Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 10
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SAMGÖNGUR Verktakar frá tveim-
ur mismunandi fyrirtækjum ann-
ast snjómokstur í Barðavogi í
Reykjavík.
Í Fréttablaðinu í gær greindi
íbúi við Barðavog frá því að
snemma dags væri snjór mokaður
af gangstéttinni sem hann gengur
eftir á leið sinni til vinnu. Seinni
partinn þegar hann gengur heim
á leið hefur snjó af götunni verið
mokað aftur yfir gangstéttina.
„Verktakar sjá um að moka
göturnar að fyrirskipun eftirlits-
manna,“ segir Sigurður Geirsson,
yfirverkstjóri hjá umhverfis- og
skipulagssviði Reykjavíkurborg-
ar, aðspurður. „Það er kannski
hægt að gera betur einhvers
staðar. Ef menn vinna enn betur
saman, þeir sem moka gangstétt-
ir og götur, þá er eflaust hægt að
laga það.“
Aðspurður segir Sigurður málið
snúið hvað Barðavog varðar. Þar
er gangstétt öðrum megin sem
liggur alveg upp við götuna. Þang-
að kemur snjórinn óhjákvæmilega
þegar hann er skafinn af götunni.
„Snjórinn gufar ekki upp, á ein-
hvern stað fer hann. Ef það er
hægt að fjarlægja snjóinn eða
keyra hann í burtu, væri það gott
en það er óheyrilegur kostnaður
við það. Það er svipað með hundr-
uð annarra gatna í borginni, litl-
ar götur með stétt öðrum megin.“
Spurður hvort mögulegt sé að
ryðja snjónum aftur í burtu af
gangstéttinni segir hann það erf-
itt. Tækin fyrir gangstéttirnar
séu um þrjú tonn að þyngd og þau
ráði ekki við svo mikinn snjó.
Sigurður Geirsson, yfirverk-
stjóri hjá umhverfis- og skipulags-
sviði borgarinnar, er þakklátur
fyrir ábendingu íbúans í Barðavogi
og segir að reynt verði að leysa
málið eftir bestu getu. „Þetta ger-
ist á hverjum einasta vetri þegar
snjóar oftar en einu sinni á dag. Við
erum að fara á stjá klukkan þrjú á
nóttunni og erum á vakt til ellefu á
kvöldin. Við erum þessir góðu jóla-
sveinar sem eru alltaf á ferðinni.“
- fb
Verktakar frá tveimur mismunandi fyrirtækjum annast snjómokstur af götu og gangstétt í Barðavogi:
Mismunandi verktakar í snjómokstrinum
SNJÓMOKSTUR Verktakar frá tveimur
mismunandi fyrirtækjum annast snjó-
mokstur í Barðavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEILBRIGÐISMÁL „Næsta skref
verður að finna leiðir til að leysa
skuldavandann. Sunnuhlíð á fast-
eignir sem duga fyrir skuldun-
um,“ segir Jóhann Árnason, fram-
kvæmdastjóri Sunnuhlíðar.
Þar sem ríkið yfirtekur ein-
ungis reksturinn verða skuldirn-
ar skildar eftir í gamla sjálfseign-
arfélaginu. Hjúkrunarheimilið
skuldar lífeyrissjóðum og birgj-
um meðal annars vegna kaupa á
mat og lyfjum um 260 milljónir
króna.
Heilbrigðis-
ráðherra og
stjórn Sunnu-
hlíðarsamtak-
anna hafa náð
samkomulagi
um að ríkið
yfirtaki rekst-
ur hjúkrunar-
heimilisins í
Sunnuhlíð frá
og með næstu áramótum. Stjórn
Sunnuhlíðar hefur óskað eftir því
að velferðarráðuneytið komi að
viðræðum um leiðir til að takast
á við uppsafnaðar skuldir vegna
rekstrar hjúkrunarheimilisins og
hefur ráðuneytið fallist á það.
Ríkið ætlar ekki að reka Sunnu-
hlíð nema í skamman tíma og leit-
að verður að nýjum rekstraraðila
til reka heimilið. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Kristjáni Þór Júlí-
ussyni heilbrigðisráðherra verð-
ur það á ábyrgð þess sem tekur
yfir reksturinn að ráða heimilinu
nýjan framkvæmdastjóra.
Jóhann segir því að yfirtak-
an leysi ekki allan vanda en hún
tryggi þeim sem búa í Sunnuhlíð
áframhaldandi vist og starfs-
mönnum áframhaldandi vinnu.
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð
er sjálfseignarstofnun sem var
sett á fót 1979 af níu klúbbum og
félögum í Kópavogi en heimilið
tók til starfa 1982. Í Sunnuhlíð eru
73 hjúkrunarrými og 18 dagdval-
arrými.
Sunnuhlíðarsamtökin reka auk
hjúkrunarheimilisins rúmlega
100 íbúðir fyrir aldraða. Rekst-
ur íbúðanna er aðskilinn rekstri
hjúkrunarheimilisins en íbúarn-
ir hafa getað notið þjónustu á
hjúkrunarheimilinu. Sú þjónusta
verður áfram í boði eftir að ríkið
tekur við rekstrinum.
johanna@frettabladid.is
Ríkið yfirtekur ekki
skuldir Sunnuhlíðar
Samkomulag hefur tekist milli stjórnar hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar og heil-
brigðisráðuneytisins um að ríkið taki yfir rekstur heimilisins um áramót. Sunnu-
hlíð skuldar 260 milljónir. Ekki er enn ljóst hvernig skuldirnar verða gerðar upp.
RÍKIÐ YFIRTEKUR Stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna hefur samið við ríkið um að það
yfirtaki rekstur heimilis frá frá áramótum. Við yfirtökuna er lögð áhersla á að ekki
verði röskun á þjónustu við íbúana eða stöðu starfsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
Sunnu-
hlíð á fast-
eignir sem
duga fyrir
skuldunum.
Jóhann Árnason,
framkvæmdastjóri
Sunnuhlíðar
ALÞINGI Fimm í viðbót fá ríkisborgararétt
samkvæmt breytingartillögu sem Allsherjar-
og menntamálanefnd lagði fram á þingfundi í
gær.
Þessir fimm einstaklingar eru alllir frá Írak
og eru hluti af palestínskum flóttamannahópi
frá Írak sem kom til landsins árið 2008 og
hafa verið án ríkisfangs í fimm ár.
Einungis var gert ráð fyrir að hluti af hópn-
um fengi ríkisborgararétt í frumvarpinu sem
kynnt var í gær.
„Íslenskupróf réð því hverjir fengu ríkis-
borgararétt í frumvarpi okkar,“ segir Unnur
Brá Konráðsdóttir, formaður nefndarinnar.
„En eftir að hafa fengið gögn send til okkar
í dag varðandi málið gerðum við breytingar-
tillögu. Það koma upp tilvik þar sem ákveðinn
ómöguleiki er í gangi og þá metum við málið
eftir öðrum viðmiðum.“
Nú eru því allir í hópnum, sem sóttu um rík-
isfang, komnir með íslenskt ríkisfang ef breyt-
ingartillagan verður samþykkt á þingi.
- ebg
Breytingartillaga veitir öllum flóttamannahópnum á Akranesi réttindi:
Ekki lengur ríkisfangslausar
samþykki Alþingi tillögu
FÉKK RÍKISBORGARARÉTT Ayda Abdallah M Al Esa var ein af
þeim sem fengu ekki ríkisborgararétt í fyrstu umferð en hún hefur
beðið þess í fimm ár að heimsækja dóttur sína í Bandaríkjunum.
MYND/ARI SIGVALDASON
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
1
33
6
39
Fallegar jólagjafir
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Handunnið skart
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar