Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 52
FRÉTTABLAÐIÐ Heimili . Dagatal og kökugotterí. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr.
12 • LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013
Þ
etta átti bara að vera
gæluverkefni en vör-
urnar frá Marokkó eru
svo fallegar að ég gat
ekki annað en sleg-
ið til,“ segir Lína Móey sem nú
flytur inn leðurpúffa í mörg-
um skemmtilegum litum ásamt
vinkonu sinni, Ágústu Dagmar.
„Mig langaði að opna verslun
og var með ákveðna framtíðar-
sýn svo ég lagðist í rannsóknar-
vinnu á netinu og fann þessa fal-
legu púffa.“ Púffarnir eru hand-
unnir og hverjum púffa fylgir
ævintýralegur texti með mis-
munandi boðskap, eftir textahöf-
undinn Sölva Fannar. „Fólk man
eftir þessum púffum frá því í
gamla daga og þá má vel vera að
þeir finnist í gömlum geymslum
hjá fjölskyldunni en við vildum
vera með meiri fjölbreytni hvað
varðar liti og útsaum á púffun-
um.“ Hægt er að panta púffana
hjá netversluninni silvan.is og
fá senda heim, innpakkaða fyrir
jólin. Púffarnir koma ófylltir og
segist Lína Móey fylla sína eigin
púffa með gömlum rúmfötum,
handklæðum, fötum og jafnvel
dagblöðum.
HEIMILI LEÐUR PÚFFAR MEÐ FALLEGUM BOÐSKAP
Lína Móey og Ágústa Dagmar reka netverslunina Silvan.is og selja leðurpúffa.
Hægt er að panta púffana hjá
netversluninni silvan.is og fá senda heim,
innpakkaða fyrir jólin.
Hægt er að setja bakka á púffana eða sitja á þeim.
Fallegt barnaherbergi með púffum.
Lína Móey og Ágústa Dagmar.
Vinkonurnar Hafdís Heiðarsdóttir
og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir hafa
báðar haft unun af sígaunaspilum
frá því að þær voru litlar stelpur.
Sígaunaspil eru gömul spáspil sem
þykja auðveldari í notkun en
tarotspil.
„Við eigum
báðar unglinga
sem hafa verið
að stelast í spil-
in okkar svo við
ákváðum að hanna
okkar eigin sígauna-
spil sem væri þægi-
legra að meðhöndla
fyrir yngri kynslóðina,“ segir Vil-
borg Aldís. „Þegar við vorum að
byrja að hanna spilin þá kom bókin
eiginlega til okkar, ég veit að það
er klisja en það er satt. Á þrem-
ur vikum varð hún að veruleika, við
fengum útgefanda strax og allt gekk
eins og í sögu. Þangað til allt fór að
ganga á afturfótunum,“ segir Haf-
dís. Þær segja frá óútskýranlegum
vandamálum sem komu upp í kring-
um prentun og flutning bókarinnar
Galdraþulan, en bókin var prentuð
erlendis. „Það mætti því
halda að það væru álög
á sjálfri bókinni en það
þykir okkur bara enn
meira spennandi,“ segir
Hafdís.
Bókin fjallar um
hina 14 ára Kæju
sem er ósköp venju-
leg stelpa sem er hálf-
rúmensk og hálf-íslensk. Á
15 ára afmælisdaginn fær hún að
gjöf gamlan nornakistil frá ömmu
sinni í Rúmeníu en í honum finnur
hún eldgömul spáspil. Atburðarásin
er spennandi og undarlegir hlutir
fara að gerast hjá henni. Sígauna-
spil fylgja hverri bók og fléttast inn
í söguþráðinn. Nánari útskýringar
á spilunum er að finna á Facebook-
síðunni, Galdraþulan.
BÓK GALDRAÞULAN
OG SÍGAUNASPIL
Hafdís Heiðarsdóttir og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir töldu
sig upplifa álög á nýju bókinni sinni.
Hafdís
Heiðarsdóttir og
Vilborg Aldís
Ragnarsdóttir,
höfundar
bókarinnar
Galdraþulan.