreytileika mannlífsins en
nokkur stjórnmálamaður hafði áður gert
í hefðbundinni ræðu.
ÉG mun sakna Jóns Gnarr. Hins vegar
virði ég hann fyrir að kasta frá sér
valdasprotanum af fúsum og frjálsum
vilja, enda varð hann aldrei stjórnmála-
maður. Völdin spilltu honum ekki. Fylg-
ismælingar staðfesta að við borgarbúar
hefðum endurráðið hann. En erindi Jóns
var að sýna fram á að hægt er að breyta.
Það tókst. Við þurfum ekki stjórnmála-
menn sem flokksvélarnar hafa sett á
stall og útmálað sem ofurmenni. Við
þurfum ekki ofurmenni til að stjórna
bænum – enda ofurmenni fágæt tegund,
stundum hættuleg.
KANNSKI höfum við fengið nóg af
flokkum sem krakkar ganga í upp úr
fermingu til að læra þessi „trix lýð-
ræðisins“. Ætti kannski að uppræta
unglingahreyfingar stjórnmálaflokka
þar sem fólki er kennt að fara með inni-
haldslausa frasa, verja vonlausan mál-
stað og hnýta í náungann? Það virðist
alla vega ekki best lengur.
ÉG vil þakka þér fyrir að gera stjórnmál
bærilegri, Jón Gnarr. Ég vona að spor
þín séu varanleg.
Stjórnmálamaður hefði varla haft vit á að hætta
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
THE HOLLYWOOD REPORTER
ENTERTAINMENT WEEKLY
EMPIRE
TOTAL FILM
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
THOR 2
THOR 2 LÚXUS
FURÐUFUGLAR 2D
FURÐUFUGLAR 3D
CAPTAIN PHILIPS
INSIDIUS CHAPTER 2
KONAN Í BÚRINU
MÁLMHAUS
TÚRBÓ 2D ÍSL.TAL
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
FRANCES HA
GRAVITY 3D
KONAN Í BÚRINU
MÁLMHAUS
HROSS Í OSS
PHILOMENA
KONAN Í BÚRINU
INSIDIUS CHAPTER 2
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 3D
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 3.20 - 5.40
KL. 3.20
KL. 5 - 8 - 10.45
KL. 8 - 10.20
KL. 8 - 10.15
KL. 5.45
KL. 3.30
KL. 5.45 - 8 - 10.15
KL. 10
KL. 6
KL. 8 - 10.15
KL. 10.15
KL. 5.45 - 8
KL. 6 - 8
KL. 8 - 10
KL. 6
KL. 10.30
KL. 8
KL. 6
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
- H. S., MBL
SJÁ SÝNINGARTÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
PHILOMENA 5:50, 8, 10:10
FURÐUFUGLAR 6 3D
CAPTAIN PHILLIPS 6, 9
þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð