Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 88
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 64
„Ég er allt annar maður en fyrir
einu til tveimur árum. Ég er klár-
lega í besta formi ævi minnar,“
segir Ragnar Nathanaelsson. Mið-
herjinn, sem er 218 cm á hæð, fór á
kostum í þremur leikjum Þórs Þor-
lákshafnar í Domino‘s-deildinni í
desember og hefur vakið verðskuld-
aða athygli fyrir frammistöðu sína
það sem af er leiktíð. Í síðasta leik
fyrir jólafrí setti sá hávaxni 27 stig
auk þess að taka 22 fráköst. Maður
leiksins án nokkurs vafa.
Ragnar æfði með A-landsliðinu
í sumar og ber þjálfaranum Peter
Öqvist vel söguna.
„Peter fór mikið í grunninn með
mér og sýndi mér heilmikið,“ segir
Ragnar. Ekki hafi verið annað hægt
en að bæta sig með landsliðinu. Spil-
tíminn var af skornum skammti en
nýliðinn hefur fullan skilning á því.
„Það er enginn að fara að taka
byrjunarliðssætið af Hlyni Bær-
ings,“ segir Raggi en Hlynur hefur
verið í aðalhlutverkinu undir körf-
unni með landsliðinu í áratug.
Ragnar gekk í raðir Þórs fyrir
yfirstandandi leiktíð. Áður lék hann
með uppeldisfélaginu Hamri en lið-
inu mistókst að komast upp úr 1.
deildinni í vor. Þá ákvað Hvergerð-
ingurinn að róa á ný mið.
„Þegar ég ræddi við Þór gerði ég
þá kröfu að fá styrktarþjálfun og
aukaæfingar tvisvar til þrisvar í
viku,“ segir Ragnar. Hann hafi vilj-
að gera hlutina af alvöru til að kom-
ast á næsta stig. „Svo ég geti einn
daginn tekið byrjunarliðssætið af
Hlyni.“
Gústi þurfti að hringja í mömmu
Aðeins sex ár eru síðan draga þurfti
Ragnar á æfingar. Þá var Ágúst
Björgvinsson, núverandi þjálfari
Vals, við stjórnvölinn í Hveragerði
og reyndi hvað hann gat að fá Ragn-
ar á æfingar.
„Ég hafði engan áhuga á íþrótt-
um yfir höfuð. Maður fylgdist bara
með Hamri og mætti á eina og eina
æfingu,“ segir Ragnar. Ólíklegt sé
að hann hefði byrjað í körfubolta ef
ekki hefði verið fyrir þrautseigju
Ágústs.
„Gústi hringdi í mig á leiðinni á
æfingar til að spyrja hvort ég ætl-
aði ekki pottþétt að mæta. Ef ég
svaraði ekki þá hringdi hann heim
og talaði við mömmu,“ segir Ragn-
ar. Aðspurður hvað hann hafi haft
fyrir stafni áður en hann hellti sér í
körfuna af krafti segir Ragnar: „Ég
var bara úti í garði að leika mér með
spýtur.“
Ragnar, sem er lærður húsa-
smiður, segir að áhuginn hafi auk-
ist smám saman. Nú snúist lífið um
körfubolta og draumurinn sé að
komast í atvinnumennsku. Miðað
við frammistöðu hans að undan-
förnu er ljóst að félög ytra eru farin
að fylgjast með kappanum. Öll lið
geta notað öflugan 218 cm mann
undir körfunni.
„Það eru einhverjir byrjaðir að
spyrjast fyrir um mig og hafa sam-
band. Ég passa mig samt á að vera
ekki að pæla í því á miðju tímabili.
Ég ætla ekki að vera kominn út
áður en ég fer út,“ segir Ragnar ein-
beittur. Hann vonast til þess að geta
æft með landsliðinu næsta sumar og
í kjölfarið geti eitthvað gerst.
Ýmist Raggi Nat eða Raggi Frat
Gengi Þórsara á leiktíðinni hefur
verið upp og niður. Liðið hefur unnið
Grindavík í Röstinni en einnig tapað
fyrir botnliði Vals. Ragnar segir
þjálfarann Benedikt Guðmundsson
hafa tvö Þórslið í höndunum sem
skipuð séu sömu leikmönnum.
„Stundum mætum við brjálaðir
til leiks, lokum vörninni og brill-
erum eins og gegn Grindavík. Svo
mætum við annars hugar í leiki
gegn liðum sem við teljum okkur
eiga að sigra og þau flengja okkur
oftar en ekki,“ segir Ragnar. Leik-
menn ætli að vinna í hugarfarinu í
jólafríinu og ekki síst hann sjálfur.
„Ég hef mætt í tvo eða þrjá leiki
þar sem hefur verið alveg slökkt á
mér. Ég hef ekki verið þessi Raggi
Nat sem fólkið þekkir. Þá kýs Bald-
ur Þór að kalla mig Ragga Frat,“
segir kappinn og hlær. Hann hafi
ekki mikinn áhuga á að viðurnefnið
festist við sig.
Hressari maður en Ragnar er
vandfundinn. Aðspurður hvort hann
geri í því að vera hress eða ekki seg-
ist hann oftast nær vera í voðalega
góðu skapi.
„Ég glími við þann vanda að
hugsa ekki alltaf áður en ég tala,“
segir Ragnar og hlær. „Ég er voða-
lega fljótur að skjóta á fólk en sem
betur fer veit það að 90 prósent af
því sem ég segi er í gríni.“ Mest geri
hann grín að sjálfum sér en hann
leggur mikið upp úr að viðhalda
góðri stemningu í ungu Þórsliðinu.
Fimm dagar eru til jóla og ætlar
Ragnar að njóta alls þess sem verð-
ur á boðstólum. Hangikjötið og
hamborgarhryggurinn mun renna
ljúflega niður en þó er miðherjinn
spenntastur fyrir skötunni. Þar
spretti upp í honum sveitastrákur-
inn.
„Ég fer í að lágmarki tvær skötu-
veislur á Þorláksmessu. Skata og
hákarl er það besta sem ég fæ.“
kolbeinntumi@frettabladid.is
Gústi hringdi í mig
á leiðinni á æfingar til að
spyrja hvort ég ætlaði
ekki pottþétt að mæta.
Ef ég svaraði ekki þá
hringdi hann heim og
talaði við mömmu.
Kolbeinn
Tumi Daðason
kolbenntumi@frettabladid.is
Raggi Nat fer að lágmarki í tvær
skötuveislur á Þorláksmessu
Ragnar Nathanaelsson fór hamförum með Þór Þorlákshöfn í Domino’s-deild karla í körfubolta í jólamánuðinum. Sá hávaxni er
þegar farinn að fá fyrirspurnir frá erlendum félögum en lætur það ekki trufl a einbeitinguna. Hvergerðingurinn stefnir á að taka
byrjunarliðssætið í landsliðinu af Hlyni Bæringssyni einn daginn en Ragnar spilaði sína fyrstu A-landsleiki síðasta sumar.
STÓR OG STÆRRI Reynsluboltinn Friðrik Stefánsson virkar smávaxinn í samanburði við Ragnar í baráttunni undir körfunni.
MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON
Fjöldi stiga og frákasta hefur hækkað í hverjum mánuði
Ragnar hefur bætt sig í hverjum mánuði frá því að keppni í Domino‘s-deildinni
hófst í október. Tveir síðustu leikir Þórs standa upp úr. Annars vegar sigur á
Grindavík í Röstinni þar sem Ragnar skoraði 19 stig og tók 25 fráköst. Hins vegar
heimasigur á ÍR þar sem stig þess hávaxna urðu 27 og fráköstin 22. Ragnar er
með 16,7 stig að meðaltali í leikjunum ellefu og 13,7 fráköst. Hann er fjórði
frákastahæsti leikmaður deildarinnar og í fimmta sæti þegar kemur að framlagi.
EINBEITTUR
Ragnar einbeitir
sér alfarið að körfu-
boltanum í vetur
með það að mark-
miði að komast í
atvinnu mennsku
næsta haust.
MYND/JÓN BJÖRN ÓLAFSSON
➜ Ragnar er stöðugt að bæta sig
25
20
15
10
12
16,6
Stig
Fráköst
12,4
19,3
21,3
10,3
október nóvember desember