Fréttablaðið - 05.11.2013, Síða 34
5. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26
FÓTBOLTI Atli Eðvaldsson, fyrrver-
andi landsliðsþjálfari, er ekki af baki
dottinn í þjálfuninni þó svo honum
gangi illa að fá vinnu hjá bestu
félögum landsins.
Atli stýrði liði Reynis frá Sandgerði
í 2. deildinni síðasta sumar og hann
verður áfram í þeirri deild næsta
sumar en á nýjum stað.
Atli skrifaði í gær undir þriggja
ára samning við Aftureldingu. Mos-
fellingar hafa verið nálægt því að
komast upp í 1. deild síðustu ár en
ekki haft erindi sem erfiði. Liðið var
mjög nálægt því að fara upp síðasta
sumar. Atli, sem tekur við starfinu
af Enes Cogic, fær það hlutverk að
koma liðinu upp á næsta stall en
herslumuninn hefur vantað. Honum
til aðstoðar verður Úlfar Arnar
Jökulsson.
Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi
er gríðarlega reynslumikill. Hann
gerði KR meðal annars að Íslands-
meisturum árið 1999 eftir mikla
eyðimerkurgöngu Vesturbæinga.
Atli hefur einnig þjálfað HK, ÍBV,
Fylki, Þrótt og Val hér heima. Hann er
með UEFA Pro License-þjálfaragráðu
frá íþróttaháskólanum í Köln. - hbg
Atli ráðinn þjálfari hjá Aft ureldingu
ATLI EÐVALDSSON.
FÓTBOLTI Hinn ungi og efnilegi
framherji Framara, Hólmbert Aron
Friðjónsson, gæti verið á leið í
atvinnumennsku.
Fram kemur á vefsíðunni
fótbolti.net að hollenska félagið
Heracles hafi gert Frömurum
tilboð í Hólmbert.
Þetta félag er í
hollensku úrvals-
deildinni og er rétt
fyrir ofan liðin sem
eru í fallsætum.
Hólmbert fór til félags-
ins til reynslu um daginn
ásamt Viðari Erni Kjartanssyni, fram-
herja Fylkis.
Stráknum hefur greinilega
tekist að heilla forráðamenn
félagsins fyrst þeir eru búnir að
senda tilboð í hann.
Hólmbert átti flotta
spretti með Fram í
sumar, var lengi
vel markahæsti
leikmaður Pepsi-
deildarinnar og
endaði sumarið
með því að skora tíu
mörk í deildinni. - hbg
Heracles með tilboð í Hólmbert
SPORT
FÓTBOLTI „Við verðum að vinna til
að eiga möguleika á að komast upp
úr riðlinum,“ segir landsliðsmað-
urinn Rúrik Gíslason. FC Kaup-
mannahöfn tekur á móti Galat-
asaray á Parken í kvöld í fjórðu
umferð riðlakeppninnar. FCK
hefur eitt stig eftir þrjá leiki og
með tapi hreiðra þeir hvítklæddu
vel um sig í botnsæti riðilsins.
„Þjálfarinn hefur lýst því þann-
ig að við eigum að líta á Meistara-
deildina sem algjöran bónus. Við
byrjuðum illa í dönsku deildinni
og einbeitum okkur að henni. Svo
lendum við líka í riðli með þrem-
ur frábærum liðum,“ segir Rúrik.
Auk andstæðinganna í kvöld frá
Tyrklandi eru risarnir Juventus
og Real Madrid í riðlinum.
„Við erum samt ekkert í þessu
bara til að vera með. Við viljum
allir ná árangri.“
Danska liðið tapaði 3-1 í fyrri
leik liðanna í Istanbúl. Þá var
Rúrik tekinn af velli í hálfleik og
lýsti kantmaðurinn yfir óánægju
sinni með þá ákvörðun þjálfar-
ans í samtali við danska fjölmiðla.
Honum var refsað fyrir uppákom-
una en nú er atvikið úr sögunni.
„Þjálfarinn setti mig á bekkinn í
einn leik og sagði mér að halda ró
minni næst þegar svona gerðist,“
segir Rúrik. Hann bætir við að
þjálfarinn Ståle Solbakken, fyrr-
verandi atvinnumaður og lands-
liðsmaður Noregs, viti vel að oft
beri tilfinningar knattspyrnumenn
ofurliði.
„Þetta var líka blásið aðeins upp
í fjölmiðlum. Það er ekkert illt á
milli mín og hans.“
Auk Rúriks spilar landsliðs-
miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson
með FCK. Rúrik segir leikform
þeirra félaga eins gott og mögu-
legt sé. Góðar fréttir, enda aðeins
tíu dagar í fyrri leik Íslands gegn
Króatíu um laust sæti á heims-
meistaramótinu í Brasilíu næsta
sumar.
„Ég get alveg leyft mér að segja
að við iðum í skinninu eftir þess-
um landsleikjum. Þetta er þvílíkt
tækifæri og við vitum allir hvað er
í húfi,“ segir HK-uppalningurinn.
„Auðvitað eru þeir sterkari en við
á pappírnum. Þegar svona mikið er
undir getur hins vegar allt gerst.“
Rúrik hefur spilað 24 sinnum
fyrir hönd Íslands en aðeins skor-
að eitt mark. Markið kom fyrir
rúmum þremur árum í 1-1 jafn-
tefli gegn Lichtenstein á Laugar-
dalsvelli.
„Ég viðurkenni að mig langar í
fleiri,“ segir Rúrik, sem er þekkt-
ur fyrir sín þrumuskot hvort sem
er með hægri eða vinstri. Gylfi
Þór Sigurðsson og Jóhann Berg
Guðmundsson hafa skorað glæsi-
mörk af löngu færi undanfarið og
Rúrik segir kominn tíma á mark
frá sér.
„Það yrði ekki leiðinlegt að
smyrja einum á móti Króatíu.“
kolbeinntumi@frettabladid.is
Sagt að halda ró sinni
Rúrik Gíslason og félagar í FC Kaupmannahöfn mæta Galatasaray í riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Um úrslitaleik er að ræða fyrir þá hvítklæddu.
PASSAR BOLTANN Rúrik leggst yfir boltann með Cristiano
Ronaldo á bakinu á dögunum. Króatinn Luka Modric fylgist
spenntur með. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI „Við leyfðum Bjarna
að stjórna þessu alfarið og hann
vandaði sig gríðarlega við að finna
sinn aðstoðarmann. Bjarni vildi
ráða inn mann sem myndi vega
upp á móti hans karakter og þeir
gætu unnið vel saman sem teymi,“
segir Sverrir Einarsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Fram.
Félagið hefur ráðið Úlf Blandon
sem aðstoðarþjálfara karlaliðsins
og mun hann verða hægri hönd
Bjarna Guðjónssonar sem tók við
liðinu í síðasta mánuði.
Úlfur hefur undanfarin ár
verið yfirþjálfari yngri flokka hjá
Gróttu en þeir Bjarni eru jafnaldr-
ar, báðir fæddir árið 1979.
„Ég var á sínum tíma í fimm ár
með svo gott sem alla yngri flokka
hjá Stjörnunni og fékk mikla
reynslu þar,“ segir Úlfur Bland-
on, sem bjó í Noregi í nokkur ár
þar sem þjálfaraferill hans hófst.
„Við Bjarni spiluðum hvor gegn
öðrum í yngri flokkunum og
þekkjumst lítillega í gegnum bolt-
ann. Ég hef farið mikið út til Eng-
lands og Hollands til að fylgjast
með æfingum, meðal annars hjá
AZ Alkmaar.“
„Úlfur er fjölhæfur þjálfari
sem nær vel til yngri jafnt sem
eldri leikmanna. Hann hefur tölu-
verða reynslu og mikla þekkingu
á hvernig best er að halda uppi
æfingum. Auk þess er hann flott-
ur karakter,“ segir Bjarni. - sáp
Úlfur Blandon ráðinn til Fram
Bjarni Guðjónsson fékk jafnaldra sinn sér til aðstoðar við þjálfun Safamýrarpilta
FRUMRAUN Úlfur Blandon er kominn í
Pepsi-deildina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is